Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
46
Fyrsta nafn
13
Annað nafn
59
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
MartaNafn þetta er komið úr biblíunni, fengið af arameíska nafninu "Martá" sem merkir frú, - húsfrú.MartínaNafn þetta er kvenmynd karlmannsnafnsins Marteinn.MargrétNafnið barst upphaflega til Evrópu frá Grikklandi. Gríska myndin er „Margarītēs“, mynduð af nafnorðinu „margaron“ sem merkir „perla“, en það orð er sjálft tökuorð í grísku úr persnesku. Úr grísku barst nafnið í latínu sem „Margarīta“ og þaðan í fornfrönsku sem „Marguerite“, en úr frönsku barst það síðan til enskumælandi landa. Það var einnig vel þekkt í Þýskalandi á miðöldum og var meðal algengustu kvenmannsnafna þar og í evrópskum konungaættum. Þekktasti dýrlingur með þessu nafni var heilög Margrét frá Antíokkíu sem dó píslarvættisdauða snemma á 4. öld.MaríaNafnið er komið af hinni arameísku mynd „Mariam“, hliðarmynd hebreska nafnsins „Miriam“. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning þegar nýtt nefnifall var myndað af þolfallsmyndinni „Mariam“. Merking og uppruni nafnsins er óljós en talið er sennilegt að það sé af egypskum toga, líkt og nafn Miriam úr Gamla testamentinu, systur Móse og Arons. Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi enda tengt Maríu, móður Jesú.MarsaUppruni nafnsins er óviss en ef til vill er það stytting á nöfnum eins og „Marsilía“, „Marsilína“ eða „Marsibil“.MarlaNafnið hefur verið talið þýsk stytting á „Marlene“, sem er stytting á „Marlena“. Það er einnig notað í enskumælandi löndum.MariaNafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.MaraNafnið má líklega rekja til Rutarbókar Gamla testamentisins. Hebreska orðið „mara“ merkir „hin beiska“ og Naómí er látin segja: „Kallið mig ekki Naómí, kallið mig Mara, því að hinn Almáttki hefir búið mér beiska harma.“
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →