Nöfn sem byrja á Ó
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum Ó, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 40 nöfn sem byrja á Ó í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á Ó
- ÓlínaStúlkaSamþykkt3 atkv.122 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er líklegast sett saman úr karlmannsnafninu Óli og viðskeytinu "ína". Önnur tilgáta er sú að nafn þetta sé tökunafn sem hefur upphaflega verið stytting á erlendum nöfnum sem enda á "-oline".
- ÓlaStúlkaSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn
Annarvegar er nafn þetta kvenmynd karlmannsnafnsins Óli og hinsvegar er það stytting á nöfnum eins og Ólafía, - Ólöf o.fl.
- ÓlivíaStúlkaSamþykkt22. des 20114 atkv.11 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og elsta heimild um það er í leikritinu „Þrettándakvöld“ eftir Shakespeare frá lokum 16. aldar. Talið er að höfundur hafi annaðhvort leitt það af nafninu „Oliver“ eða beint af latneska orðinu „oliva“ sem merkir ólífutré. Nafnið barst til Norðurlanda á 18. öld.
- ÓlafínaStúlkaSamþykkt4 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Ólafur og viðskeytinu "ína".
- ÓttaStúlkaSamþykkt6. jún 20072 atkv.2 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss. Það gæti verið sama orð og „ótta“ sem merkir tíminn milli þrjú og sex að næturlagi. Það gæti einnig verið skylt forna árheitinu „Ótta“ sem tengt hefur verið við nafnorðið „ótti“ - hræðsla. Þá gæti það einnig verið tökunafn, til dæmis úr norsku „Otte“ sem er afleiðsla af „Ottar“ og „Otto“.
- ÓfelíaStúlkaSamþykkt7. feb 20134 atkv.1 sem fyrsta nafn
Shakespeare notaði nafnið „Ophelia“ á eina af persónunum í leikriti sínu „Hamlet“. Þótt illa færi fyrir Ófelíu í leikritinu hefur nafnið nokkuð verið notað á Bretlandseyjum. Nafnið fékk Shakespeare að láni frá Ítalanum Jacopo Sannazzaro sem hugsaði það líklega sem kvenkynsmynd að gríska nafninu „Ōphelos“ sem merkir „hjálp“.
- ÓdaStúlkaSamþykkt2 atkv.
„Oda“ er upphaflega gömul þýsk stytting nafna sem hefjast á „Ot-“, t.d. fornþýsku nafnanna „Otberga“, „Otburga“ og „Othild“. Í fornháþýsku merkir „ōt“ „eign, auður“ og er skylt íslenska orðinu auður. Átrúnaður á heilaga Odu um 600 e.Kr. stuðlaði að vinsældum nafnsins. „Oda“ er nafn á nokkrum konum í Þiðreks sögu af Bern og barst frá Þýskalandi til Norðurlanda, þar sem það hefur lengi verið notað í Danmörku og frá 19. öld í Svíþjóð.
- ÓsklínStúlkaSamþykkt10. feb 20142 atkv.
Nafnið er líklega sett saman af kvenmannsnafninu „Ósk“ eða karlmannsnafninu „Óskar“ og viðliðnum „-lín“, sbr. „Lín“.
- ÓðnýStúlkaSamþykkt15. ágú 20142 atkv.
Nafnið er hugsanlega sett saman af karlmannsnafninu „Óðinn“ og viðliðnum „-ný“.
Drengjanöfn á Ó
- ÓlafurDrengurSamþykkt3 atkv.2.616 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er víxlmynd við fornnorræna nafnið "Áleifur" sem er samsett af forliðnum "Anu" sem merkir forfaðir og viðliðnum "laibar" sem merkir afkomandi, - erfingi.
- ÓskarDrengurSamþykkt2 atkv.1.051 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur af írska nafninu "Oscara" sem samsett er af forliðnum "Os" sem merkir hjörtur og viðliðnum "cara" sem merkir vinur.
- ÓmarDrengurSamþykkt2 atkv.583 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er ungt í íslensku, berst hingað til lands á þriðja áratug síðustu aldar. Nafnið kemur fyrir í biblíunni en er talið rekja uppruna sinn til arabísku.
- ÓðinnDrengurSamþykkt2 atkv.434 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr goðafræðinni en Óðinn var æðstur allra guða. Það er skylt orðinu "óður" sem merkir skáldskapur.
- ÓttarDrengurSamþykkt2 atkv.166 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af orðinu "ótti" og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.
- ÓríonDrengurSamþykkt26. jan 20223 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið merkir „veiðimaðurinn“ eða „risinn“ og er jafnframt heiti stjörnumerkis við miðbaug himins. Í grískri goðafræði var Óríon veiðimaðurinn mikli, sonur Póseidons og drottningarinnar Eruyale.
- ÓnarrDrengurSamþykkt23. maí 20172 atkv.1 sem fyrsta nafn
Ónarr var dvergsheiti til forna og nafn á föður jarðar. Nafnið er líklega leitt af „Án“.
- ÓbiDrengurSamþykkt5. sep 20232 atkv.1 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss en talið er að um upphaflegt gælunafn sé að ræða.
- ÓriDrengurSamþykkt6. des 20232 atkv.1 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óvís en ef til vill er um gælunafn að ræða.
- ÓmiDrengurSamþykkt2 atkv.
Uppruni nafnsins er óviss en hugsanlega er um upprunalegt gælunafn að ræða.
- ÓsvífurDrengurSamþykkt3 atkv.
Nafnið kemur fyrir til forna og tengist lýsingarorðinu „ósvífinn“, sem merkir óskammfeilinn, frekur.
- ÓlafDrengurSamþykkt30. sep 20152 atkv.
Nafnið er víxlmynd við „Áleifur“, komið af fornnorrænu „Anu-laibaR“ sem er samsett af „Anu-“ er merkir forfaðir og „-laibaR“ er merkir afkomandi, erfingi, sbr. „Leifur“. Kvenmannsnafnið „Ólöf“ samsvarar þessu nafni. „Ólafur“ kemur fyrir í Landnámu og víða í fornum bókmenntum og fornbréfum. Frægir menn með þessu nafni voru t.d. Ólafur Tryggvason Noregskonungur sem kristnaði Noreg og Ísland og Ólafur helgi Haraldsson Noregskonungur. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá því á miðöldum og hefur verið tekið að láni þaðan á Englandi og í Þýskalandi. Danskar myndir eru „Olaf“, „Olav“ og yngri myndin „Ole“. Norskar myndir nafnsins eru „Olav“, yngri myndir „Ola“ og „Ole“. Sænskar myndir eru „Olof“ eða „Olov“ en einnig þekkjast „Ola“, „Olav“ og „Ole“.
- ÓnarDrengurSamþykkt6. jan 20172 atkv.
Ónarr var dvergsheiti til forna og nafn á föður jarðar. Nafnið er líklega leitt af „Án“.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á Ó
Hvaða nöfn byrja á Ó?
Það eru 40+ íslensk nöfn sem byrja á Ó, t.d. Ólöf og Ólafur. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á Ó?
Samtals eru 40 samþykkt nöfn sem byrja á Ó í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →