Gídeon
Drengjanafn Samþykkt· 3 atkvæði· 1 ber nafnið
Nafnið er hebreskt, fengið úr Dómarabók Gamla testamentisins, og merkir „sá sem heggur“. Gídeon var dómari í Ísrael fyrir konungatímann. Nafnið hefur verið notað víða um Evrópu, m.a. í Svíþjóð frá 16. öld, og var vinsælt á Englandi á 17. öld meðal hreintrúarmanna.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
GísliNafn þetta merkir herfangi, - gísl. Í grein eftir Sigurð Nordal eru vangaveltur um að ekki sé skýrt eftir herfangi. Frekar að við þær aðstæður þegar stríðandi aðilar þurftu að semja um frið, þá voru fengnir gíslar sem gengu yfir á meðan á viðræðum stóð. Ef ekki náði saman voru gíslarnir drepnir. Þótti heiður af því að vera gísl.GuðjónNafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur. Sumir telja það vera komið af hebreska nafninu "Gideon" sem merkir sá sem mer/særir sári eða brýtur, sá sem eyðir.GastonNafnið er franskt en uppruni þess er óviss. Giskað hefur verið á að það hafi verið tekið að láni í frönsku úr þýsku og sé skylt nafnorðinu „Gast“ sem merkir gestur, aðkomumaður.EdilonUppruni nafnsins er óviss. Hugsanlega skylt ítalska nafninu „Edilio“ sem einnig er til í myndinni „Ediliano“.GabríelNafen þetta er biblíunafn komið úr hebresku og merkir hetja guðs. Gabríel er einn helsti af englum guðs og af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverkið.AaronAron er biblíunafn og hét svo bróðir Móses sem Guð útnefndi talsmann hans; hann varð síðar fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en trúlega er það fremur af egypskum en hebreskum uppruna. Sú hefðbundna skýring að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“, „hinn sterki“, er líklega alþýðuskýring. Nafnið samsvarar arabíska nafninu „Harun“ og er vel þekkt meðal gyðinga. Í ensku og þýsku er „Aaron“ algengasta mynd nafnsins en í Norðurlandamálunum „Aron“; það þekkist í Danmörku frá 13. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 14. öld. Á Íslandi var nafnið líklega tekið upp á 12. öld og kemur m.a. fram í Sturlungu, þar sem sagt er frá Aroni Bárðarsyni í Selárdal og Aroni Halldórssyni í Ögri. Ritmyndin „Aaron“ var samþykkt á mannanafnaskrá árið 2013.GeorgeEnska mynd nafnsins „Georg“, sem er komið af latínu „Georgius“, úr grísku „Geórgios“, af „geōrgós“ er merkir „jarðyrkjumaður, bóndi“, samsett af „gē“ „jörð“ og „ergein“ „að vinna“. Heilagur Georg (d. 306) var píslarvottur og prins í Kappadókíu í Litlu-Asíu, frægur fyrir að vinna dreka og frelsa prinsessu, og er verndardýrlingur Englands, Portúgals og Þýskalands.SalómonNafn þetta er biblíunafn, tekið af hebreska orðinu "shalom" sem þýðir friður.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →