Tirsa
Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði· 1 ber nafnið
Nafnið er notað í ensku- og þýskumælandi löndum, ritað „Tirza“, „Thirza“ og „Tirzah“. Það á rætur í Biblíunni en Tirsa var höfuðborg Samaríu á dögum Jeróbóams samkvæmt Fyrri Konungabók. Að baki liggur hebreska orðið „trsā“ sem merkir „yndisþokki, fegurð; sæla“.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
TinnaHarður, svartur kvartssteinn.TindraNafnið þekkist í Svíþjóð og hefur hugsanlega borist þaðan til Íslands. Það er talið myndað af sögninni „tindra“ sem merkir að glitra, blika eða ljóma.TelmaSama/svipað og Thelma.TanjaNafnið er upphaflega rússnesk gælumynd af „Tatjana“ en er nú borið sem eiginnafn víða í Evrópu.YrsaNafn þetta er dregið af nafnorðinu "yrsa" sem merkir stygg ær, - óhemja.ThelmaNafn þetta er komið frá rithöfundinum Marie Corelli sem bjó það til fyrir samnefnda skáldsögu sem kom út árið 1887. Nafnið er e.t.v. fengið af gríska orðinu "thelema" sem merkir ósk.MarsaUppruni nafnsins er óviss en ef til vill er það stytting á nöfnum eins og „Marsilía“, „Marsilína“ eða „Marsibil“.TeklaNafnið er upprunalega samandregin mynd úr grísku orðunum „theós“ sem merkir guð og „kléos“ sem merkir frægð, sæmd. Fyrsti kvenpíslarvotturinn, sem uppi var á 1. öld, hét „Thekla“ og var afar vinsæl á miðöldum. Samkvæmt Claris sögu bar einnig þjónustustúlka þetta nafn. Nafnið hefur verið vinsælt í Þýskalandi, en dóttir Wallensteins í samnefndu verki Schillers hét „Thekla“, og lag Weyse við ástarsöng úr verkinu ýtti enn frekar undir vinsældir þess.