Atalía
Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 2 bera nafnið
Atalía var móðir Ahasía Júdakonungs samkvæmt Annarri konungabók Gamla testamentisins. Nafnið mun merkja „Drottinn hefur kunngert tign sína“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
2
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
2
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
AmelíaAnnar ritháttur nafnsins AmalíaAmalíaNafnið er talið eiga rætur að rekja til gotneska nafnsins „Amali“, heitis austgotnesku konungsættarinnar, og er skylt forníslenska karlmannsnafninu „Ömlungur“ og sögninni að „amla“ sem merkir „brauka, basla við“. Forliðurinn „Amal-“ var algengur í þýskum nöfnum og af honum er „Amalía“ myndað með viðskeytinu „-ia“. Nafnið var vinsælt í Þýskalandi á 18. öld, barst þaðan í dönsku og síðan til Íslands.AmilíaNafnið er afbrigði af „Amalía“ sem er talið eiga rætur að rekja til gotneska nafnsins „Amali“, en það var heiti austgotnesku konungsættarinnar. Það er skylt forníslenska karlmannsnafninu „Ömlungur“, í fornháþýsku „Amalung“, fornensku „Amuling“, og sögninni að „amla“ „brauka, basla við“. Forliðurinn „Amal-“ var algengur í þýskum nöfnum og „Amalia“ er myndað af honum með viðskeytinu „-ia“. Það var vinsælt í Þýskalandi á 18. öld og barst til Íslands úr dönsku, sem hafði það úr þýsku.AdelíaNafnið er af erlendum uppruna, „Adelie“, sem er hliðarmynd af „Adele“ og „Adela“. Það var samþykkt á mannanafnaskrá árið 2012.AnalíaNafnið er talið spænskt, sett saman af „Ana“ (sbr. „Anna“) og „Lía“, sem er sama nafn og hebreska nafnið „Leah“ (sbr. „Lea“), en það kemur fyrir í Fyrstu Mósebók sem kona Jakobs.AlexíaNafn þetta er líklega grískt að uppruna, leitt af karlmannsnafninu Alexander eða Alexis og merkir verndari eða bjargvættur.EmilíaNafn þetta kemur úr latínu og er upprunalega nafnið "Aemilia". Emilía getur einnig verið víxlmynd við Amalía.EmelíaSama/svipað og Emilía.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →