Nafnalisti

Nöfn á Ö: 28+ stúlku- og drengjanöfn

Öll eiginnöfn á mannanafnaskrá sem byrja á Ö, flokkuð í stúlkunöfn og drengjanöfn.

Stúlkunöfn

8 nöfn
  • Ösp

    Stúlkunafn17 sem fyrsta nafn · Trjáheitið Ösp

  • Örk

    Stúlkunafn5 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er dregið af nafnorðinu "örk" sem merkir kista, - skip.

  • Ögn

    Stúlkunafn4 sem fyrsta nafn · Sennilega hliðstætt Agnar, af sömu rót og agi, ógn eða: agnarsmá.

  • Ölrún

    Stúlkunafn2 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Öl" sem er skylt forna orðinu "alu" sem merkir töfravald, - vernd og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Ögmunda

    Stúlkunafn · Kvenmynd af karlmannsnafninu Ögmundur.

  • Ölveig

    Stúlkunafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Öl" sem er skylt forna orðinu "alu" sem merkir töfravald, - vernd og viðliðnum "veig" sem merkir afl, - kraftur.

  • Örbrún

    Stúlkunafn · Nafn þetta merkir ör á auga.

  • Öxi

    Stúlkunafn · Nafnið er dregið af nafnorðinu „öxi“ sem merkir verkfæri, vopn.

Sjá öll stúlkunöfn á Ö →

Drengjanöfn

16 nöfn
  • Örn

    Drengjanafn533 sem fyrsta nafn · Fuglsheitið örn.

  • Örvar

    Drengjanafn160 sem fyrsta nafn · Uppruni nafnsins er óviss en það er líklega myndað af nafnorðinu eða lýsingarorðinu „ör“ með hliðsjón af nafninu „Ævar“. Ef til vill var fornkappinn „Örvar-Oddur“ kveikjan að nafngiftinni. Nafnið er fremur ungt hérlendis og kemur fyrst fyrir á 20. öld.

  • Örlygur

    Drengjanafn65 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er að öllum líkindum tengt "örlygi" sem merkir orrusta, - ófriður.

  • Ögmundur

    Drengjanafn51 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ög" sem sem skylt er nafninu Agnar og merkir agi, - ógn og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn.

  • Örnólfur

    Drengjanafn33 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er myndað af forliðnum "Örn" og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.

  • Össur

    Drengjanafn22 sem fyrsta nafn · Líklegast þykir að nafn þetta sé komið af sænska orðinu "antsuar" sem merkir andsvar, situr fyrir svörum, - veitir svör.

  • Ölver

    Drengjanafn12 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Öl" sem er skylt forna orðinu "alu" sem merkir töfravald, - vernd og viðliðnum "vér" sem merkir bardagamaður.

  • Önundur

    Drengjanafn11 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ön" sem ýmist er talið að komið sé af fornháþýska orðinu "ano" sem merkir ái, - afi, - forfaðir, eða þá að talið er að hann tengist sögninni "ano" sem merkir að æða áfram eða þá að hann tengist forliðnum "and" í merkingunni á móti. Viðliðurinn "undur" er talið koma af sögnunni "vindur" og er e.t.v. skylt sögninni "vinna" í merkingunni sigur.

  • Ölvir

    Drengjanafn5 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Ölver.

  • Ögri

    Drengjanafn2 sem fyrsta nafn · Nafnið er fremur ungt í íslensku. Líklegra er að það sé dregið af „ögur“ sem merkir smávogur eða vík milli kletta, sbr. örnefnið „Ögur“, en af sögninni að „ögra“ sem merkir eggja eða espa.

  • Öxar

    Drengjanafn2 sem fyrsta nafn · Að baki nafninu liggur líklega nafnorðið „öxi“ ásamt viðliðnum „-ar“.

  • Özur

    Drengjanafn2 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Össur.

  • Ölnir

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Nafnið kemur fyrir að fornu sem dvergsheiti og sem nafn á einum af sonum Óðins. Uppruni er óviss en nafnið hefur verið tengt sögninni „ala“ eða orðinu „alu-“ sem er eins konar töfraorð á rúnaristu.

  • Örlaugur

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ör" sem merkir skjótur og viðliðnum "laugur" sem merkir hreinn, - tær.

  • Öndólfur

    Drengjanafn · Fyrirmynd nafnsins er hugsanlega lýsingarorðið „öndóttur“ sem merkir harðlegur, hvass, illilegur, en það kemur fyrir sem nafn í Landnámu og í bæjarnafninu „Öndóttsstaðir“ í Þingeyjarsýslu, sem nú er venjulega ritað „Öndólfsstaðir“. Nafnið er sett saman af nafnorðinu „önd“ sem merkir áhyggja, raun, og viðliðnum „-ólfur“ sem merkir úlfur.

  • Örri

    Drengjanafn

Sjá öll drengjanöfn á Ö →

Samtals eru 28 nöfn sem byrja á Ö í gagnagrunninum.

Heimild: Þjóðskrá Íslands, nafnaskrá og fjöldi nafnbera · sótt 22. október 2026

Algengar spurningar um nöfn á Ö

Hvaða nöfn byrja á Ö?

Það eru 28+ íslensk nöfn sem byrja á Ö, t.d. Ösp og Örn. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á Ö?

Samtals eru 28 samþykkt nöfn sem byrja á Ö í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Þrengdu leitina

Öll nöfn á Ö í nafnaleitinni, með síum fyrir lengd og fjölda.

Skoða öll nöfn