Greinar / Nafnasöfn

Nöfn tengd sjó og veðri

Íslendingar hafa löngum sótt nöfn í hafið og veðrið. Alda, Bára og Hrönn merkja öldu og Ægir var sjávarguð. Drífa og Mjöll merkja snjó, en Blær er mildur vindur.

Nafn er í safninu þegar merking þess í gagnagrunninum vísar til sjávar, snjós, vinds eða annars veðurs. Hafdís og Sævar eru undir „Samsett nöfn“, því þar merkir aðeins forliðurinn sjó.

Stúlkunöfn

  • Unnur
    StúlkaSamþykkt2 atkv.979 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta hefur bæði verið tengt við orðið "unnur" í merkingunni alda, - bára og einnig hefur það verið tengt við sögnina "unna"´sem merkir að elska, - þykja vænt um.

  • Alda
    StúlkaSamþykkt2 atkv.363 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af orðinu alda (á sjó), bára, bylgja.

  • Hrönn
    StúlkaSamþykkt1 atkv.330 sem fyrsta nafn

    Hrönn hét ein dætra Ægis sækonungs og merkir nafnið alda, - bára.

  • Bára
    StúlkaSamþykkt2 atkv.322 sem fyrsta nafn

    Alda á sjó.

  • Drífa
    StúlkaSamþykkt2 atkv.134 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta merkir snjór. Nafn þetta kemur fyrir í Fornaldarsögum Norðurlanda en dætur Snæs konungs hétu Mjöll, Drífa og Fönn. Einnig kemur þetta nafn fyrir í Andrésblöðum en frænkur Andrésínu heita einmitt Mjöll, Drífa og Fönn.

  • Bylgja
    StúlkaSamþykkt2 atkv.102 sem fyrsta nafn

    Alda/bára á sjó.

  • Maren
    StúlkaSamþykkt2 atkv.74 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting danska nafnsins "Mariane" sem merkir af hafi.

  • Dröfn
    StúlkaSamþykkt1 atkv.71 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr fornsögunum. Ein af dætrum Ægis sjávarkonungs og Ránar konu hans hét einmitt Dröfn og merkir nafnið alda, - bára.

  • Rán
    StúlkaSamþykkt1 atkv.50 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta hefur verið tengt nafnorðinu "ræna" sem merkir skynsemi, - meðvitund. Sumir telja að nafnið sé hingað komið úr norrænni goðafræði og þá frá sjávargyðjunni Rán sem safnaði saman þeim sem höfðu drukknað.

  • Dögg
    StúlkaSamþykkt1 atkv.46 sem fyrsta nafn

    Áfall, náttfall. Nafn þetta er einnig vinsæll viðliður kvennafna.

  • Yrja
    StúlkaSamþykkt2 atkv.40 sem fyrsta nafn

    Að baki liggur nafnorðið „yrja“ sem merkir 'regnúði; hret'. Ef til vill hefur ritverkið „Ísfólkið“ haft einhver áhrif á nafngiftirnar.

  • Mjöll
    StúlkaSamþykkt1 atkv.22 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta merkir snjór. Nafn þetta kemur fyrir í Fornaldarsögum Norðurlanda en dætur Snæs konungs hétu Mjöll, Drífa og Fönn. Einnig kemur þetta nafn fyrir í Andrésblöðum en frænkur Andrésínu heita einmitt Mjöll, Drífa og Fönn.

  • Blær
    StúlkaSamþykkt21. mar 20131 atkv.19 sem fyrsta nafn

    Andvari, - gola. Kvenmannsnafnið Blær. Þetta nafn er einnig til sem karlmannsnafn

  • Marína
    StúlkaSamþykkt3 atkv.15 sem fyrsta nafn

    Nafnið er talið stytting á nafninu „Marina“ sem aftur er talið kvenkynsmyndun af latneska ættarheitinu „Marīnus“. Latneska lýsingarorðið „marīnus“ merkir „sem viðkemur hafi; frá sjó“. „Marina“ varð eitt algengasta nafn á miðöldum og þótti minna á Maríu mey. Heilög Marína frá Alexandríu var uppi á 5. öld. Nafnmyndin „Marín“ er líklegast millistig milli „Marína“ og „Maren“.

  • Indra
    StúlkaSamþykkt2 atkv.10 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr indverskri goðafræði. Það er sett saman af forliðnum "indu" sem merkir dropi og viðliðnum "ra" sem merkir að eiga. Indra er guð himins og regns. Nafnið gæti því merkt sá sem á regndropana, - sá sem stýrir regninu.

  • Fönn
    StúlkaSamþykkt1 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta merkir snjór. Nafn þetta kemur fyrir í Fornaldarsögum Norðurlanda en dætur Snæs konungs hétu Mjöll, Drífa og Fönn. Einnig kemur þetta nafn fyrir í Andrésblöðum en frænkur Andrésínu heita einmitt Mjöll, Drífa og Fönn.

  • Marinella
    StúlkaSamþykkt4 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er líklega smækkunarmynd nafnsins "Marina" sem merkir sú sem við hafið býr.

  • Dúfa
    StúlkaSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr fornsögunum. Ein af dætrum Ægis sjávarkonungs og Ránar konu hans hét einmitt Dúfa og merkir nafnið alda, - bára. Fuglsheitið gæti líka legið að baki í sumum tilvikum.

  • Fjara
    StúlkaSamþykkt13. jan 20222 atkv.2 sem fyrsta nafn

    „Fjara“ merkir það þegar lágsjávað er.

  • Mariska
    StúlkaSamþykkt22. júl 20193 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið mun vera ungverskt að uppruna og merkja „beiskur“ eða „frá sjó“.

  • Undína
    StúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið var upphaflega notað um vatnadísir og er komið úr latínu „undine“ sem merkir vatnadís, dregið af „unda“ sem merkir alda. Sagan Undine eftir Friedrich de la Motte-Fouqué, sem kom út 1811, átti sinn þátt í að kynna nafnið, en hún fjallar um vatnadísina Undínu sem gekk að eiga mennskan mann til þess að verða ódauðleg. Steingrímur Thorsteinsson þýddi söguna á íslensku og kom hún út 1861. Lortzing samdi óperu um söguna við texta E.T.A. Hoffmanns, og vesturíslenska skáldkonan Helga Baldvinsdóttir orti undir dulnefninu Undína á 19. öld.

  • Gola
    StúlkaSamþykkt5. ágú 20162 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „gola“ sem merkir „blær, vindur, kaldi“.

  • Kvika
    StúlkaSamþykkt11. ágú 20212 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnorðið „kvika“ hefur fleiri en eina merkingu: „bergkvika, bráðið berg úr iðrum jarðar“ og „undiralda, brotsjór, bylgja“. Sama stofn og lýsingarorðið kvikur „lifandi, hreyfanlegur“.

  • Brim
    StúlkaSamþykkt13. jan 20221 atkv.

    Brim er íslenskt nafn af orðinu brim sem merkir „ólgandi og brotnandi bára þar sem sjór fellur að landi“.

  • Gára
    StúlkaSamþykkt11. jún 20202 atkv.

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „gára“ sem merkir ýfing á vatni, smá alda.

  • Hrím
    StúlkaSamþykkt3. júl 20251 atkv.

    Hrím er íslenskt nafn af orðinu „hrím“ sem merkir „héla, frostlag sem sest á hluti í kulda“.

  • Snjáka
    StúlkaSamþykkt17. des 20082 atkv.

    Snjáka er íslenskt kvenmannsnafn dregið af snjór (snjá-) „snjór, fönn“; kvenkynsmynd á móti Snjóka.

  • Sólbráð
    StúlkaSamþykkt5. jan 20232 atkv.

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „sólbráð“ sem merkir bráðnun snjóa af sólarhita.

  • Þoka
    StúlkaSamþykkt27. jún 20052 atkv.

    Nafnið er myndað af nafnorðinu „þoka“.

  • Þruma
    StúlkaSamþykkt7. mar 20242 atkv.

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „þruma“ sem merkir skrugga eða þórduna.

Drengjanöfn

  • Kári
    DrengurSamþykkt2 atkv.913 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er veik mynd lýsingarorðsins "kárr" sem merkir hrokkinn, - hrokkinhærður. Einnig má geta þess að nafn þetta er notað um vind. Þegar vindurinn blæs hressilega er oft talað um að Kári blási.

  • Breki
    DrengurSamþykkt2 atkv.283 sem fyrsta nafn

    Ýmist talið að nafn þetta merki brotsjór eða blindsker, eða þá að það merki eldur.

  • Ægir
    DrengurSamþykkt2 atkv.273 sem fyrsta nafn

    Ægir var nafn sjávarguðsins í norrænni goðafræði og er það nafn líklega komið af latneska orðinu "aqua" sem merkir vatn.

  • Unnar
    DrengurSamþykkt2 atkv.249 sem fyrsta nafn

    Skiptar skoðanir eru um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja það leitt af orðinu "unnur" í merkingunni alda, - bára. Aðrir að það sé komið af karlkyns nafnorðinu "unnur" sem merkir sverð. Enn aðrir telja að það tengist sögninni "unna" sem merkir að elska, - þykja vænt um.

  • Marinó
    DrengurSamþykkt3 atkv.228 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er hliðarmynd við latneska nafnið "Marinus" sem myndað er af nafnorðinu "mare" sem merkir sjór.

  • Frosti
    DrengurSamþykkt2 atkv.194 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af nafnorðinu "frost".

  • Stormur
    DrengurSamþykkt2 atkv.97 sem fyrsta nafn

    Nafnið er fremur ungt í íslensku. „Storm“ þekkist á Norðurlöndum og í enskumælandi löndum sem karlmannsnafn. „Stormur“ er sama orð og stormur, þ.e. „hvass vindur, rok“.

  • Brimir
    DrengurSamþykkt2 atkv.62 sem fyrsta nafn

    Nafnið er annaðhvort sama orðið og „brimir“ sem merkir „sverð“ og var einnig annað nafn á Ými jötni, eða myndað af nafnorðinu „brim“ sem merkir „mikill sjávargangur, stórar öldur“.

  • Blær
    DrengurSamþykkt1 atkv.19 sem fyrsta nafn

    Andvari, - gola. Kvenmannsnafnið Blær. Þetta nafn er einnig til sem karlmannsnafn

  • Dylan
    DrengurSamþykkt26. jan 20222 atkv.13 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent og rakið til Wales. Í Bandaríkjunum er það kynhlutlaust, þ.e. bæði notað sem nafn á drengi og stúlkur. Nafnið er talið merkja „haf, sjór“.

  • Snær
    DrengurSamþykkt1 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "snær" sem merkir snjór.

  • Þórgnýr
    DrengurSamþykkt2 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af forliðnum "Þór" í merkingunni þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði, og viðliðnum "gnýr" sem merkir hávaði. Nafn þetta merkir þruma.

  • Hrímnir
    DrengurSamþykkt4. mar 20052 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir sem jötunsheiti í þulum og vísum til forna. Það er myndað af nafnorðinu „hrím“ sem merkir héla.

  • Mari
    DrengurSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur líklegast nafnorðið „mari“ sem merkir hlýr sunnanvindur að vetrarlagi. Einnig er hugsanlegt að um sé að ræða stuttmynd af nöfnum sem enda á „-mar“, svo sem „Mar“.

  • Marís
    DrengurSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Uppruni nafnsins er óviss. Í enskumælandi löndum þekkist það sem afleiðsla af latneska nafnorðinu „mare“ sem merkir haf, sjór. Í nágrannamálunum er „Maris“ notað sem kvenmannsnafn.

  • Marino
    DrengurSamþykkt11. júl 20223 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafnið er ítölsk hliðarmynd af „Marinus“, dregið af latínu „mare“, sem merkir sjór, og lýsingarorðinu „marīnus“ sem merkir sá sem býr við sjóinn.

  • Brimi
    DrengurSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafnið er dregið af orðinu „brim“ sem merkir mikill sjávargangur, stórar öldur.

  • Marínó
    DrengurSamþykkt22. des 20113 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafnið er ítölsk hliðarmynd af „Marinus“, dregið af latnesku orði „mare“ sem merkir sjór, og lýsingarorðinu „marīnus“ sem merkir sá sem býr við sjóinn.

  • Aldan
    DrengurSamþykkt21. apr 20202 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Aldan er dregið af íslenska orðinu „alda“ (þung bylgja á sjó) með viðskeyttum greini: „aldan“.

  • Svali
    DrengurSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "svali" sem merkir kuldi.

  • Svalur
    DrengurSamþykkt9. sep 20212 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Kaldur. Kemur fyrir á 12. öld.

  • Sær
    DrengurSamþykkt1 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af nafnorðinu "sær" sem merkir sjór,- haf.

  • Garri
    DrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur að líkindum nafnorðið „garri“ sem merkir rosti eða kaldur vindur.

  • Hlér
    DrengurSamþykkt1 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta merkir sjór, - haf. Nafnið skýrist hvað best í vísunum "Áfangar" úr bókinni "Úr landsuðri" eftir Jón Helgason sem var gefin út árið 1939. "Tröllakirkjunar tíðasöng tóna þau Hlér og Alda" Í Tröllakirkjunar tíðasöng er átt við brimið, og Hlér (hafið) og dóttir þess Aldan tóna í því.

  • Mar
    DrengurSamþykkt1 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "mar" sem merkir sjór.

  • Neptúnus
    DrengurSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Neptúnus var sjávarguð Rómverja og eftir honum er reikistjarnan Neptúnus nefnd, sem er áttunda reikistjarna frá sólu.

  • Snæringur
    DrengurSamþykkt15. apr 20053 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur líklegast nafnorðið „snæringur“ í merkingunni 'frost með hríðarhraglanda' eða bæjarheitið „Snæringsstaðir“ í Húnavatnssýslu.

  • Þeyr
    DrengurSamþykkt1 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta merkir sunnanþeyr, hlýindi, þíðviðri.

  • Bylur
    DrengurSamþykkt26. jún 20182 atkv.

    Að baki nafninu liggur nafnorðið „bylur“ sem merkir mikill vindur með snörpum hviðum og snjókomu.

  • Hafsjór
    DrengurSamþykkt25. apr 20222 atkv.

    Nafnorðið „hafsjór“ merkir „mikið vatn, flóð, vatnselgur“.

  • Hjarnar
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Uppruni nafnsins er óviss en ef til vill er það myndað af nafnorðinu „hjarn“ sem merkir harðfrosið snjólag, með viðskeytinu „-ar“.

  • Hrímir
    DrengurSamþykkt30. nóv 20222 atkv.

    Að baki nafninu liggur hugsanlega nafnorðið „hrím“ sem merkir héla eða sót á potti, ásamt viðskeytinu „-ir“.

  • Kaldi
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafnið er leitt af lýsingarorðinu „kaldur“.

  • Kali
    DrengurSamþykkt5. okt 20122 atkv.

    Nafnið kemur fyrir í Landnámu og hefur trúlega verið notað sem viðurnefni í fyrstu. Það er sama orð og „kali“ sem merkir kuldagjóstur. Það var einnig notað í fornsænsku.

  • Klaki
    DrengurSamþykkt15. maí 20242 atkv.

    Klaki er íslenskt karlmannsnafn af orðinu klaki sem merkir „frosin jörð, gaddur, íslag á jörðu“.

  • Snjóki
    DrengurSamþykkt17. des 20092 atkv.

    Snjóki er íslenskt karlmannsnafn dregið af snjór „snjór, fönn“; karlkynsmynd á móti nafninu Snjáka.

  • Snjór
    DrengurSamþykkt29. maí 20261 atkv.

    Snjór er íslenskt karlmannsnafn af orðinu snjór sem merkir „snjór, fönn, frosin úrkoma sem fellur til jarðar“.

  • Stormar
    DrengurSamþykkt20. feb 20252 atkv.

    Stormar er íslenskt karlmannsnafn af orðinu stormur „stormur, hvassviðri“, hér í fleirtölumynd stormar.

Kynhlutlaus nöfn

  • Frost
    KynhlutlaustSamþykkt29. des 20201 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafnið er myndað af nafnorðinu „frost“ sem merkir „kuldi neðan við frostmark“.

  • Regn
    KynhlutlaustSamþykkt19. okt 20201 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur nafnorðið „regn“ sem merkir rigning, úrkoma.

  • Logn
    KynhlutlaustSamþykkt21. apr 20211 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Logn er íslenskt nafn dregið af orðinu „logn“ sem merkir „kyrrt og vindlaust veður“.

  • Silfurregn
    KynhlutlaustSamþykkt13. ágú 20253 atkv.

    Silfurregn er samsett íslenskt nafn úr „silfur“ og „regn“, og merkir bókstaflega „silfurlitað regn“.

