Nöfn sem byrja á Ý
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum Ý, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 10 nöfn sem byrja á Ý í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á Ý
- ÝrStúlkaSamþykkt1 atkv.32 sem fyrsta nafn
Ýrr hét dóttir Geirmundar heljarskinns samkvæmt Landnámu, og er einnig getið í Sturlungu. Nafnið er skylt nafnorðinu „úr“, sem merkir „úruxi“, og „ýrr“ í sömu merkingu.
- ÝmaStúlkaSamþykkt27. maí 20102 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í fornaldarsögum sem heiti á tröllkonu. Það er skylt orðinu „íma“ sem merkir skessa eða vargynja.
- ÝrúnStúlkaSamþykkt18. apr 20172 atkv.1 sem fyrsta nafn
Síðari liður nafnsins er „-rún“ sem tengist nafninu „Rún“, en fyrri liðurinn „Ý-“ er óviss. Ef til vill er um sama nafn að ræða og „Irun“ í norsku, þar sem giskað hefur verið á tengsl við nafnið „Irene“.
- ÝdaStúlkaSamþykkt1. mar 20222 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er yfirleitt talið þýsk stytting á nöfnum sem hefjast á „Ida-“, „Idu-“, t.d. fornháþýska nafninu „Idaberga“. Forliður þess nafns er talinn sama orð og „íð“ 'verk, starf, iðn' í íslensku. Frá Þýskalandi barst nafnið til Norðurlanda og hefur verið notað í Danmörku frá 12. öld og í Svíþjóð frá 14. öld. Í Noregi varð það vinsælt um aldamótin 1900. Nafnið er einnig gamalt á Bretlandseyjum, en þangað barst það með Normönnum, féll í gleymsku á miðöldum og var tekið í notkun aftur á 19. öld.
- ÝriStúlkaSamþykkt7. okt 20252 atkv.
Drengjanöfn á Ý
- ÝmirDrengurSamþykkt2 atkv.208 sem fyrsta nafn
Mismunandi hugmyndir eru uppi um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir vilja meina að það tengist sögninni "ymja" sem merkir að umla, - hljóða en aðrir að það merki jötunn í goðafræðinni. Ýmir var mestur jötna, líkt og Óðinn var æðstur ása. Óðinn og bræður hans drápu Ými og gerðu úr honum heiminn, beinin og tennurnar urðu að fjöllum og firnindum, blóðið að sjónum, hárið að skógi, höfuðkúpan að himinhvolfinu og heilinn að skýjum.
- ÝrarDrengurSamþykkt2 atkv.
Nafnið er líklegast myndað af kvenmannsnafninu „Ýr“ með viðskeytinu „-ar“.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á Ý
Hvaða nöfn byrja á Ý?
Það eru 10+ íslensk nöfn sem byrja á Ý, t.d. Ýr og Ýmir. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á Ý?
Samtals eru 10 samþykkt nöfn sem byrja á Ý í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →