Biblíunöfn
Biblíunöfn bárust til Íslands með kristninni og mörg þeirra eru nú meðal algengustu nafna landsins. Eva var fyrsta konan, Sara kona Abrahams og María móðir Jesú. Aron var bróðir Móse og Pétur einn postulanna.
Nafn er í safninu þegar merking þess í gagnagrunninum nefnir Biblíuna eða persónu úr henni. Styttingar og nöfn sem tengjast Biblíunni aðeins að hluta, eins og Jón og Kristín, eru undir „Samsett nöfn“.
Stúlkunöfn
- MaríaStúlkaSamþykkt3 atkv.1.917 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið af hinni arameísku mynd „Mariam“, hliðarmynd hebreska nafnsins „Miriam“. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning þegar nýtt nefnifall var myndað af þolfallsmyndinni „Mariam“. Merking og uppruni nafnsins er óljós en talið er sennilegt að það sé af egypskum toga, líkt og nafn Miriam úr Gamla testamentinu, systur Móse og Arons. Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi enda tengt Maríu, móður Jesú.
- JóhannaStúlkaSamþykkt3 atkv.1.791 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og er leitt af hebreska orðinu "johanan" sem merkir Drottinn er náðugur.
- EvaStúlkaSamþykkt2 atkv.1.440 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og þýðir það líf, - sú sem gefur líf. Eva er fyrsta konan og hún og Adam eru þau sem allir menn eru komnir af skv. biblíunni.
- SaraStúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.
- RakelStúlkaSamþykkt2 atkv.1.027 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er hebreskt biblíunafn sem merkir ær, - gimbur.
- HannaStúlkaSamþykkt2 atkv.883 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af hebreska biblíunafninu "Hannah" sem merkir ég er í náðinni hjá guði.
- MartaStúlkaSamþykkt2 atkv.574 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni, fengið af arameíska nafninu "Martá" sem merkir frú, - húsfrú.
- MariaStúlkaSamþykkt5. maí 20063 atkv.486 sem fyrsta nafn
Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.
- RebekkaStúlkaSamþykkt3 atkv.476 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni en merking er ekki þekkt.
- MagdalenaStúlkaSamþykkt4 atkv.423 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr biblíunni, af viðurnefninu "Hé Magdalené" sem merkir kona frá Magdala, en það var þorp við Genesaretvatn
- EsterStúlkaSamþykkt2 atkv.286 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur fyrir í biblíunni en mismunandi skoðanir eru um merkingu þess og uppruna. Sumir telja að persnerska orðið "sitareh" sem merkir stjarna liggi að baki nafninu, aðrir að orðið "ester" sem er hebreska og merkir ung kona sé það orð sem nafnið er dregið af, og enn aðrir vilja meina að það hafi eitthvað að gera með nafnið "Ishtar" sem var babýlönsk ástargyðja.
- RutStúlkaSamþykkt1 atkv.195 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni en merking er ekki þekkt.
- LeaStúlkaSamþykkt2 atkv.144 sem fyrsta nafn
Tvær hugmyndir eru uppi um uppruna og merkingu. Í fyrsta lagi er talið að hér sé um að ræða hebreskt biblíunafn og þá í merkingunni hin þreytta, - magnlausa. Í öðru lagi er talið að nafnið sé komið frá latneska orðinu "lea" sem merkir ljónynja.
- SúsannaStúlkaSamþykkt3 atkv.87 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og er fengið af hebreska orðinu "shoshan" sem merkir lilja.
- SarahStúlkaSamþykkt11. ágú 20212 atkv.80 sem fyrsta nafn
Sarah er ritmynd af biblíunafninu Sara. Svo hét kona Abrahams og móðir Jakobs samkvæmt Fyrstu Mósebók. Hún hét fyrst „Saraí“, „hin þrætugjarna“, en Guð sagði Abraham að nefna hana „Söru“, en það nafn mun merkja „hefðarkona, prinsessa“. Sarah er vel þekkt nafn á Englandi.
- SalómeStúlkaSamþykkt3 atkv.68 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni en að baki því liggur hebreska orðið "shalom" sem merkir friður.
- DanaStúlkaSamþykkt2 atkv.34 sem fyrsta nafn
Ýmsar kenningar eru um uppruna þessa nafns. Dana getur átt að merkja hin danska, nafnið er af sumum talið koma úr biblíunni og enn aðrir telja það vera styttingu á öðrum nöfnum s.s. Daníela.
- HannahStúlkaSamþykkt20. feb 20252 atkv.29 sem fyrsta nafn
Hannah er hebreskt kvenmannsnafn, komið af „Hanna“ (חַנָּה) af rótinni „ḥanan“ sem merkir „náð“ eða „hylli“. Það kemur fyrir í Gamla testamentinu sem nafn móður spámannsins Samúels.
- JudithStúlkaSamþykkt2 atkv.28 sem fyrsta nafn
Júdit er biblíunafn sem kemur fyrir í Fyrstu Mósebók og í Júditarbók, einni af apókrýfu bókum Biblíunnar. Hebreska nafnið „Jehūdīth“ er talið merkja „kona frá Júdeu“.
- SusanStúlkaSamþykkt28. des 20042 atkv.23 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Nýja testamentinu í Lúkasarguðspjalli. Það er hebreskt að uppruna, „Shoshana“, myndað af nafnorðinu „shoshan“ sem merkir „lilja“. Í einni af apókrýfu bókum Biblíunnar er sagt frá Súsönnu konu Jóakims sem ranglega var dæmd til dauða en Daníel kom henni til hjálpar og sannaði sakleysi hennar. Þessi sögn var mjög vinsæl á miðöldum og birtist víða í málverkum, sem stuðlaði mjög að útbreiðslu nafnsins víða um Evrópu.
- MirraStúlkaSamþykkt2 atkv.19 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er líklegast tekið af nafnorðinu "mirra/myrra" sem merkir ilmefni. Mirra var ein af gjöfunum sem vitringarnir þrír gáfu jesúbarninu skv. biblíunni.
- AdaStúlkaSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn
Ungt tökunafn í íslensku, líklega úr Norðurlandamálum eða þýsku. Talið er að „Ada“ sé stytting á þýskum nöfnum sem hefjast á „Adel-“, er merkir „aðall“, líkt og „Adelheid“, og samsvarar það forliðnum „Aðal-“ í íslensku, sbr. „Aðalbjörg“ og „Aðalheiður“. Einnig er „Ada“ biblíunafn af hebreskum uppruna en svo hét kona Esaú, eldri sonar Ísaks og Rebekku, samkvæmt Fyrstu Mósebók. Uppruni þess nafns er óviss en tengist hugsanlega hebresku orði sem merkir „skart, prýði“.
- LýdíaStúlkaSamþykkt3 atkv.13 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni, er grískt að uppruna og er talið merkja kona frá Lýdíu.
- MaraStúlkaSamþykkt4. ágú 20112 atkv.13 sem fyrsta nafn
Nafnið má líklega rekja til Rutarbókar Gamla testamentisins. Hebreska orðið „mara“ merkir „hin beiska“ og Naómí er látin segja: „Kallið mig ekki Naómí, kallið mig Mara, því að hinn Almáttki hefir búið mér beiska harma.“
- AbelStúlkaSamþykkt16. okt 20182 atkv.11 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af hebreska nafninu "Hevel" sem merkir andardráttur. Skv. biblíunni var Abel annar sonur Adams og Evu.
- DeboraStúlkaSamþykkt6. jún 20073 atkv.9 sem fyrsta nafn
Nafnið á rætur að rekja til Dómarabókar Biblíunnar þar sem sagt er frá Debóru, spákonu og dómara, sem leiddi Ísraelsmenn til sigurs yfir Kanaanítum. Það er leitt af hebreska orðinu „deborah“ sem merkir „býfluga“. Nafnið þekkist í Noregi og Danmörku, auk þýskumælandi landa og Ítalíu, en er algengast meðal gyðinga og enskumælandi þjóða.
- MirjamStúlkaSamþykkt2 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent og á rætur að rekja til Biblíunnar. Hebresk mynd þess er „Mirjām“ en svo hét systir Móse og Arons samkvæmt Fjórðu Mósebók. Uppruni er ekki viss en þar sem nöfn Móse og Arons eru talin af egypskum rótum er líklegt að nafn systur þeirra sé það einnig.
- LilithStúlkaSamþykkt9. sep 20212 atkv.5 sem fyrsta nafn
Samkvæmt miðaldatrú var „Lilith“ nafn á konu Adams sem hann átti á undan Evu. Sagt er að henni hafi verið breytt í næturpúka þegar hún vildi ekki hlýðnast Adam. Í Biblíunni er „Lilith“ aðeins nefnd í Jesaja (34:14) í upptalningu á ýmsum skepnum.
- TamarStúlkaSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn
Nafnið er hebreskt að uppruna, leitt af nafnorðinu „tāmār“ sem merkir „döðlupálmi“. Það er sótt til Biblíunnar þar sem þrjár konur bera þetta nafn, þar á meðal dóttir Davíðs í Síðari Samúelsbók og tengdadóttir Júda í Fyrstu Mósebók. Einnig nefndi Absalon dóttur sína Tamar.
- ChloéStúlkaSamþykkt9. mar 20232 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið er grískt að uppruna og þekkist í Nýja testamentinu í íslenskri þýðingu í myndinni „Klóe“ (1. Kor. 1:11).
- JóannaStúlkaSamþykkt3. maí 20053 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Lúkasarguðspjalli en Jóhanna var ein af þeim er fylgdu Jesú. Gríska nafnið var „Iōanna“, lagað að karlmannsnafninu „Ioannes“ (sjá Jóhannes). Vinsældir Jóhönnu af Örk (Jeanne d'Arc) áttu mikinn þátt í útbreiðslu nafnsins í Frakklandi á 15. öld og sögur um hana bárust um alla Mið-Evrópu.
- NaomíStúlkaSamþykkt3 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið má rekja til Rutarbókar Gamla testamentisins, þar sem Naómí segir: „Kallið mig ekki Naómí, kallið mig Mara, því að hinn Almáttki hefir búið mér beiska harma“. Naómí merkir „hin yndislega“, en Mara „hin beiska“.
- AbigaelStúlkaSamþykkt6. feb 20094 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Fyrri Samúelsbók í Gamla testamentinu en svo hét eiginkona Nabals sem síðar varð kona Davíðs konungs. Nafnið er hebreskt að uppruna, „Abigajil“, og talið merkja „föðurgleði“ eða „faðirinn gleðst“. Nafnið þekkist einnig í Danmörku og Noregi frá því á 18. öld.
- JúditStúlkaSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn
Júdit er biblíunafn sem kemur fyrir í Fyrstu Mósebók og í Júditarbók, einni af apókrýfu bókum Biblíunnar. Hebreska nafnið „Jehūdīth“ er talið merkja „kona frá Júdeu“.
- NaómíStúlkaSamþykkt3 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið má rekja til Rutarbókar Gamla testamentisins, þar sem Naómí segir: „Kallið mig ekki Naómí, kallið mig Mara, því að hinn Almáttki hefir búið mér beiska harma“. Naómí merkir „hin yndislega“, en Mara „hin beiska“.
- AtalíaStúlkaSamþykkt14. maí 20094 atkv.2 sem fyrsta nafn
Atalía var móðir Ahasía Júdakonungs samkvæmt Annarri konungabók Gamla testamentisins. Nafnið mun merkja „Drottinn hefur kunngert tign sína“.
- SúsanStúlkaSamþykkt4. apr 20112 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Nýja testamentinu í Lúkasarguðspjalli. Það er hebreskt að uppruna, „Shoshana“, myndað af nafnorðinu „shoshan“ sem merkir „lilja“. Í einni af apókrýfu bókum Biblíunnar er sagt frá Súsönnu konu Jóakims sem ranglega var dæmd til dauða en Daníel kom henni til hjálpar og sannaði sakleysi hennar. Þessi sögn var mjög vinsæl á miðöldum og birtist víða í málverkum, sem stuðlaði mjög að útbreiðslu nafnsins víða um Evrópu.
- DebóraStúlkaSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið á rætur að rekja til Dómarabókar Biblíunnar þar sem sagt er frá Debóru, spákonu og dómara, sem leiddi Ísraelsmenn til sigurs yfir Kanaanítum. Það er leitt af hebreska orðinu „deborah“ sem merkir „býfluga“. Nafnið þekkist í Noregi og Danmörku, auk þýskumælandi landa og Ítalíu, en er algengast meðal gyðinga og enskumælandi þjóða.
- EðnaStúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Úr írsku, eða hebresku. Eðna eða Edna heitir ein persóna Tóbíasarbókar. Merking ókunn.
- MyríamStúlkaSamþykkt10. ágú 20223 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent og víða notað. Það á rætur að rekja til Biblíunnar en hebresk mynd þess er „Mirjām“ og svo hét systir Móse og Arons samkvæmt Fjórðu Mósebók. Uppruni er ekki fullviss en þar sem nöfn Móse og Arons eru oftast talin af egypskum rótum er líklegt að nafn systur þeirra sé það einnig.
- SaaraStúlkaSamþykkt6. ágú 20213 atkv.1 sem fyrsta nafn
Sarah er ritmynd af biblíunafninu Sara. Svo hét kona Abrahams og móðir Jakobs samkvæmt Fyrstu Mósebók. Hún hét fyrst „Saraí“, „hin þrætugjarna“, en Guð sagði Abraham að nefna hana „Söru“, en það nafn mun merkja „hefðarkona, prinsessa“. Sarah er vel þekkt nafn á Englandi.
- SefaníaStúlkaSamþykkt17. des 20104 atkv.1 sem fyrsta nafn
Uppruni er óviss en ef til vill er um að ræða kvenkynsmynd af nafninu „Sefanías“ sem er hebreskt og merkir „Drottinn hefur falið“. Sefanía var prestur og spámaður samkvæmt Gamla testamentinu.
- TalithaStúlkaSamþykkt4. maí 20233 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er hebreskt og sagt merkja „stúlka, barn“. Það er sótt til Markúsarguðspjalls þar sem Kristur tekur um hönd lítillar stúlku og segir: „Talíþa kúm!“ sem þýðir: „Stúlka litla, ég segi þér, rís upp!“
- TirsaStúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er notað í ensku- og þýskumælandi löndum, ritað „Tirza“, „Thirza“ og „Tirzah“. Það á rætur í Biblíunni en Tirsa var höfuðborg Samaríu á dögum Jeróbóams samkvæmt Fyrri Konungabók. Að baki liggur hebreska orðið „trsā“ sem merkir „yndisþokki, fegurð; sæla“.
- BetaníaStúlkaSamþykkt15. apr 20054 atkv.
Nafnið er erlent og m.a. vinsælt meðal rómversk-kaþólskra. „Bethany“ er vel þekkt í enskumælandi löndum og hefur borist þaðan til Þýskalands. Nafnið er rakið til örnefnisins „Betanía“ sem samkvæmt Nýja testamentinu var borg nærri Jerúsalem þar sem Marta, María og Lasarus bjuggu og Jesús dvaldist vikuna fyrir krossfestingu.
- SálStúlkaSamþykkt14. ágú 20181 atkv.
Ekki er gott að segja hvert nafnið er sótt. Þekktur er Sál, fyrsti konungur Ísraelsríkis, sem einkum er sagt frá í Síðari Samúelsbók í Gamla testamentinu, og Sál í Postulasögu Nýja testamentisins en það nafn var hið gyðinglega nafn Páls postula. Orðið „sál“ í íslensku merkir „andi, önd, lund, hugur“.
- SúlamítStúlkaSamþykkt5. des 20143 atkv.
Nafnið er hebreskt að uppruna og er nafn brúðarinnar í Ljóðaljóðum Gamla testamentisins. Það er leitt af hebreska orðinu „šūlamīt“ sem merkir „stúlka frá Sulem“.
Drengjanöfn
- AronDrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn
Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.
- PéturDrengurSamþykkt2 atkv.1.338 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, er komið af gríska nafninu "Pétros" sem merkir klettur. (Sjá Jóhannesarguðspjall 1:42)
- GuðjónDrengurSamþykkt2 atkv.1.085 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur. Sumir telja það vera komið af hebreska nafninu "Gideon" sem merkir sá sem mer/særir sári eða brýtur, sá sem eyðir.
- DavíðDrengurSamþykkt2 atkv.1.025 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr hebresku og biblíunni og merkir hinn elskaði.
- TómasDrengurSamþykkt2 atkv.1.018 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, frá Tómasi sem var einn af lærisveinum Jesú. Þaðan kom nafnið úr grísku þar sem það merkir tvíburi.
- PállDrengurSamþykkt1 atkv.946 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn, fengið af lýsingarorðinu "paulus" sem merkir lítill.
- JóhannesDrengurSamþykkt3 atkv.833 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni af nafninu "Jochanan" sem merkir Drottinn er náðugur.
- JónasDrengurSamþykkt2 atkv.679 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "Yonah" sem merkir dúfa.
- AdamDrengurSamþykkt2 atkv.678 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn úr hebresku og táknar bæði mann og jörð.
- MikaelDrengurSamþykkt3 atkv.621 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni, komið af nafninu "Mika'el" sem merkir hver er sem guð? Mikael erkiengill er af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverk guðs.
- MatthíasDrengurSamþykkt3 atkv.612 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, af hebreska nafninu "Mattathiha" sem merkir gjöf guðs.
- JakobDrengurSamþykkt2 atkv.610 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni, af hebreska nafninu "Yaakov" sem merkir sá sem heldur um hælinn.
- ÓmarDrengurSamþykkt2 atkv.583 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er ungt í íslensku, berst hingað til lands á þriðja áratug síðustu aldar. Nafnið kemur fyrir í biblíunni en er talið rekja uppruna sinn til arabísku.
- GabríelDrengurSamþykkt3 atkv.513 sem fyrsta nafn
Nafen þetta er biblíunafn komið úr hebresku og merkir hetja guðs. Gabríel er einn helsti af englum guðs og af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverkið.
- ElíasDrengurSamþykkt3 atkv.495 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn, grísk mynd hebreska orðsins "elijah" sem merkir Jahve er minn guð.
- BenjamínDrengurSamþykkt3 atkv.321 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr biblíunni og er nafn á forföður einna af tólf ættkvíslum Ísraels. Nafnið er talið þýða gæfusonur, - hamingjusonur.
- AndrésDrengurSamþykkt2 atkv.266 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr biblíunni þar sem það er skifað Andréas og er talið merkja hugrakkur eða karlmannlegur.
- BaltasarDrengurSamþykkt3 atkv.255 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upphaflega komið úr biblíunni, nánar tiltekið frá konunginum Belshazzar en það nafn merkir "Baal verndi konunginn". Sumir hafa útfært merkingu nafnsins yfir í "verndaður af guði"
- SímonDrengurSamþykkt2 atkv.193 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "Scimeon" sem merkir bænheyrsla.
- SamúelDrengurSamþykkt3 atkv.173 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr biblíunni og er fengið af hebreska orðinu "schmuel" sem merkir guð hefur bænheyrt.
- MichaelDrengurSamþykkt3 atkv.170 sem fyrsta nafn
Michael er ensk og þýsk mynd nafns sem er sótt í Biblíuna og er hebreskt að uppruna, „Mika'el“, og merkir „hver er sem Guð?“. Mikael er nefndur sem verndarengill Ísraels bæði í Gamla og Nýja testamentinu, kenndur við Mikjálsmessu 29. september, og einnig eru nokkrir menn nefndir Mikael í Fyrri og Síðari Kroníkubók. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld.
- JóelDrengurSamþykkt2 atkv.140 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og er samsett af hebresku orðunum "yah" sem merkir guð og "el" sem merkir guð" Eiginleg merking nafnsins er Jahve er guð.
- JónatanDrengurSamþykkt3 atkv.116 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og merkir Guð hefur gefið.
- ThomasDrengurSamþykkt2 atkv.115 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega hebreskt, „thomas“, leitt af arameísku viðurnefni „te'omā“ sem merkir „tvíburi“. Það sótti vinsældir sínar til Biblíunnar en Tómas var einn af lærisveinum Jesú og er þar nefndur „tvíburi“ í Jóhannesarguðspjalli. Kirkjufaðirinn Tómas af Aquino átti þátt í vinsældum nafnsins á 13. öld en enn meiri áhrif hafði Tómas frá Becket, erkibiskup sem tekinn var af lífi í dómkirkjunni í Kantaraborg á 12. öld og um hann var ort Tómas diktur erkibiskups og rituð Tómas saga erkibiskups. Nafnið hefur verið algengt á Norðurlöndum frá 12. öld og er einnig gamalt í ensku- og þýskumælandi löndum.
- NóiDrengurSamþykkt2 atkv.114 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni, af hebreska orðinu "nwh" sem ýmist er talið merkja hvíld eða langlífi.
- AndreiDrengurSamþykkt2. okt 20232 atkv.97 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til Biblíunnar og er rússnesk mynd nafnsins Andrés/Andreas. Það er ættað frá gríska nafninu „Andréās“, gælunafn eða stytting af nöfnum sem hófust á „Andro-“, sem urðu til við samruna nafnorðsins „anér“ (í eignarfalli „andrós“) sem merkir maður, og lýsingarorðsins „andreīos“ sem merkir karlmannlegur, hugrakkur. Nafnið hefur tíðkast á Norðurlöndum frá 12. öld í ýmsum myndum, meðal annars Anders og Andreas.
- StefanDrengurSamþykkt2 atkv.95 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið úr grísku „Stéphanos“ sem myndað er af nafnorðinu „stéphanos“ er merkir kóróna, höfuðsveigur. Nafnið er alþekkt á Norðurlöndum frá 12. öld, meðal annars sem danskar og sænskar myndir „Stefan“. Einn fyrsti píslarvottur kristinnar trúar hét Stefán og segir frá honum í Postulasögu Nýja testamentisins.
- JósefDrengurSamþykkt2 atkv.82 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "Yosef" sem merkir megi Guð auka við öðrum syni.
- PeterDrengurSamþykkt2 atkv.67 sem fyrsta nafn
Nafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“
- BenjaminDrengurSamþykkt9. mar 20233 atkv.63 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið úr Gamla testamentinu. „Benjamín“ var yngstur tólf sona Jakobs og einn af forfeðrum ættkvísla Ísraels. Rakel móðir hans dó við fæðingu hans og nefndi hann á dánarstundinni „Benoni“, „minn hryggðarsonur“, en faðirinn vildi ekki að hann bæri slíkt álaganafn og nefndi hann þess í stað „Benyamin“ samkvæmt Fyrstu Mósebók. Það merkir annaðhvort „gæfusonur“ eða líklegar „sonurinn úr suðri, þ.e. sonur hamingjulandsins“, þar sem hebreska orðið „yamin“ getur merkt „suður“ og Benjamín var eina barn Jakobs sem fæddist í Kanaan en ekki í Mesópótamíu. Önnur skýring telur nafnið dregið af merkingu orðsins „yamin“ sem „ár“ eða „árafjöldi“ og að það merki „sonur elli minnar“, með vísan til þess að hann var yngstur sona Jakobs, en sú skýring er ekki talin sennileg. Á miðöldum var nafnið oft gefið sonum mæðra sem dóu af barnsförum.
- BóasDrengurSamþykkt2 atkv.56 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn, upprunnið úr hebresku og merkir hraði, - kraftur.
- MiguelDrengurSamþykkt30. nóv 20223 atkv.56 sem fyrsta nafn
Michael er ensk og þýsk mynd nafns sem er sótt í Biblíuna og er hebreskt að uppruna, „Mika'el“, og merkir „hver er sem Guð?“. Mikael er nefndur sem verndarengill Ísraels bæði í Gamla og Nýja testamentinu, kenndur við Mikjálsmessu 29. september, og einnig eru nokkrir menn nefndir Mikael í Fyrri og Síðari Kroníkubók. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld.
- OmarDrengurSamþykkt23. jan 20252 atkv.52 sem fyrsta nafn
Omar er arabískt karlmannsnafn (عمر, Umar), dregið af rótinni „ʿamara“. Nákvæm merking er á reiki en er gjarnan tengd „löngu lífi“ eða „blóma“. Nafnið kemur einnig fyrir sem biblíunafn af hebreskum rótum.
- BenónýDrengurSamþykkt3 atkv.37 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Fyrstu Mósebók og er talið merkja „minn hryggðarsonur“, en „ben“ í hebresku merkir „sonur“. Benóní var sonur Rakelar og gaf hún honum þetta nafn vegna þess hve fæðing hans reyndist henni erfið. Jakob breytti nafninu í Benjamín, „sonur suðurlandsins, þ.e. hamingjulandsins“.
- AaronDrengurSamþykkt26. ágú 20133 atkv.36 sem fyrsta nafn
Aron er biblíunafn og hét svo bróðir Móses sem Guð útnefndi talsmann hans; hann varð síðar fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en trúlega er það fremur af egypskum en hebreskum uppruna. Sú hefðbundna skýring að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“, „hinn sterki“, er líklega alþýðuskýring. Nafnið samsvarar arabíska nafninu „Harun“ og er vel þekkt meðal gyðinga. Í ensku og þýsku er „Aaron“ algengasta mynd nafnsins en í Norðurlandamálunum „Aron“; það þekkist í Danmörku frá 13. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 14. öld. Á Íslandi var nafnið líklega tekið upp á 12. öld og kemur m.a. fram í Sturlungu, þar sem sagt er frá Aroni Bárðarsyni í Selárdal og Aroni Halldórssyni í Ögri. Ritmyndin „Aaron“ var samþykkt á mannanafnaskrá árið 2013.
- ElíDrengurSamþykkt2 atkv.35 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr biblíunni og merkir hinn æðsti, - guð minn. Er Jesú var á krossinum hrópaði hann Elí, Elí, lama sabaktaní!" Það þýðir: "Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?"
- EnokDrengurSamþykkt2 atkv.33 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn, mynd af hebreska nafninu "Chanok" sem þýðir hinn vígði. Chanok var sonur Kains sem aftur var sonur Adams.
- JoshuaDrengurSamþykkt10. ágú 20053 atkv.33 sem fyrsta nafn
Nafnmyndin Joshua er af nafninu Jósúa sem er fengið úr Gamla testamentinu. Jósúa var eftirmaður Móse og foringi Ísraelsmanna. Nafnið er hebreskt að uppruna, „yehōsūa“, sem merkir „Guð (Jahve) hjálpar“.
- JosephDrengurSamþykkt1. júl 20212 atkv.32 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt í Nýja testamentið en faðir Jesú og eiginmaður Maríu hét Jósef. Það er hebreskt að uppruna, „Yosef“, og merkir „megi Guð (Jehova) auka (við öðrum syni)“. „Joseph“ er ensk og frönsk mynd nafnsins, en meðal annarra hliðarmynda eru „Josef“, „Jos“, „Josi“, „Jupp“, „Sepp“, ítalska „Giuseppe“ og spænska/portúgalska „José“.
- EliasDrengurSamþykkt20. jún 20223 atkv.30 sem fyrsta nafn
Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum síðan á 12. öld. Í Noregi og Svíþjóð tíðkaðist einnig ritmyndin „Elis“ og var „Elias“ jafnframt notað í Svíþjóð sem lærð eða fínni nafnmynd fyrir „Helge“. Nafnið er einnig notað í Þýskalandi og Ameríku en á Englandi og í Finnlandi er notuð nafnmyndin „Ellis“. Nafnið á rætur að rekja til Biblíunnar, sbr. „Elía“, sem er grísk mynd af hebreska orðinu „Elijāh“ er merkir „Jahve er minn Guð“.
- NathanDrengurSamþykkt9. apr 20142 atkv.28 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er hebreskt að uppruna, kemur úr biblíunni og merkir Guð hefur gefið.
- JóakimDrengurSamþykkt3 atkv.25 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "Jehoiachin" sem merkir Drottinn upphefji.
- NoahDrengurSamþykkt21. apr 20212 atkv.24 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til Biblíunnar og er af hebreskum toga, „Nōah“, af „nwh“ sem merkir „hvíla sig“. Sumir telja það merkja „hvíld“, aðrir að það merki „langlífi“. Í Fyrstu Mósebók Gamla testamentisins segir frá Nóa og örkinni sem hann og synir hans smíðuðu að boði Guðs til að bjarga sér og dýrum jarðarinnar úr syndaflóðinu.
- MattíasDrengurSamþykkt28. maí 20043 atkv.22 sem fyrsta nafn
Mattheó er ítölsk mynd nafnsins Matthías. Nafnið er upphaflega sótt til Nýja testamentisins og er hebreskt að uppruna, „mattityah“, sem merkir „gjöf Guðs“, sbr. grísku „Matthías“ og latínu „Matthiās“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá miðöldum og er einnig notað á Englandi og í Þýskalandi, meðal annars sem „Matthew“ á ensku og „Matthias“ á þýsku.
- AndresDrengurSamþykkt17. ágú 20202 atkv.19 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til Biblíunnar og er rússnesk mynd nafnsins Andrés/Andreas. Það er ættað frá gríska nafninu „Andréās“, gælunafn eða stytting af nöfnum sem hófust á „Andro-“, sem urðu til við samruna nafnorðsins „anér“ (í eignarfalli „andrós“) sem merkir maður, og lýsingarorðsins „andreīos“ sem merkir karlmannlegur, hugrakkur. Nafnið hefur tíðkast á Norðurlöndum frá 12. öld í ýmsum myndum, meðal annars Anders og Andreas.
- BenonýDrengurSamþykkt3 atkv.19 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr biblíunni og er talið merkja hryggðarsonur. Rakel gaf Benjamín, einum af forfeðrum hinna tólf ættkvísla Ísraels þetta nafn eftir erfiðan barnsburð en Jakob faðir hans breytti því síðar í Benjamín.
- MatteoDrengurSamþykkt31. ágú 20263 atkv.18 sem fyrsta nafn
Ítölsk mynd nafnsins Matthías, sem er biblíunafn af hebreska nafninu „Mattityahu“ og merkir „gjöf guðs“.
- IsmaelDrengurSamþykkt22. des 20103 atkv.17 sem fyrsta nafn
Ismael er hebreskt nafn sem merkir „Guð bænheyrir“. Ísmael er nafn á tveimur mönnum í Biblíunni. Annar var sonur Abrahams og Hagar samkvæmt 1Mós., en hinn var herforingi sem drap Gedalja landstjóra í Júda samkvæmt Jeremía.
- JafetDrengurSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt í Biblíuna en Jafet hét sonur Nóa, en niðjar hans voru taldir hafa byggt Evrópu og Norður-Asíu. Nafnið er ættað úr hebresku „Iepheth“, grísku „Iapheth“ og latínu „Japheth“ í merkingunni „stækkun, útvíkkun“.
- EmanúelDrengurSamþykkt4 atkv.16 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af gríska biblíunafninu "Immanuel" sem merkir Guð er með okkur.
- MarcusDrengurSamþykkt16. mar 20262 atkv.15 sem fyrsta nafn
Markús/Marcus er latneskt nafn sem merkir „sonur Mars“, leitt af nafni herguðsins Mars. Nafnið kemur fyrir í Landnámu, Sturlungu og fornbréfum frá 14. og 15. öld, og fyrsti íslenski nafnberinn sem vitað er um var Markús Skeggjason skáld og lögsögumaður. Markus þekkist á Norðurlöndum frá miðöldum og er einnig notað í enskumælandi og þýskumælandi löndum. Það er vel þekkt úr Nýja testamentinu sem heiti eins guðspjallamannsins. Meðal annarra mynda nafnsins má nefna ensku Mark eða Marcus, þýsku Markus, frönsku Marc, ítölsku og spænsku Marco/Marcos og finnsku Markku.
- SalómonDrengurSamþykkt3 atkv.15 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn, tekið af hebreska orðinu "shalom" sem þýðir friður.
- AbrahamDrengurSamþykkt3 atkv.14 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og merkir faðir margra, - faðir margra þjóða. (Gen. 17:5)
- LevíDrengurSamþykkt2 atkv.14 sem fyrsta nafn
Nafnið er fengið úr Gamla testamentinu og merkir „sá sem er hændur að“. Lea gaf þriðja syni sínum þetta nafn þar sem hún taldi að bóndi sinn myndi þá hænast að sér.
- RúbenDrengurSamþykkt2 atkv.13 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til Biblíunnar og er hebreskt. Jakob og Lea skírðu son sinn þessu nafni samkvæmt Fyrstu Mósebók (29.32) Gamla testamentisins og frá honum voru Rúbenítar komnir. Það er talið merkja „sjá, sonur!“. Nafnið er notað í enskumælandi löndum sem hliðarmynd af „Reuben“.
- AbelDrengurSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af hebreska nafninu "Hevel" sem merkir andardráttur. Skv. biblíunni var Abel annar sonur Adams og Evu.
- IsakDrengurSamþykkt22. mar 20222 atkv.11 sem fyrsta nafn
Ísak er sótt til Biblíunnar en svo hét sonur Abrahams og Söru og faðir Esaú og Jakobs. Nafnið er af hebreskum uppruna, leitt af sögn sem merkir að „hlæja“. Nafnið merkir þá eiginlega „hann (þ.e. Guð) mun hlæja“ eða „megi Guð hlæja“. Ritmyndin „Isak“ hefur verið notuð um öll Norðurlönd um aldir, þekkist í Noregi og Danmörku frá 12. öld en í Svíþjóð frá lokum 13. aldar. Nafnið er einnig notað á Englandi ritað „Isaac“ og í Þýskalandi ritað „Isaak“ og „Isaac“.
- TóbíasDrengurSamþykkt3 atkv.11 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, frá hebreska nafninu "Tobiah" sem merkir Guð er góður.
- PerDrengurSamþykkt1 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“
- MatteóDrengurSamþykkt24. jún 20213 atkv.9 sem fyrsta nafn
Mattheó er ítölsk mynd nafnsins Matthías. Nafnið er upphaflega sótt til Nýja testamentisins og er hebreskt að uppruna, „mattityah“, sem merkir „gjöf Guðs“, sbr. grísku „Matthías“ og latínu „Matthiās“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá miðöldum og er einnig notað á Englandi og í Þýskalandi, meðal annars sem „Matthew“ á ensku og „Matthias“ á þýsku.
- ZacharyDrengurSamþykkt5. jan 20233 atkv.9 sem fyrsta nafn
Þetta er enskt afbrigði nafnsins sem er fengið úr Biblíunni, komið um grísku „Zacharius“ úr hebresku „Zecharia“, þ.e. „zekhare jahu“, „sekar’jahu“, sem merkir „Guð hefur munað eftir“. Í Biblíunni er hefð fyrir rithættinum „Sakaría“ og svo hét faðir Jóhannesar skírara. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá 14. öld, ritað „Sakarias“ eða „Zacharias“, en einnig í Þýskalandi sem „Zacharias“.
- AdríelDrengurSamþykkt3 atkv.8 sem fyrsta nafn
Nafnið er hebreskt að uppruna og kemur meðal annars fyrir í Fyrri Samúelsbók sem nafn á tengdasyni Sáls og í Síðari Samúelsbók. Það er talið merkja „Guð er herra minn“.
- EsraDrengurSamþykkt2 atkv.8 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er úr biblíunni og samsvarar hebreska orðinu "ezerah" sem merkir hjálp.
- KalebDrengurSamþykkt2 atkv.8 sem fyrsta nafn
Nafnið er hebreskt að uppruna, „Kaleb“, sem leitt er af orði sem merkir „hundur“. Kaleb er biblíunafn, nefnt á ýmsum stöðum í Gamla og Nýja testamentinu. Ef til vill hefur ritverkið „Ísfólkið“ haft einhver áhrif á nafngiftirnar.
- MikkelDrengurSamþykkt28. feb 20092 atkv.8 sem fyrsta nafn
Michael er ensk og þýsk mynd nafns sem er sótt í Biblíuna og er hebreskt að uppruna, „Mika'el“, og merkir „hver er sem Guð?“. Mikael er nefndur sem verndarengill Ísraels bæði í Gamla og Nýja testamentinu, kenndur við Mikjálsmessu 29. september, og einnig eru nokkrir menn nefndir Mikael í Fyrri og Síðari Kroníkubók. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld.
- NataníelDrengurSamþykkt10. ágú 20054 atkv.8 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til Jóhannesarguðspjalls og er upphaflega ættað úr hebresku. Það merkir „Guð hefur gefið“ og er skylt nafninu „Natan“. Ritháttur nafnsins hefur verið á reiki, ýmist ritað með „-t-“ eða „-th-“, og nafnmyndirnar Natanael, Nataníel og Nathaníel eru allar á mannanafnaskrá.
- BaltazarDrengurSamþykkt25. apr 20223 atkv.7 sem fyrsta nafn
Nafnið barst hingað frá Spáni á síðari hluta 20. aldar en er upprunalega komið frá grísk-latínu „Baltásar“ sem á rætur að rekja til hebresku „Belshazzar“. Það er talið vísa bæði til babýloníska konungsnafnsins „Belsasar“, merking „megi Baal verja líf hans“, og „Beltsasar“, merking „verndið líf konungsins“, en það nafn fékk spámaðurinn Daníel í Babýlon samkvæmt Gamla testamentinu. Nafnið er einnig eignað einum vitringanna þriggja frá Austurlöndum sem samkvæmt Nýja testamentinu færðu Jesúbarninu gjafir, en í miðaldaheimildum er einn þeirra nefndur „Baltasar“.
- EzraDrengurSamþykkt2. okt 20232 atkv.7 sem fyrsta nafn
Esra er nafn á einum af spámönnum Biblíunnar, sbr. Esrabók Gamla testamentisins, komið af hebresku „ezerah“ sem merkir „hjálp“. Nafnið þekkist í Danmörku og Þýskalandi.
- AranDrengurSamþykkt17. des 20092 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er hebreskt að uppruna og merkir „villigeit“. Aran var sonur Dísans samkvæmt 1. Mósebók 36:28.
- ÍsmaelDrengurSamþykkt3 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er hebreskt að uppruna. Sonur Abrahams og Hagar hét „Ísmael“ samkvæmt Fyrstu Mósebók, og það er talið merkja „Guð hlustar“.
- JósúaDrengurSamþykkt3 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "Josehue" sem merkir Guð hjálpar.
- ZionDrengurSamþykkt12. okt 20212 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er hebreskt að uppruna og stendur fyrir „Ísrael“. Í Biblíunni táknar það „Jerúsalem“.
- NathanaelDrengurSamþykkt13. jan 20174 atkv.5 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til Jóhannesarguðspjalls og er upphaflega ættað úr hebresku. Það merkir „Guð hefur gefið“ og er skylt nafninu „Natan“. Ritháttur nafnsins hefur verið á reiki, ýmist ritað með „-t-“ eða „-th-“, og nafnmyndirnar Natanael, Nataníel og Nathaníel eru allar á mannanafnaskrá.
- SamsonDrengurSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni og er leitt af hebreska orðinu "shemesh" sem þýðir sól.
- ElíeserDrengurSamþykkt4 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn, komið af hebreska orðinu "Eleasar" sem merkir Guð er hjálp.
- MatheoDrengurSamþykkt26. jan 20223 atkv.4 sem fyrsta nafn
Mattheó er ítölsk mynd nafnsins Matthías. Nafnið er upphaflega sótt til Nýja testamentisins og er hebreskt að uppruna, „mattityah“, sem merkir „gjöf Guðs“, sbr. grísku „Matthías“ og latínu „Matthiās“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá miðöldum og er einnig notað á Englandi og í Þýskalandi, meðal annars sem „Matthew“ á ensku og „Matthias“ á þýsku.
- MósesDrengurSamþykkt2 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni, af hebreska orðinu "moscheh" sem merkir egypskt barn, - sá sem bjargað var úr vatninu.
- NatanaelDrengurSamþykkt4 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til Jóhannesarguðspjalls og er upphaflega ættað úr hebresku. Það merkir „Guð hefur gefið“ og er skylt nafninu „Natan“. Ritháttur nafnsins hefur verið á reiki, ýmist ritað með „-t-“ eða „-th-“, og nafnmyndirnar Natanael, Nataníel og Nathaníel eru allar á mannanafnaskrá.
- EmmanúelDrengurSamþykkt4. nóv 20094 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið úr Jesajabók Gamla testamentisins og er grísk-latnesk hliðarmynd af hebreska nafninu „Immanuel“ sem merkir „Guð er með oss“. Nafnið er notað á Norðurlöndum, í Þýskalandi og á Englandi.
- ÍsraelDrengurSamþykkt23. des 20093 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið var upphaflega viðurnefni Jakobs, sonar Ísaks og Rebekku, í merkingunni „berst fyrir Guð“. Síðar varð „Ísrael“ notað sem nafn á söfnuði gyðinga eftir herleiðinguna til Babýlon. Nafnið er einkum notað meðal gyðinga en þekkist þó meðal enskumælandi þjóða og á Norðurlöndum.
- MetúsalemDrengurSamþykkt4 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og er ýmist talið merkja sendiboði eða ör dauðans.
- BetúelDrengurSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Fyrri Kroníkubók Gamla testamentisins og er af hebreskum uppruna. Merking þess er óviss en því hefur verið líkt við eiginnafnið „Bethel“ í ensku. „Betel“ var helgistaður syðst í Norðurríkinu og merkir „hús Guðs“, af hebresku „beth“ sem merkir „hús“.
- EstefanDrengurSamþykkt18. mar 20053 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið úr grísku „Stéphanos“ sem myndað er af nafnorðinu „stéphanos“ er merkir kóróna, höfuðsveigur. Nafnið er alþekkt á Norðurlöndum frá 12. öld, meðal annars sem danskar og sænskar myndir „Stefan“. Einn fyrsti píslarvottur kristinnar trúar hét Stefán og segir frá honum í Postulasögu Nýja testamentisins.
- GamalíelDrengurSamþykkt4 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er hebreskt biblíunafn og merkir endurgjald Guðs, - laun Guðs.
- GídeonDrengurSamþykkt6. mar 20073 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er hebreskt, fengið úr Dómarabók Gamla testamentisins, og merkir „sá sem heggur“. Gídeon var dómari í Ísrael fyrir konungatímann. Nafnið hefur verið notað víða um Evrópu, m.a. í Svíþjóð frá 16. öld, og var vinsælt á Englandi á 17. öld meðal hreintrúarmanna.
- HóseasDrengurSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til Biblíunnar en Hósea var spámaður sem ein af spámannabókum Gamla testamentisins er kennd við. Nafnið er hebreskt að uppruna og talið merkja „Guð hjálpar“.
- ImmanúelDrengurSamþykkt4 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr hebresku þar sem það merkir "guð er með oss". Var þetta nafn notað um krist er spáð var fyrir um fæðingu hans í gamla testamentinu (Jesaja 7:14).
- JósafatDrengurSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska orðinu "jehu'schafat" sem merkir Drottinn hefur dæmt.
- LevýDrengurSamþykkt20. mar 20182 atkv.1 sem fyrsta nafn
Levý er hliðarmynd af hebreska nafninu Levi sem merkir „tengdur, samtengdur“; ættfaðir levítanna í Biblíunni.
- MathíasDrengurSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn
Mattheó er ítölsk mynd nafnsins Matthías. Nafnið er upphaflega sótt til Nýja testamentisins og er hebreskt að uppruna, „mattityah“, sem merkir „gjöf Guðs“, sbr. grísku „Matthías“ og latínu „Matthiās“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá miðöldum og er einnig notað á Englandi og í Þýskalandi, meðal annars sem „Matthew“ á ensku og „Matthias“ á þýsku.
- MattheóDrengurSamþykkt1. mar 20223 atkv.1 sem fyrsta nafn
Mattheó er ítölsk mynd nafnsins Matthías. Nafnið er upphaflega sótt til Nýja testamentisins og er hebreskt að uppruna, „mattityah“, sem merkir „gjöf Guðs“, sbr. grísku „Matthías“ og latínu „Matthiās“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá miðöldum og er einnig notað á Englandi og í Þýskalandi, meðal annars sem „Matthew“ á ensku og „Matthias“ á þýsku.
- MikkaelDrengurSamþykkt8. apr 20093 atkv.1 sem fyrsta nafn
Michael er ensk og þýsk mynd nafns sem er sótt í Biblíuna og er hebreskt að uppruna, „Mika'el“, og merkir „hver er sem Guð?“. Mikael er nefndur sem verndarengill Ísraels bæði í Gamla og Nýja testamentinu, kenndur við Mikjálsmessu 29. september, og einnig eru nokkrir menn nefndir Mikael í Fyrri og Síðari Kroníkubók. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld.
- MordekaíDrengurSamþykkt7. ágú 20194 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt í „Esterarbók“ Biblíunnar. Sá var Gyðingur, fósturfaðir Esterar.
- NathaníelDrengurSamþykkt24. nóv 20204 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til Jóhannesarguðspjalls og er upphaflega ættað úr hebresku. Það merkir „Guð hefur gefið“ og er skylt nafninu „Natan“. Ritháttur nafnsins hefur verið á reiki, ýmist ritað með „-t-“ eða „-th-“, og nafnmyndirnar Natanael, Nataníel og Nathaníel eru allar á mannanafnaskrá.
- NikanorDrengurSamþykkt5. des 20073 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er notað í spænsku- og enskumælandi löndum og upphaflega tekið að láni úr grísku „Nikanōr“. Það er líklega hliðarmynd við „Nikandēr“ sem sett er saman af liðunum „nikē“ „sigur“ og „aner“ „maður“ (í eignarfalli „andros“). Níkanor er nefndur í Postulasögu Nýja testamentisins (6.5).
- PetterDrengurSamþykkt26. jún 20182 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“
- SakaríasDrengurSamþykkt4 atkv.1 sem fyrsta nafn
Þetta er enskt afbrigði nafnsins sem er fengið úr Biblíunni, komið um grísku „Zacharius“ úr hebresku „Zecharia“, þ.e. „zekhare jahu“, „sekar’jahu“, sem merkir „Guð hefur munað eftir“. Í Biblíunni er hefð fyrir rithættinum „Sakaría“ og svo hét faðir Jóhannesar skírara. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá 14. öld, ritað „Sakarias“ eða „Zacharias“, en einnig í Þýskalandi sem „Zacharias“.
- ZakaríaDrengurSamþykkt4 atkv.1 sem fyrsta nafn
Þetta er enskt afbrigði nafnsins sem er fengið úr Biblíunni, komið um grísku „Zacharius“ úr hebresku „Zecharia“, þ.e. „zekhare jahu“, „sekar’jahu“, sem merkir „Guð hefur munað eftir“. Í Biblíunni er hefð fyrir rithættinum „Sakaría“ og svo hét faðir Jóhannesar skírara. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá 14. öld, ritað „Sakarias“ eða „Zacharias“, en einnig í Þýskalandi sem „Zacharias“.
- ZakaríasDrengurSamþykkt4 atkv.1 sem fyrsta nafn
Þetta er enskt afbrigði nafnsins sem er fengið úr Biblíunni, komið um grísku „Zacharius“ úr hebresku „Zecharia“, þ.e. „zekhare jahu“, „sekar’jahu“, sem merkir „Guð hefur munað eftir“. Í Biblíunni er hefð fyrir rithættinum „Sakaría“ og svo hét faðir Jóhannesar skírara. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá 14. öld, ritað „Sakarias“ eða „Zacharias“, en einnig í Þýskalandi sem „Zacharias“.
- AsaelDrengurSamþykkt23. jan 20083 atkv.
Líklega er hér um sama nafn að ræða og „Asahel“ sem merkir „Guð hefur skapað“ og kemur fyrir í Síðari Samúelsbók Gamla testamentisins.
- EfraímDrengurSamþykkt3 atkv.
Efraím var samkvæmt Biblíunni einn af sonum Jósefs og ættfaðir Efraímíta. Nafnið er hebreskt og talið merkja „frjósamur“. Í fyrstu Mósebók gefur Jósef þessa skýringu á nafninu: En hinn nefndi hann Efraím, „því að Guð hefur gert mig frjósaman í landi eymdar minnar“.
- HíramDrengurSamþykkt2 atkv.
Nafnið er sótt í Fyrri Konungabók í Gamla testamentinu. „Híram“ var konungur í Týrus á dögum Salómons. Uppruni nafnsins er ekki ljós, en það gæti verið fönikískt af semitískum uppruna. Einnig gæti það verið hebreskt og leitt af nafninu „Ahiram“ og merkt annaðhvort „ættgöfugur“ eða „upphafinn bróðir“. Nafnið var tekið upp af hreintrúarmönnum á Englandi á 17. öld en notkun þess var fljótlega hætt þar. Það er enn notað í Ameríku.
- JeremíasDrengurSamþykkt4 atkv.
Nafnið er sótt til Biblíunnar og er hebreskt að uppruna, „jirmejahu“, sem merkir „Guð mun frelsa“ eða „Guð mun upphefja“, sbr. grísku „Iēremaias“ og latínu „Jeremias“. Jeremía var einn af aðalspámönnum Gamla testamentisins og við hann er kennt eitt af meginritum testamentisins. Nafnið hefur verið notað í Danmörku og Svíþjóð frá 16. öld og er einnig vel þekkt í Þýskalandi og á Englandi í myndinni Jeremy.
- KaínDrengurSamþykkt19. okt 20202 atkv.
Samkvæmt 4. kafla Fyrstu Mósebókar voru Kaín og Abel synir Adams og Evu, og var Kaín sá eldri.
- MikjállDrengurSamþykkt2 atkv.
Michael er ensk og þýsk mynd nafns sem er sótt í Biblíuna og er hebreskt að uppruna, „Mika'el“, og merkir „hver er sem Guð?“. Mikael er nefndur sem verndarengill Ísraels bæði í Gamla og Nýja testamentinu, kenndur við Mikjálsmessu 29. september, og einnig eru nokkrir menn nefndir Mikael í Fyrri og Síðari Kroníkubók. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld.
- PedróDrengurSamþykkt11. ágú 20122 atkv.
Nafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“
- TímoteusDrengurSamþykkt18. mar 20054 atkv.
Nafnið er fengið úr Biblíunni en Tímóteus var einn af fylgdarmönnum Páls postula og er nefndur í Postulasögunni og í nokkrum bréfum Nýja testamentisins. Nafnið er komið um latínu „Timotheus“ úr grísku „Tímótheos“, samsett af „timaō“ „heiðra, tigna“ og „theós“ „guð“, og merkir eiginlega „vegsömun guðs“.
- TímóteusDrengurSamþykkt4 atkv.
Nafnið er fengið úr Biblíunni en Tímóteus var einn af fylgdarmönnum Páls postula og er nefndur í Postulasögunni og í nokkrum bréfum Nýja testamentisins. Nafnið er komið um latínu „Timotheus“ úr grísku „Tímótheos“, samsett af „timaō“ „heiðra, tigna“ og „theós“ „guð“, og merkir eiginlega „vegsömun guðs“.
Samsett nöfn
Nöfn þar sem einn hluti nafnsins tengist þemanu.
Stúlkunöfn
- KristínStúlkaSamþykkt2 atkv.3.331 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af latneska orðinu "christiana" sem merkir sú sem fylgir Kristi.
- AndreaStúlkaSamþykkt3 atkv.846 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er kvenmynd nafnsins Andreas sem aftur er norræn mynd nafnsins Andrés sem er biblíunafnið Andréas úr grísku og táknar hugrekki.
- JónínaStúlkaSamþykkt3 atkv.610 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu Jón og viðskeytinu "ína".
- KristrúnStúlkaSamþykkt2 atkv.390 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.
- KristbjörgStúlkaSamþykkt2 atkv.323 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp.
- JennýStúlkaSamþykkt2 atkv.255 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er enskt að uppruna og er gælumynd af nöfnunum "Jane, Jean".
- PálínaStúlkaSamþykkt3 atkv.171 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af latneska nafninu "Paulina" sem merkir Pála litla.
- GabríelaStúlkaSamþykkt4 atkv.108 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Gabríel sem er biblíunafn komið úr hebresku og merkir hetja guðs. Gabríel er einn helsti af englum guðs og af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverkið.
- JanaStúlkaSamþykkt2 atkv.105 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er stytting á nafninu "Kristjana" sem merkir sú sem fylgir Kristi.
- MíaStúlkaSamþykkt2 atkv.100 sem fyrsta nafn
Nafnið hefur borist til Íslands frá Norðurlöndum þar sem það var upphaflega gælunafn kvenna sem hétu „María“ en er nú notað sem sjálfstætt eiginnafn.
- MaryStúlkaSamþykkt2 atkv.66 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og leitt af „Maria“. Franska myndin „Marie“ varð í miðensku að „Mary“, sem er ritmynd nafnsins „María“.
- CarmenStúlkaSamþykkt2 atkv.63 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega spænskt, ummyndun á nafninu „Carmel“ sem komið er úr hebresku og merkir „garður, aldingarður“. María móðir Jesú var oft kennd við fjallið „Carmel“ og á nafnið „Carmen“ rætur að rekja til þess.
- KristaStúlkaSamþykkt2 atkv.43 sem fyrsta nafn
Nafnið er einkum notað sem stytting á nöfnum á borð við „Kristín“ og „Kristjana“. Skyld nafnmynd, „Christa“, sem samþykkt var á mannanafnaskrá 2014, er upphaflega stytting á þýska nafninu „Christiane“ en er nú notað víða í Evrópu sem sjálfstætt eiginnafn.
- MayaStúlkaSamþykkt7. ágú 20193 atkv.39 sem fyrsta nafn
Maya er ritmynd af „Maja“, sem er algengt gælunafn, einkum kvenna sem heita „María“. Uppruni þess er sennilega erlendur, en „Maja“ hefur verið notað sem eiginnafn í Svíþjóð og Danmörku frá því á 14. öld.
- JensínaStúlkaSamþykkt3 atkv.37 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af nafninu Jens með viðskeytinu "ína".
- KristineStúlkaSamþykkt3 atkv.37 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af latneska orðinu "christiana" sem merkir sú sem fylgir Kristi.
- DalíaStúlkaSamþykkt18. des 20033 atkv.36 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna, talið hebresk stytting á biblíunafninu „Gedalja“ sem var karlmannsnafn í merkingunni „Guð hefur gert mikið“. Það var síðan ummyndað í kvenmannsnafnið „Dalia“. Nafnið þekkist sem tökunafn í Þýskalandi.
- KristelStúlkaSamþykkt2 atkv.36 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna. Það er þýsk gælumynd af „Kristiane“ og „Krista“, sem tengjast „Kristjana“.
- MagdaStúlkaSamþykkt2 atkv.31 sem fyrsta nafn
Nafnið er stytting á nafninu „Magdalena“ og er vel þekkt í Þýskalandi.
- ManuelaStúlkaSamþykkt30. okt 20204 atkv.26 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr spænsku og er kvenmynd hebreska nafnsins Emmanuel sem merkir Guð er með okkur.
- MattheaStúlkaSamþykkt3 atkv.26 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu "Matthías" sem merkir gjöf guðs.
- KristnýStúlkaSamþykkt2 atkv.23 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "ný" sem merkir ung, - ný.
- ElíaStúlkaSamþykkt3 atkv.22 sem fyrsta nafn
Elía er íslensk mynd af nafninu Elías, sem er af hebreskum rótum („Elíjah“, אֱלִיָּהוּ) og merkir „Guð minn er Jahve“.
- JosephineStúlkaSamþykkt13. ágú 20254 atkv.22 sem fyrsta nafn
Josephine er ensk, þýsk og hollensk mynd af Joséphine, kvenkynsmynd af nafninu Jósef. Jósef er hebreskt og merkir „hann mun auka við“, af rótinni „yasaf“ („að auka“).
