Beata

Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 244 bera nafnið

Nafnið á rætur að rekja til latneska lýsingarorðsins „beātus“ sem merkir sæll, í kvenkyni „beāta“. Nafnið þekkist víða í Evrópu, meðal annars í Danmörku og Svíþjóð frá 14. öld, og einnig í Noregi, Englandi, Þýskalandi, Frakklandi og á Ítalíu í ýmsum myndum. Heilög Beata dó píslarvættisdauða í Norður-Afríku snemma á miðöldum.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.