  • Snæ
    KynhlutlaustSamþykkt9. sep 20211 atkv.

    Nafnið er sama orð og „snær“ sem merkir snjór, mjöll.

Samsett nöfn

Nöfn þar sem einn hluti nafnsins tengist þemanu.

Stúlkunöfn

  • Hafdís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.755 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

  • Fanney
    StúlkaSamþykkt2 atkv.489 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Fann-“ og viðliðnum „-ey“ og átti að minna á Ísland, þ.e. „hin snævi þakta eyja“. Það kemur fram um miðja 19. öld og naut vinsælda meðal annars vegna barna- og unglingatímaritsins „Fanney“ sem kom út 1905–1909.

  • Snædís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.249 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

  • Sædís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.160 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

  • Sæunn
    StúlkaSamþykkt2 atkv.149 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "unn" sem merkir unnir, - elskar, - ást.

  • Hafrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.146 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Særún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.110 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Snjólaug
    StúlkaSamþykkt2 atkv.88 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "snjór" sem merkir snjór og viðliðnum "laug" sem merkir hrein, - tær.

  • Fanndís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.80 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

  • Snæfríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.77 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg, - ást.

  • Fanný
    StúlkaSamþykkt2 atkv.55 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðskeytinu "ý".

  • Ísafold
    StúlkaSamþykkt3 atkv.35 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "fold" sem merkir jörð. Ísafold var notað af rómantískum skáldum sem annað heiti á Íslandi.

  • Sæbjörg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.29 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.

  • Marey
    StúlkaSamþykkt2 atkv.25 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "ey".

  • Særós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.20 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Sóldögg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.16 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sól" sem fenginn er af nafnorðinu "sól" og viðliðnum "dögg" sem merkir náttfall.

  • Hafrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.15 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Snæbjört
    StúlkaSamþykkt2 atkv.13 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "björt" sem merkir björt, - skær.

  • Blædís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.12 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu Blær sem merkir andvari og viðliðnum"dís" sem merkir heilladís, - verndargyðja.

  • Mardís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.12 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

  • Hafey
    StúlkaSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "ey".

  • Snærós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Brimrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.10 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af „brim“ sem merkir mikill sjávargangur, stórar öldur, og viðliðnum „-rún“, sbr. „Rún“.

  • Snæbjörg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.8 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.

  • Snærún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.6 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Brimdís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "Brim" og viðskeytinu "dís" sem merkir heilladís, - verndargyðja. Brimdís gæti því verið heilladís hafsins.

  • Íshildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

  • Stormey
    StúlkaSamþykkt20. feb 20202 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af nafnorðinu „stormur“ sem merkir hvass vindur, rok, og viðliðnum „-ey“.

  • Sævör
    StúlkaSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "vör" sem merkir verja, - gæta yfir.

  • Daggrós
    StúlkaSamþykkt15. sep 20052 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Dögg og rós.

  • Ísgerður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "gerður" sem merkir vernd.

  • Hafalda
    StúlkaSamþykkt10. jan 20203 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og nafnorðinu "alda" sem merkir bylgja, - bára.

  • Haflína
    StúlkaSamþykkt3 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðskeytinu "lína".

  • Sigurbára
    StúlkaSamþykkt4 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "bára" sem merkir alda.

  • Snæborg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "borg" sem merkir vörn.

  • Brimhildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "Brim" og viðskeytinu "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

  • Frostrós
    StúlkaSamþykkt4. jún 20092 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af nafnorðinu „frost“ og viðliðnum „-rós“, sbr. nafnið „Rós“.

  • Ísbjörg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.

  • Ísrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Snjáfríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "snjár" sem merkir snjór og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg, - ást.

  • Snæbrá
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum „Snæ“ sem merkir snjór og viðliðnum „brá“ sem merkir augnalok, augnhár.

  • Snælaug
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.

  • Sæbjört
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "björt" sem merkir björt, - skær.

  • Sæborg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "borg" sem merkir vörn.

  • Sæfinna
    StúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "finna" sem merkir kona.

  • Sæfríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg, - ást.

  • Brimey
    StúlkaSamþykkt5. sep 20222 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af „brim“, sem merkir mikill sjávargangur eða stórar öldur, og viðliðnum „-ey“.

  • Hafbjörg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp.

  • Ísleif
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "leif" sem merkir arfur.

  • Margunnur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "gunnur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

  • Marlaug
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.

  • Mjalldís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af nafnorðinu "mjöll" sem merkir snjór og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís, - verndargyðja.

  • Mjallhvít
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af nafnorðinu "mjöll" sem merkir snjór og lýsingarorðinu "hvítur". Það er líklegast sótt í ævintýrið um Mjallhvíti og dvergana sjö.

  • Snjófríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "snjór" sem merkir snjór og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg,- ást.

  • Snæfríð
    StúlkaSamþykkt17. mar 20172 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "fríð" sem merkir falleg.

  • Sælaug
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.

  • Fannlaug
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er samsett af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.

  • Hafborg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "borg" sem merkir vörn.

  • Hafný
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "ný" sem merkir ung, - ný.

  • Ísdís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís, - verndargyðja.

  • Ísdögg
    StúlkaSamþykkt18. apr 20182 atkv.

    Nafnið er sett saman af orðunum „ís“ og „dögg“.

  • Íslaug
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.

  • Ísveig
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "veig" sem merkir afl, - kraftur.

  • Marfríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg, - ást.

  • Marheiður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "heiður" sem merkir björt, - skær.

  • Sigurdrífa
    StúlkaSamþykkt4 atkv.

    Sigurdrífa var nafn valkyrju sem segir frá í Sigurdrífumálum, einu eddukvæða, og virðist ekki koma annars staðar fyrir í fornbókmenntum. Nafnið er sett saman af forliðnum „Sigur-“ og „drífa“ sem merkir „snjókoma; örvarheiti“.

  • Snæbjörk
    StúlkaSamþykkt7. apr 20252 atkv.

    Snæbjörk er íslenskt kvenmannsnafn, samsett úr forliðnum Snæ- „snjór“ og björk „björk (tréð)“; merkir bókstaflega „snæviþakin björk“.

  • Svalrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu "Svali" sem merkir kuldi og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Sæhildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

  • Sæný
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "ný" sem merkir ung, - ný.

  • Vígdögg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Víg-“ og nafnorðinu „dögg“ sem merkir „náttfall“.

  • Ægileif
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er líklega sett saman af karlmannsnafninu "Ægir" sem merkir vatn,- haf og viðliðnum "leif" sem merkir arfur.

Drengjanöfn

  • Sævar
    DrengurSamþykkt2 atkv.594 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "var" sem merkir gætinn, - varkár.

  • Hafsteinn
    DrengurSamþykkt2 atkv.519 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "steinn" sem merkir steinn, - harður.

  • Fannar
    DrengurSamþykkt2 atkv.439 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður.

  • Hafþór
    DrengurSamþykkt2 atkv.415 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn úr norrænni goðafræði.

  • Sæmundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.250 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn, - gjöf.

  • Hrannar
    DrengurSamþykkt2 atkv.195 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af kvennafninu "Hrönn" sem merkir alda, - bára og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.

  • Hreiðar
    DrengurSamþykkt2 atkv.134 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Hreið" sem ýmist er talið merki þjóðflokkinn Hreiðgota, - fegurð, - skraut, - stormur og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.

  • Snæbjörn
    DrengurSamþykkt2 atkv.133 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.

  • Hafliði
    DrengurSamþykkt3 atkv.129 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "liði" sem merkir liðsmaður.

  • Sæþór
    DrengurSamþykkt2 atkv.109 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn úr norrænni goðafræði.

  • Ísar
    DrengurSamþykkt2 atkv.83 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðskeytinu "ar" sem merkir broddur.

  • Ísleifur
    DrengurSamþykkt3 atkv.81 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "leifur" sem merkir arfur.

  • Margeir
    DrengurSamþykkt2 atkv.62 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.

  • Snævar
    DrengurSamþykkt2 atkv.43 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.

  • Brimar
    DrengurSamþykkt2 atkv.38 sem fyrsta nafn

    Myndað af nafnorðinu "Brim" og viðskeytinu "ar". Brimar gæti því verið hermaður á sjó.

  • Hreggviður
    DrengurSamþykkt3 atkv.34 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "hregg" sem merkir snjókoma, - slydda og nafnorðinu "viður" sem merkir tré.

  • Snæþór
    DrengurSamþykkt2 atkv.26 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn úr norrænni goðafræði.

  • Ísólfur
    DrengurSamþykkt3 atkv.19 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.

  • Sæbjörn
    DrengurSamþykkt2 atkv.18 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.

  • Snjólfur
    DrengurSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snjó" sem merkir snjór og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.

  • Ísarr
    DrengurSamþykkt2. feb 20072 atkv.10 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir í Sturlungu á 13. öld og í fornbréfum frá 15. öld. Það er sett saman af forliðnum „Ís-, Ísa-“ og viðliðnum „-ar“ og gæti merkt „ís-spjót, ísabroddur“.

  • Hafberg
    DrengurSamþykkt2 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættur.

  • Sævaldur
    DrengurSamþykkt3 atkv.6 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "valdur" sem merkir ræður yfir, - hefur stjórn á.

  • Fannberg
    DrengurSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættur.

  • Sævin
    DrengurSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "vin" sem merkir vinur, - félagi.

  • Döggvi
    DrengurSamþykkt14. júl 20202 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Fyrri liðurinn er dreginn af nafnorðinu „dögg“ sem merkir „áfall, bleyta á grasi“ en viðliðurinn er sóttur til nafna eins og „Tryggvi“ og „Yngvi“.

  • Marjón
    DrengurSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur.

  • Frostúlfur
    DrengurSamþykkt7. ágú 20193 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er myndað af nafnorðunum „frost“, sem merkir kuldi neðan við frostmark, og „úlfur“.

  • Brimþór
    DrengurSamþykkt22. des 20172 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af „brim“ sem merkir mikill sjávargangur, stórar öldur, og viðliðnum „-þór“ sem vísar til Þórs.

  • Fanngeir
    DrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.

  • Ísgeir
    DrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.

  • Ísmar
    DrengurSamþykkt11. okt 20062 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman úr nafnorðinu "ís" og viðliðnum "mar" sem merkir haf, - sær.

  • Sæberg
    DrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættur.

  • Sælaugur
    DrengurSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "laugur" sem merkir tær, - hreinn.

  • Vindar
    DrengurSamþykkt13. mar 20142 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er myndað af nafnorðinu „vindur“ og viðskeytinu „-ar“.

  • Éljagrímur
    DrengurSamþykkt17. nóv 20214 atkv.

    Nafnið er samsett úr „él“ sem merkir skammvinn snjókoma, haglél, og „-grímur“. Samkvæmt Íslenskri orðabók er „Éljagrímur“ snjóvættur, grýla á börn.

  • Hafgnýr
    DrengurSamþykkt23. jan 20252 atkv.

    Hafgnýr er samsett íslenskt karlmannsnafn úr haf „haf, úthaf“ og gnýr „dynur, gnýr“; merkir „hafgnýr, brimhljóð“.

  • Hafgrímur
    DrengurSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "grímur" sem merkir hulinn, - falinn.

  • Hreiðmar
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Hreið" sem ýmist er talið merki þjóðflokkinn Hreiðgota, - fegurð, - skraut, - stormur og viðliðnum "mar" sem merkir frægur.

  • Íseldur
    DrengurSamþykkt11. des 20123 atkv.

    Nafnið er sett saman af orðunum „ís“ og „eldur“.

  • Marbjörn
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.

  • Margrímur
    DrengurSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "grímur" sem merkir hulinn, - falinn

  • Snjókaldur
    DrengurSamþykkt20. ágú 20253 atkv.

    Snjókaldur er samsett íslenskt karlmannsnafn úr snjór „snjór, fönn“ og kaldur „kaldur“; merkir „snjókaldur“.

  • Snæhólm
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "hólm" sem leiddur er af nafnorðinu hólmi.

  • Snælaugur
    DrengurSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "laugur" sem merkir tær, - hreinn.

  • Sæbergur
    DrengurSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "bergur" sem merkir bjargvættur.

  • Sæmann
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "mann" sem merkir maður.

Kynhlutlaus nöfn

  • Snæfrost
    KynhlutlaustSamþykkt10. ágú 20222 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Snæ-“ og nafnorðinu „frost“.

Vantar nafn eða á eitthvað ekki heima hér? Sendu ábendingu

Fleiri nafnasöfn

Merking nafna kemur úr gagnagrunni síðunnar. Gögn um nafnatíðni eru fengin frá Þjóðskrá Íslands.