- JósefínaStúlkaSamþykkt4 atkv.20 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Jósef með viðskeytinu "ína"
- JaneStúlkaSamþykkt27. apr 20112 atkv.19 sem fyrsta nafn
Jane hefur verið afar algengt nafn í enskumælandi löndum allt frá miðöldum. Að baki liggur fornfranska nafnið „Jehanne“ sem er myndað af fornfrönsku „Iohannes“ sem aftur er fengið að láni úr hebresku, skylt nafninu Jóhannes.
- MariamStúlkaSamþykkt8. sep 20263 atkv.19 sem fyrsta nafn
„Mariam“ er arameísk hliðarmynd hebreska nafnsins Miriam, sem María er komið af. Merking og uppruni nafnsins er óljós; það er hugsanlega egypskt að uppruna.
- KristeyStúlkaSamþykkt2 atkv.18 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "ey".
- KristveigStúlkaSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "veig" sem merkir afl, - kraftur.
- KristborgStúlkaSamþykkt2 atkv.16 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "borg" sem merkir vörn.
- MarýStúlkaSamþykkt2 atkv.16 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og leitt af „Maria“. Franska myndin „Marie“ varð í miðensku að „Mary“, sem er sama nafn og „María“.
- KristlaugStúlkaSamþykkt2 atkv.14 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.
- ChristelStúlkaSamþykkt16. okt 20132 atkv.12 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna. Það er þýsk gælumynd af „Kristiane“ og „Krista“, sem tengjast „Kristjana“.
- ManúelaStúlkaSamþykkt6. apr 20094 atkv.11 sem fyrsta nafn
Nafnið er talsvert notað á Spáni, í Portúgal, í enskumælandi löndum og á Norðurlöndum. Það er ýmist myndað af karlmannsnafninu „Manúel“ með viðskeytinu „-a“ eða er stytting á kvenmannsnafninu „Emanuela“ af „Emanúel“. „Manúella“ er framburðarmynd af „Manúela“.
- JónasínaStúlkaSamþykkt4 atkv.9 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Jónas með viðskeytinu "ína".
- KristinStúlkaSamþykkt25. maí 20062 atkv.9 sem fyrsta nafn
„Kristin“ er afbrigði af nafninu „Kristín“, sem er þekkt hér frá 13. öld og kemur fyrir í Sturlungu og víða í fornbréfum. Nafnið er upphaflega myndað af latneska orðinu „christiana“, sem merkir „sú sem fylgir Kristi“, og er því í raun stytting á „Kristjana“. Nafnið er notað víða um Evrópu í ýmsum myndum.
- MalinStúlkaSamþykkt20. feb 20202 atkv.9 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og hliðarmynd af „Magdalena“. „Malin“ hefur verið notað í Svíþjóð frá 16. öld sem stytting á „Malena“, sem aftur er þekkt frá 12. öld sem stytting á „Magdalena“.
- ChristaStúlkaSamþykkt20. jún 20142 atkv.7 sem fyrsta nafn
Nafnið er einkum notað sem stytting á t.d. „Kristín“ og „Kristjana“. Nafnmyndin „Christa“ er upphaflega stytting á þýska nafninu „Christiane“, sbr. „Kristjana“, en er nú notað víða í Evrópu sem eiginnafn.
- JóninnaStúlkaSamþykkt3 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu Jón og viðskeytinu "inna".
- KarmenStúlkaSamþykkt29. júl 20132 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega spænskt, ummyndun á nafninu „Carmel“ sem komið er úr hebresku og merkir „garður, aldingarður“. María móðir Jesú var oft kennd við fjallið „Carmel“ og á nafnið „Carmen“ rætur að rekja til þess.
- KristólínaStúlkaSamþykkt18. des 20074 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og nafninu "Ólína".
- KristrósStúlkaSamþykkt2 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.
- JonnaStúlkaSamþykkt24. maí 20222 atkv.5 sem fyrsta nafn
Nafnið hefur sennilega borist til Íslands frá Danmörku og er upphaflega stytting á nafninu „Johanna“, sem svarar til íslenska nafnsins „Jóhanna“.
- MæjaStúlkaSamþykkt4. mar 20162 atkv.5 sem fyrsta nafn
Maya er ritmynd af „Maja“, sem er algengt gælunafn, einkum kvenna sem heita „María“. Uppruni þess er sennilega erlendur, en „Maja“ hefur verið notað sem eiginnafn í Svíþjóð og Danmörku frá því á 14. öld.
- JosefinaStúlkaSamþykkt17. ágú 20204 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið er franskt að uppruna, „Joséphine“, leitt af karlmannsnafninu „Joseph“ með viðskeytinu „-ine“. Frá Frakklandi barst nafnið til ensku- og þýskumælandi landa og Norðurlanda sem „Josephine“ og „Josefine“. Eiginkona Napóleons Bónaparte hét Jósefína og stuðlaði það talsvert að vinsældum nafnsins á 19. öld. Hér á landi gæti „Heljarslóðarorusta“ Benedikts Gröndals verið kveikjan að einhverju af afbrigðum nafnsins. Íslenska myndin „Josefina“ tengist einnig nöfnunum „Jósef“ og viðskeytinu „-ína“.
- KristvinaStúlkaSamþykkt3 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur, konungborin og viðliðnum "vina" sem merkir vinkona.
- MaíaStúlkaSamþykkt9. feb 20113 atkv.4 sem fyrsta nafn
Maya er ritmynd af „Maja“, sem er algengt gælunafn, einkum kvenna sem heita „María“. Uppruni þess er sennilega erlendur, en „Maja“ hefur verið notað sem eiginnafn í Svíþjóð og Danmörku frá því á 14. öld.
- MaríellaStúlkaSamþykkt3. ágú 20174 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega ítölsk smækkunarmynd af „Maria“, sem er sama nafn og „María“. Það er notað í enskumælandi löndum, á Norðurlöndum og víðar í Evrópu, en franska myndin „Marielle“ er einnig þekkt.
- MikkalínaStúlkaSamþykkt17. des 20094 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af karlmannsnafninu Mikael.
- NóaStúlkaSamþykkt25. maí 20062 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nóa er gælunafn, meðal annars af nafninu „Jóhanna“, en gæti einnig verið myndað af karlmannsheitinu „Nói“ með viðskeytinu „-a“.
- SannaStúlkaSamþykkt2 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið er þekkt í Svíþjóð sem „Sanna“ og í Danmörku sem „Sanne“, en þar er það notað sem stytting á nafninu „Susanna“/„Susanne“, sem samsvarar íslenska nafninu Súsanna.
- EveyStúlkaSamþykkt12. nóv 20082 atkv.3 sem fyrsta nafn
Uppruni er óviss. Nafnið „Evey“ þekkist í enskumælandi löndum sem afleiðsla af „Eva“. Það er þá hebreskt að uppruna og merkir „líf“.
- KristíannaStúlkaSamþykkt4 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af latneska orðinu "christiana" sem merkir sú sem fylgir Kristi.
- MaríonStúlkaSamþykkt31. mar 20103 atkv.3 sem fyrsta nafn
Maríon er miðaldafranskt gælunafn af nafninu Marie (María), sem er komið af hebreska nafninu Mirjam.
- MichellStúlkaSamþykkt17. júl 20232 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið er franskt að uppruna og er kvenkynsmynd af nafninu „Michael“, sem er skylt íslenska nafninu „Mikael“.
- SjanaStúlkaSamþykkt29. júl 20132 atkv.3 sem fyrsta nafn
Sjana er algengt gælunafn kvenna sem heita „Kristjana“.
- JessýStúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og talið gælumynd af „Jessica“. Það nafn er ummyndun Shakespeares á hebreska nafninu „Iscah“, „Jesca“ í leikritinu Kaupmaðurinn í Feneyjum. Kona með því nafni er nefnd í Fyrstu Mósebók, í íslensku þýðingunni „Íska“.
- JógaStúlkaSamþykkt9. feb 20232 atkv.2 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss, en það er þekkt sem gælunafn kvenna sem heita „Jóhanna“.
- JósebínaStúlkaSamþykkt8. des 20114 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafnið er franskt að uppruna, „Joséphine“, leitt af karlmannsnafninu „Joseph“ með viðskeytinu „-ine“. Frá Frakklandi barst nafnið til ensku- og þýskumælandi landa og Norðurlanda sem „Josephine“ og „Josefine“. Eiginkona Napóleons Bónaparte hét Jósefína og stuðlaði það talsvert að vinsældum nafnsins á 19. öld. Hér á landi gæti „Heljarslóðarorusta“ Benedikts Gröndals verið kveikjan að einhverju af afbrigðum nafnsins. Íslenska myndin „Josefina“ tengist einnig nöfnunum „Jósef“ og viðskeytinu „-ína“.
- KristfríðurStúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "fríður" sem merkir ást, - falleg.
- KristgerðurStúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "gerður" sem merkir vernd.
- MalínaStúlkaSamþykkt30. sep 20153 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og hliðarmynd af „Magdalena“. „Malin“ hefur verið notað í Svíþjóð frá 16. öld sem stytting á „Malena“, sem aftur er þekkt frá 12. öld sem stytting á „Magdalena“.
- MeryemStúlkaSamþykkt7. okt 20253 atkv.2 sem fyrsta nafn
Meryem er tyrknesk mynd af nafninu Maryam (María), sem er komið af hebreska nafninu Mirjam.
- MessíanaStúlkaSamþykkt4 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafn þetta að öllum líkindum lagað að hebreska orðinu "messiah" sem merkir hinn smurði.
- AbelaStúlkaSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er hinn sami og kvenmannsnafnsins „Abel“.
- AnalíaStúlkaSamþykkt4 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er talið spænskt, sett saman af „Ana“ (sbr. „Anna“) og „Lía“, sem er sama nafn og hebreska nafnið „Leah“ (sbr. „Lea“), en það kemur fyrir í Fyrstu Mósebók sem kona Jakobs.
- ChrissieStúlkaSamþykkt7. jún 20233 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega ensk og skosk gælumynd af nafninu „Christina“, sem tengist íslenska nafninu „Kristína“.
- EmanúelaStúlkaSamþykkt28. jan 20195 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er leitt af karlmannsnafninu „Emanúel“.
- JanettaStúlkaSamþykkt30. maí 20053 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er tökunafn, líklegast úr ensku, „Janette“. Það nafn er smækkunarmynd af „Jane“ með franska viðskeytinu „-ette“. „Jane“ er upphaflega kvenkynsmynd af nafninu „John“, sem svarar til „Jón“ á íslensku.
- JannikaStúlkaSamþykkt21. jan 20103 atkv.1 sem fyrsta nafn
„Jannika“ er lágþýsk gælumynd nafnsins „Johanna/Johanne“, mynduð með smækkunarviðskeytinu „-ka“, og er því skylt nafninu „Jóhanna“.
- JóhanndínaStúlkaSamþykkt6. maí 20164 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er samsett af „Jóhann“ og „Dína“, sem gæti annaðhvort verið gælunafn eða sótt til Biblíunnar, en Dína hét dóttir Jakobs og Leu og segir frá henni í Fyrstu Mósebók.
- JóníStúlkaSamþykkt24. jan 20242 atkv.1 sem fyrsta nafn
Jóní er gælunafn myndað af Jóni eða Jónu, sem er af nafninu Jóhannes og merkir „Guð er náðugur“.
- JóníaStúlkaSamþykkt4. maí 20233 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu Jón og viðskeytinu "ía".
- JónýStúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er sett saman af karlmannsnafninu „Jón“ og viðskeytinu „-ý“.
- KikkaStúlkaSamþykkt3. jún 20162 atkv.1 sem fyrsta nafn
Uppruni er óviss en hugsanlega er um upphaflegt gælunafn að ræða, t.d. myndað af „Kristín“ eða „Kristjana“. Í Noregi þekkist „Kikki“ sem gælumynd kvenna sem heita „Kristine“.
- KristlindStúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur, konungborin og viðliðnum "lind" sem merkir tær, - hrein, - uppspretta.
- ManúellaStúlkaSamþykkt29. nóv 20134 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er talsvert notað á Spáni, í Portúgal, í enskumælandi löndum og á Norðurlöndum. Það er ýmist myndað af karlmannsnafninu „Manúel“ með viðskeytinu „-a“ eða er stytting á kvenmannsnafninu „Emanuela“ af „Emanúel“. „Manúella“ er framburðarmynd af „Manúela“.
- MaríStúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og leitt af „Maria“. Franska myndin „Marie“ varð í miðensku að „Mary“, sem er sama nafn og „María“.
- MaríelStúlkaSamþykkt23. maí 20243 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er hollensk mynd af „Mary“, sem er dregið af nafninu „María“.
- MatthíaStúlkaSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu "Matthías" sem merkir gjöf guðs.
- MattínaStúlkaSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu "Matthías" sem merkir gjöf guðs.
- RaeStúlkaSamþykkt8. sep 20262 atkv.1 sem fyrsta nafn
Úr ensku, stytting á nafninu Rachel (Rakel) sem er hebreskt biblíunafn og merkir „ær“. Nafnið er einnig notað sem kvenmynd nafnsins Ray.
- SannýStúlkaSamþykkt24. feb 20212 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er þekkt á Norðurlöndum sem gælunafn myndað af nafninu „Susanna“, sem samsvarar íslenska nafninu „Súsanna“.
- SusieStúlkaSamþykkt1. apr 20163 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er ensk smækkunar- eða gælumynd af „Susan“, sem er skylt nafninu „Súsanna“.
- TóbýStúlkaSamþykkt22. des 20202 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna, stytting á nafninu „Tobias“, sem er samsvarandi nafninu „Tóbías“.
- AxelíaStúlkaSamþykkt4 atkv.
Kvenmynd nafnsins "Axel" sem er norræn mynd nafnsins Absalon sem merkir friðarfaðir og er komið úr biblíunni, með viðskeytinu "ía" fyrir aftan.
- DreaStúlkaSamþykkt8. sep 20262 atkv.
Stytting á nafninu Andrea, sem er kvenmynd nafnsins Andreas og á rætur í gríska orðinu „andreios“ sem merkir „hugrakkur, karlmannlegur“.
- EvinStúlkaSamþykkt2. okt 20232 atkv.
Nafnið er hliðarmynd af „Evan“, sem að uppruna er ensk mynd af velska nafninu „Ieuan“, er tengist nafninu „Jón“.
- HíramíaStúlkaSamþykkt16. mar 20264 atkv.
Nafnið er leitt af karlmannsnafninu „Híram“ með viðskeytinu „-ía“.
- JakeyStúlkaSamþykkt10. des 20222 atkv.
Að baki nafninu liggur hugsanlega karlmannsnafnið „Jakob“ með viðskeytinu „-ey“.
- JósefínStúlkaSamþykkt28. júl 20083 atkv.
Nafnið er franskt að uppruna, „Joséphine“, leitt af karlmannsnafninu „Joseph“ með viðskeytinu „-ine“. Frá Frakklandi barst nafnið til ensku- og þýskumælandi landa og Norðurlanda sem „Josephine“ og „Josefine“. Eiginkona Napóleons Bónaparte hét Jósefína og stuðlaði það talsvert að vinsældum nafnsins á 19. öld. Hér á landi gæti „Heljarslóðarorusta“ Benedikts Gröndals verið kveikjan að einhverju af afbrigðum nafnsins. Íslenska myndin „Josefina“ tengist einnig nöfnunum „Jósef“ og viðskeytinu „-ína“.
- KristinnaStúlkaSamþykkt13. des 20243 atkv.
Kristinna er kvenmannsnafn skylt Kristínu (Christina), sem er af latneska Christiana og merkir „fylgjandi Krists“ (kristin kona).
- MarjaStúlkaSamþykkt2 atkv.
Nafnið er upprunalega rússnesk mynd af nafninu „María“. Það þekkist í Svíþjóð frá 17. öld og er einnig notað í Þýskalandi.
- MattíanaStúlkaSamþykkt4 atkv.
Nafnið er myndað af karlmannsnafninu „Matthías“ með endingunni „-íana“.
- MikaelínaStúlkaSamþykkt5 atkv.
Nafnið er kvenkyns mynd af karlmannsnafninu „Mikael“ og var einnig ritað „Mikkalína“ eða „Mikelína“.
- MirjaStúlkaSamþykkt2 atkv.
Nafnið er erlent og uppruni þess af tvennum toga. Annars vegar er „Mirja“ finnsk mynd af nafninu „María“, en hins vegar er það notað sem stytting á nafninu „Mirjam“.
- MíkahStúlkaSamþykkt23. maí 20252 atkv.
Míkah er hliðarmynd af nafninu Míka (Micah), stytting á Míkael; hebreskt og merkir „hver er sem Guð?“.
- MollýStúlkaSamþykkt27. maí 20262 atkv.
Mollý er miðaldagælunafn af nafninu Mary (María), sem er komið af hebreska nafninu Mirjam.
- SalomínaStúlkaSamþykkt7. okt 20224 atkv.
Nafnið er hugsanlega myndað með því að laga karlmannsnafnið „Salómon“ að kvenkyni með viðskeytinu „-ína“.
- SarínaStúlkaSamþykkt3 atkv.
Nafnið „Sarine“ þekkist í Noregi frá um 1750 og einnig í Þýskalandi, og er talið afleiðsla af nafninu „Sara“.
- SímonaStúlkaSamþykkt22. des 20143 atkv.
Nafnið er myndað af karlmannsnafninu „Símon“ með viðskeytinu „-a“.
Drengjanöfn
- JónDrengurSamþykkt1 atkv.4.891 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.
- KristjánDrengurSamþykkt2 atkv.2.250 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af latneska nafninu "Christiánus" sem merkir kristinn maður.
- JóhannDrengurSamþykkt2 atkv.1.996 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.
- KristinnDrengurSamþykkt2 atkv.1.250 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af nafnorðinu "kristinn" sem merkir sá sem trúir á Jesú Krist.
- KristóferDrengurSamþykkt3 atkv.859 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af gríska nafninu "Khristóphoros" sem merkir sá sem ber krist.
- AxelDrengurSamþykkt2 atkv.523 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er norræn mynd af biblíunafninu "Absalon" sem merkir faðir friðarins, - friðarfaðir.
- HannesDrengurSamþykkt2 atkv.387 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir drottinn er náðugur.
- JanDrengurSamþykkt1 atkv.244 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.
- JensDrengurSamþykkt1 atkv.207 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.
- IvanDrengurSamþykkt1. mar 20222 atkv.162 sem fyrsta nafn
Ívan er upphaflega rússnesk stytting af nafninu „Johannes“ og samsvarar íslensku nöfnunum Jóhann, Jóhannes og Jón. Nafnið tíðkast einnig á Norðurlöndum, í Englandi og Þýskalandi.
- HansDrengurSamþykkt1 atkv.139 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er þýsk stytting nafnsins "Jóhannes" sem merkir drottinn er náðugur.
- JohnDrengurSamþykkt1 atkv.107 sem fyrsta nafn
„John“ er ensk mynd af nafninu „Jóhannes“ og samsvarar nafninu „Jón“.
- ChristopherDrengurSamþykkt18. júl 20053 atkv.78 sem fyrsta nafn
Enska myndin af nafninu „Kristófer“, sem þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld og er komið úr grísku „Christóphoros“ og merkir eiginlega „sá sem ber Krist“. Þýska myndin er „Christoffer“.
- KristmundurDrengurSamþykkt3 atkv.78 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - gjöf.
- JamesDrengurSamþykkt21. sep 20202 atkv.77 sem fyrsta nafn
Nafnið „James“ er ensk mynd af nafninu „Jakob“ og á rætur að rekja til latínumyndarinnar „Iacomus“, hliðarmyndar við „Iacobus“. Það hefur verið notað innan bresku konungsfjölskyldunnar frá því á 15. öld þegar James I. Skotakonungur tók við völdum og ríkti frá 1424–1437.
- ManuelDrengurSamþykkt6. maí 20163 atkv.58 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega spænsk stytting á „Emmanuel“, sem svarar til „Emanúel“.
- KristbjörnDrengurSamþykkt2 atkv.56 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.
- AndreasDrengurSamþykkt3 atkv.51 sem fyrsta nafn
Nafnið hefur tíðkast í Danmörku og Noregi frá miðri 12. öld og er einnig notað í Þýskalandi. Það er norræn mynd af gríska nafninu „Andréās“, sem er skylt nafninu Andrés.
- KristianDrengurSamþykkt8. júl 20093 atkv.51 sem fyrsta nafn
Nafnið er ein af nafnmyndum „Kristján“ og er komið úr latínu „christiānus“ sem merkir kristinn, sbr. latínu „Christus“ og grísku „Khristós“ sem merkir hinn smurði. Nafnið er alþekkt í ýmsum myndum á Norðurlöndum og í ensku- og þýskumælandi löndum frá fornu fari.
- ÍvanDrengurSamþykkt2 atkv.50 sem fyrsta nafn
Ívan er upphaflega rússnesk stytting af nafninu „Johannes“ og samsvarar íslensku nöfnunum Jóhann, Jóhannes og Jón. Nafnið tíðkast einnig á Norðurlöndum, í Englandi og Þýskalandi.
- JoséDrengurSamþykkt17. ágú 20202 atkv.48 sem fyrsta nafn
Þetta er spænsk mynd af nafninu „Joseph“, sem er sama nafn og „Jósef“.
- KristmannDrengurSamþykkt2 atkv.41 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "mann" sem merkir maður.
- KristjónDrengurSamþykkt2 atkv.34 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur.
- ManúelDrengurSamþykkt3 atkv.28 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega spænsk stytting á „Emmanuel“, sem svarar til „Emanúel“.
- IanDrengurSamþykkt19. nóv 20252 atkv.26 sem fyrsta nafn
Ian er skosk mynd af nafninu Jóhannes (John), enskuð úr gelíska nafninu Iain. Nafnið er af hebreskum rótum og merkir „Guð er náðugur“.
- ElíaDrengurSamþykkt29. júl 20133 atkv.22 sem fyrsta nafn
Elía er íslensk mynd af nafninu Elías, sem er af hebreskum rótum („Elíjah“, אֱלִיָּהוּ) og merkir „Guð minn er Jahve“.
- HenningDrengurSamþykkt2 atkv.22 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr þýsku þar sem það var upphaflega stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir drottinn er náðugur.
- JohanDrengurSamþykkt2 atkv.22 sem fyrsta nafn
Nafnið er stytting af „Jóhannes“. Í Landnámu er getið um Jóhann biskup hinn írska sem dvaldist hér fáein ár. Nafnið Johan hefur verið notað á Norðurlöndum frá því á miðöldum en myndin Johann þekkist í Þýskalandi frá 16. öld.
- KristleifurDrengurSamþykkt3 atkv.22 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "leifur" sem merkir arfur.
- AndersDrengurSamþykkt2 atkv.21 sem fyrsta nafn
Nafnið er norræn mynd af gríska nafninu „Andréas“, sjá „Andrés“. „Anders“ hefur verið notað í Danmörku frá því á 12. öld, í Noregi og Svíþjóð frá því á 14. öld, og var með algengustu nöfnum í þessum löndum á ýmsum tímum. Í Svíþjóð kemur myndin „andræs“ fyrir á rúnaristu frá 12. öld en á miðöldum var nafnið venjulega ritað „Andres“ eða „Andris“ og tíðkaðist mest hjá alþýðu manna.
- KristoferDrengurSamþykkt9. feb 20113 atkv.21 sem fyrsta nafn
Enska myndin af nafninu „Kristófer“, sem þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld og er komið úr grísku „Christóphoros“ og merkir eiginlega „sá sem ber Krist“. Þýska myndin er „Christoffer“.
- EvanDrengurSamþykkt2. apr 20122 atkv.17 sem fyrsta nafn
„Evan“ er enskuð mynd af velska nafninu „Iefan“, sem aftur er myndað af nafninu „John“, sömu ættar og íslenska nafnið „Jón“.
- JeanDrengurSamþykkt30. júl 20262 atkv.17 sem fyrsta nafn
Jean er ýmist frönsk karlmannsmynd af Jóhannesi (John) eða ensk kvenmannsmynd skyld Jane (af Jehanne). Bæði eiga rætur í hebreska nafninu sem merkir „Guð er náðugur“.
- MateoDrengurSamþykkt21. okt 20243 atkv.17 sem fyrsta nafn
Spænsk mynd af nafninu „Mateus“, sem er tengt nafninu Matthías.
- KristbergDrengurSamþykkt2 atkv.13 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættur.
- JackDrengurSamþykkt3. maí 20051 atkv.12 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna. Það var upphaflega ensk gælumynd af nafninu „John“ sem aftur er stytting á „Johannes“. Nafnið er dregið af miðensku myndinni „Jankin“, af „Jan“ sem aftur er samandregin mynd af „Jehan“, með viðskeytinu „-kin“. Farið var að líta á viðskeytið sem franska smækkunarviðskeytið „-in“ sem síðar féll niður og úr varð myndin „Jack“.
- MaríasDrengurSamþykkt3 atkv.12 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er karlmynd kvannafnsyns "María" sem merkir hin fagra.
- ElisDrengurSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn
Elis er íslensk mynd af nafninu Elías, sem er af hebresku og merkir „Guð minn er Jahve“.
- KristvinDrengurSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "vin" sem merkir vinur.
- ÍanDrengurSamþykkt2 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og er upphaflega skosk afleiðsla af nafninu „John“. Frá Skotlandi barst það til þýskumælandi landa og Norðurlanda. Um merkingu vísast til nafnsins „Jóhannes“.
- KristþórDrengurSamþykkt2 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn úr norrænni goðafræði.
- KristmarDrengurSamþykkt2 atkv.9 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "mar" sem merkir frægur.
- EronDrengurSamþykkt2 atkv.8 sem fyrsta nafn
Nafnið er spænskt að uppruna og hliðarmynd við nafnið „Aron“.
- AkselDrengurSamþykkt23. jan 20252 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er þekkt í Danmörku og Svíþjóð frá 14. öld og í Noregi frá 16. öld. Það hefur verið tekið upp í ensku og er eitthvað notað í Ameríku. „Axel“ er norræn mynd af biblíunafninu „Absalon“, sem merkir „faðir friðarins“ eða „faðirinn er friður“, og er tökunafn í íslensku, sennilega úr dönsku „Aksel“, sbr. sænsku „Axel“.
- ChrisDrengurSamþykkt13. jan 20221 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er ein af nafnmyndum „Kristján“ og er komið úr latínu „christiānus“ sem merkir kristinn, sbr. latínu „Christus“ og grísku „Khristós“ sem merkir hinn smurði. Nafnið er alþekkt í ýmsum myndum á Norðurlöndum og í ensku- og þýskumælandi löndum frá fornu fari.
- KristbergurDrengurSamþykkt3 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "bergur" sem merkir bjargvættur.
- KristgeirDrengurSamþykkt2 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.
- KrisDrengurSamþykkt14. apr 20091 atkv.5 sem fyrsta nafn
Að baki liggur líklega stytting á „Chris“, sem er stytt mynd nafnsins „Christopher“, er samsvarar íslenska nafninu „Kristófer“.
- MateóDrengurSamþykkt26. jún 20183 atkv.5 sem fyrsta nafn
Spænsk mynd af nafninu „Mateus“, sem er tengt nafninu Matthías.
- ThiagoDrengurSamþykkt24. mar 20253 atkv.4 sem fyrsta nafn
Thiago er portúgölsk mynd af nafninu Tiago, stytting á Santiago (heilagur Jakob). Það er komið af hebreska nafninu Jakob og merkir „sá sem heldur um hælinn“ eða „staðgengill“.
- ElliottDrengurSamþykkt12. okt 20213 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið er enskt að uppruna og merkir „Drottinn er Guð minn“. Það er skylt nafninu Elías.
- JochumDrengurSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn
Ritháttur nafnsins hefur verið á reiki, ýmist ritað „-ch-“ eða „-kk-“. „Jochum“ er víxlmynd við „Jóakim“.
- KristdórDrengurSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "dór" sem merkir þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði.
- KristóbertDrengurSamþykkt12. okt 20213 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af nafninu "Kristófer sem merkir sá sem ber krist og viðliðnum "bert" sem merkir bjartur, - skínandi.
- MaríonDrengurSamþykkt26. jan 20183 atkv.3 sem fyrsta nafn
Maríon er miðaldafranskt gælunafn af nafninu Marie (María), sem er komið af hebreska nafninu Mirjam.
- CristianoDrengurSamþykkt2. nóv 20224 atkv.2 sem fyrsta nafn
Cristiano er ítölsk og portúgölsk mynd af nafninu Christian (Kristján). Það er af latneska „christianus“ og merkir „fylgjandi Krists“.
- EllíotDrengurSamþykkt21. jún 20213 atkv.2 sem fyrsta nafn
Ellíot er mynd af nafninu Elliot, sem er komið af ættarnafni dregnu af nafninu Elías (Elijah). Það er af hebreskum rótum og merkir „Guð minn er Jahve“.
- KristfinnurDrengurSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "finnur" sem merkir maður.
- TímonDrengurSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafnið er grískt að uppruna, „Tímōn“, og er stytting af „Tímótheos“, sem svarar til íslenska nafnsins Tímóteus.
- ElíottDrengurSamþykkt9. des 20193 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er enskt að uppruna og talsvert notað í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Það er upphaflega leitt af hebreska nafninu „Elijah“ sem merkir „Drottinn er Guð minn“, skylt nafninu Elía.
- HaronDrengurSamþykkt26. maí 20212 atkv.1 sem fyrsta nafn
Hugsanlega sama nafn og „Haroon“ sem er arabísk mynd af hebreska nafninu „Aaron“, samanber „Aron“.
- IlíasDrengurSamþykkt13. mar 20143 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er ef til vill af sama toga og „Ilyas“, sem er arabísk mynd hebreska nafnsins „Elijah“, er merkir „Guð minn er Jahve“. Það þekkist á Norðurlöndum, einnig ritað „Ilias“, á Bretlandseyjum, í Frakklandi og víðar í Evrópu, og er skylt nafninu „Elías“.
- IlíesDrengurSamþykkt6. nóv 20193 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er ef til vill af sama toga og „Ilyas“, sem er arabísk mynd hebreska nafnsins „Elijah“, er merkir „Guð minn er Jahve“. Það þekkist á Norðurlöndum, einnig ritað „Ilias“, á Bretlandseyjum, í Frakklandi og víðar í Evrópu, og er skylt nafninu „Elías“.
- JesDrengurSamþykkt1 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.
- JonniDrengurSamþykkt18. apr 20172 atkv.1 sem fyrsta nafn
Þetta er algengt gælunafn drengja sem heita „Jón“.
- JóannDrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er stytting af „Jóhannes“. Í Landnámu er getið um Jóhann biskup hinn írska sem dvaldist hér fáein ár. Nafnið Johan hefur verið notað á Norðurlöndum frá því á miðöldum en myndin Johann þekkist í Þýskalandi frá 16. öld.
- KristóDrengurSamþykkt26. jún 20182 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið getur bæði verið stytting á „Kristofer“ og „Kristian“. Myndin „Christo“ er talsvert notuð á Spáni.
- AndreanDrengurSamþykkt18. mar 20173 atkv.
Uppruni óviss, en hugsanlega er hér um hliðarmynd af nafninu „Andreas“ að ræða.
- AraþonDrengurSamþykkt24. júl 20263 atkv.
Nýlegt nafn, innblásið af biblíunafninu Ardon og af Arathorn, föður Aragorns í Hringadróttinssögu.
- JimmiDrengurSamþykkt26. jan 20262 atkv.
Jimmi er enskt gælunafn myndað af James (Jakob), af hebreska Jakob sem merkir „hælgrípari, sá sem tekur við af öðrum“.
- KristlaugurDrengurSamþykkt3 atkv.
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "laugur" sem merkir tær, - hreinn.
- KristvaldurDrengurSamþykkt3 atkv.
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "valdur" sem merkir hefur vald á, - ræður yfir.
- KristvarðurDrengurSamþykkt3 atkv.
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "varður" sem merkir vörður, - vakir yfir.
- MatheóDrengurSamþykkt13. ágú 20253 atkv.
Matheó er mynd af nafninu Matteó (Matthew), af hebresku mattaþ „gjöf“ og nafni Guðs; merkir „gjöf Guðs“.
- SólimannDrengurSamþykkt3 atkv.
Uppruni er óviss. Nafnið er hugsanlega skylt arabíska nafninu „Sulaymān“ sem aftur er sama nafn og hebreska nafnið „Shlomo“. Það er dregið af „shalom“ - friður. Þekktastur nafnbera var Salómon konungur, sonur Davíðs konungs og Batsebu, en frá Salómon segir í Síðari Samúelsbók, Fyrri Konungabók, Síðari Kroníkubók og víðar í Biblíunni. Ýmsar myndir af nafninu eru notaðar á Vesturlöndum.
- TumasDrengurSamþykkt2 atkv.
Íslenzkt afbrigði Tómasarnafnsins, og mun það sennilega sýna áhrif af heitinum Tumi. Tumas kemur fyrir a. m. k. frá 15. og fram á 18. öld.
- ValjónDrengurSamþykkt11. mar 20262 atkv.
Valjón er íslenskt karlmannsnafn, samsett úr forliðnum Val- (sbr. „valur“ eða „val“, það er úrval) og nafninu Jón, sem er stytting á Jóhannes „Guð er náðugur“.
Kynhlutlaus nöfn
- KrissKynhlutlaustSamþykkt16. apr 20241 atkv.1 sem fyrsta nafn
Að baki liggur líklega stytting á „Chris“, sem er stytt mynd nafnsins „Christopher“, er samsvarar íslenska nafninu „Kristófer“.