Rúben

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 14 bera nafnið

Nafnið er sótt til Biblíunnar og er hebreskt. Jakob og Lea skírðu son sinn þessu nafni samkvæmt Fyrstu Mósebók (29.32) Gamla testamentisins og frá honum voru Rúbenítar komnir. Það er talið merkja „sjá, sonur!“. Nafnið er notað í enskumælandi löndum sem hliðarmynd af „Reuben“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.

Auglýsing

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

17

Fyrsta nafn

1

Annað nafn

18

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042026

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

RúbarÞetta er kúrdískt karlmannsnafn, „Rūbar“, sem merkir „fljót“.RúnarNafnið er tiltölulega ungt í íslensku en „Runar“ þekkist í Svíþjóð frá síðari hluta 19. aldar og barst til Noregs í upphafi 20. aldar. Það er sett saman af „rún“ sem merkir „töfrastafur, sérstakt rittákn“ en einnig „leyndardómur, trúnaðarkona“ og viðskeytinu „-ar“.RúrikNafn þetta er þýskt að uppruna, sett saman af nafnorðinu "hroth" sem merkir hróður, - frægð og lýsingarorðinu "rihhi" sem merkir ríkur, - voldugur.RúturNafn þetta merkir hrútur.RómanAð uppruna er nafnið yfirleitt talið rússneskt, pólskt og tékkneskt, myndað eftir síðlatneska nafninu „Rōmānus“ sem merkir „maður frá Róm, Rómverji“.RúniNafn þetta er líklega stytting á Rúnar.ReginNafnið er í raun ritháttarafbrigði karlmannsnafnsins „Reginn“, sem kemur fyrir sem dvergsheiti og ef til vill Óðinsheiti að fornu. Það er skylt nafnorðinu „regin“ 'goð, goðmögn, æsir', sbr. gotnesku „ragin“ 'ráð, ákvörðun', og merkir eiginlega 'ráð, áætlun' og einnig 'ráðandi, ákvarðandi goðmögn'. Nafnið þekkist í Danmörku frá 13. öld en barst til Svíþjóðar ekki fyrr en á 19. öld.TorbenNafnið er dönsk mynd af „Þorbjörn“/„Þórbjörn“ og kemur einnig fyrir í Landnámu og víða í fornum bókmenntum. Í gamalli dönsku þekktist nafnið „Thorbiorn“, sem stytt var í „Thorben“, auk hliðarmyndanna „Thurbiorn“ og „Therbern“; í fornsænsku eru heimildir um „Thorbiørn“ og „Thorbiærn“. Nú er nafnið ritað „Torben“ í Danmörku, „Torbjørn“ í Noregi og „Torbjörn“ í Svíþjóð. Upprunalegu nöfnin „Þorbjörn“ og „Þórbjörn“ eru samsett af forliðnum „Þor-“ („Þór-“) og viðliðnum „-björn“.

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.