Greinar / Nafnasöfn

Blóma- og trjánöfn

Blóm og tré hafa lengi verið nafnaefni á Íslandi. Lilja, Rósa og Fjóla eru gömul og algeng stúlkunöfn. Hlynur og Reynir eru trjáheiti sem urðu að drengjanöfnum, og Björk er trjáheiti sem stúlkur bera.

Nafn er í safninu þegar merking þess í gagnagrunninum segir að það sé dregið af blómi, jurt eða tré. Í Sigurrós og Sóllilju er aðeins viðliðurinn jurtarheiti, og slík nöfn eru undir „Samsett nöfn“.

Stúlkunöfn

  • Lilja
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.369 sem fyrsta nafn

    Jurtaheitið lilja.

  • Sóley
    StúlkaSamþykkt2 atkv.759 sem fyrsta nafn

    Nafnið er myndað af forliðnum „Sól-“ og viðliðnum „ey“ og merkir þá „sólareyja“. Hugsanlega gæti jurtarheitið „sóley“ einnig legið að baki sumum nafngiftunum.

  • Lára
    StúlkaSamþykkt2 atkv.650 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta kemur frá latneska nafninu "Laurentia" sem merkir sú sem ber lárviðarkrans.

  • Rósa
    StúlkaSamþykkt2 atkv.547 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af jurtaheitinu rós.

  • Embla
    StúlkaSamþykkt2 atkv.542 sem fyrsta nafn

    Embla er fyrsta konan í norrænni goðafræði, - viðarheiti. Sagan segir að Óðinn og bræður hans hafi gefið tveimur trjám, Aski og Emblu líf og urðu þau fyrstu manneskjurnar og frá þeim á allt mannkyn að vera komið.

  • Björk
    StúlkaSamþykkt1 atkv.348 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af trjáheitinu björk.

  • Fjóla
    StúlkaSamþykkt2 atkv.339 sem fyrsta nafn

    Jurtaheitið fjóla.

  • Sylvía
    StúlkaSamþykkt3 atkv.266 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska orðinu "silva" sem merkir skógur.

  • Súsanna
    StúlkaSamþykkt3 atkv.87 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni og er fengið af hebreska orðinu "shoshan" sem merkir lilja.

  • Olivia
    StúlkaSamþykkt26. ágú 20134 atkv.63 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna og elsta heimild um það er í leikritinu „Þrettándakvöld“ eftir Shakespeare frá lokum 16. aldar. Talið er að höfundur hafi annaðhvort leitt það af nafninu „Oliver“ eða beint af latneska orðinu „oliva“ sem merkir ólífutré. Nafnið barst til Norðurlanda á 18. öld.

  • Jasmín
    StúlkaSamþykkt2 atkv.61 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna og notað víða í Evrópu í ýmsum myndum. Að baki liggur jurtarheitið „jasmine“ sem upphaflega er persneskt, „yāsaman“. Það varð á arabísku „yāsamīn“, barst þaðan um spænsku „jazmín“ yfir til Bretlands, þar sem það var tekið upp á 19. öld sem eiginnafnið „Jasmine“, og í Þýskalandi upp úr miðri 20. öld sem „Jasmin“, „Jasmina“, „Jasmine“, „Yasmin“ og „Yasmina“.

  • Silvía
    StúlkaSamþykkt3 atkv.37 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska orðinu "silva" sem merkir skógur.

  • Eik
    StúlkaSamþykkt1 atkv.34 sem fyrsta nafn

    Að baki þessu nafni liggur trjáheitið Eik.

  • Ilmur
    StúlkaSamþykkt2 atkv.27 sem fyrsta nafn

    Mismunandi kenningar eru um uppruna og merkingu. Sumir telja að nafn þetta sé komið úr goðafræðinni en Ilmur var nafn á ásynju eða valkyrju. Aðrir telja að nafnið sé komið af nafnorðinu "ilmur" og merki þá ilmandi. Enn aðrir telja að nafnið sé komið af trjáheitinu "Álmur".

  • Viðja
    StúlkaSamþykkt2 atkv.27 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sennilega dregið af trjáheitinu „viðja“ sem er nýyrði um víðitegund. Í eldra máli merkti „viðja“ „víðigrein, víðitág; flækjukjarr“.

  • Susan
    StúlkaSamþykkt28. des 20042 atkv.23 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir í Nýja testamentinu í Lúkasarguðspjalli. Það er hebreskt að uppruna, „Shoshana“, myndað af nafnorðinu „shoshan“ sem merkir „lilja“. Í einni af apókrýfu bókum Biblíunnar er sagt frá Súsönnu konu Jóakims sem ranglega var dæmd til dauða en Daníel kom henni til hjálpar og sannaði sakleysi hennar. Þessi sögn var mjög vinsæl á miðöldum og birtist víða í málverkum, sem stuðlaði mjög að útbreiðslu nafnsins víða um Evrópu.

  • Rós
    StúlkaSamþykkt1 atkv.21 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af jurtaheitinu rós.

  • Jasmin
    StúlkaSamþykkt9. sep 20212 atkv.19 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna og notað víða í Evrópu í ýmsum myndum. Að baki liggur jurtarheitið „jasmine“ sem upphaflega er persneskt, „yāsaman“. Það varð á arabísku „yāsamīn“, barst þaðan um spænsku „jazmín“ yfir til Bretlands, þar sem það var tekið upp á 19. öld sem eiginnafnið „Jasmine“, og í Þýskalandi upp úr miðri 20. öld sem „Jasmin“, „Jasmina“, „Jasmine“, „Yasmin“ og „Yasmina“.

  • Ösp
    StúlkaSamþykkt1 atkv.17 sem fyrsta nafn

    Trjáheitið Ösp

  • Jasmine
    StúlkaSamþykkt23. nóv 20213 atkv.13 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna og notað víða í Evrópu í ýmsum myndum. Að baki liggur jurtarheitið „jasmine“ sem upphaflega er persneskt, „yāsaman“. Það varð á arabísku „yāsamīn“, barst þaðan um spænsku „jazmín“ yfir til Bretlands, þar sem það var tekið upp á 19. öld sem eiginnafnið „Jasmine“, og í Þýskalandi upp úr miðri 20. öld sem „Jasmin“, „Jasmina“, „Jasmine“, „Yasmin“ og „Yasmina“.

  • Lilly
    StúlkaSamþykkt31. okt 20142 atkv.13 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna, upphaflega ensk stytting á „Elísabet“ en blandaðist snemma jurtarheitinu „lily“, sem merkir lilja. „Lilly“ varð vinsælt nafn í Noregi í lok 19. aldar en er lítið notað núna, og þekkist frá svipuðum tíma í Danmörku og Svíþjóð.

  • Rose
    StúlkaSamþykkt19. maí 20202 atkv.12 sem fyrsta nafn

    Erlend mynd nafnsins „Rósa“, sem er komið úr latínu „rosa“ og er nafn á blómi. Á miðöldum voru liljan og rósin meðal tákna Maríu meyjar og var rósin ímynd píslarvottanna sem létu líf sitt fyrir trúna. Talið er að Maríudýrkun miðalda hafi stuðlað að vinsældum nafnsins og útbreiðslu þess. Eysteinn Ásgrímsson orti helgikvæðið „Lilju“ en Sigurður blindur (eða Sigurður Narfason í Fagradal) orti „Rósu“ og nutu bæði kvæðin vinsælda á miðöldum og síðar.

  • Fura
    StúlkaSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Trjáheitið fura.

  • Lillian
    StúlkaSamþykkt3 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Nafnið er enskt að uppruna og þekkist þar sem gælumynd af „Elisabeth“ (Elísabet). Í sumum tilvikum er það leitt af jurtarheitinu „lily“, en sem eiginnafn þekkist nafnið á Englandi ekki fyrr en á 19. öld.

  • Ólivía
    StúlkaSamþykkt22. des 20114 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna og elsta heimild um það er í leikritinu „Þrettándakvöld“ eftir Shakespeare frá lokum 16. aldar. Talið er að höfundur hafi annaðhvort leitt það af nafninu „Oliver“ eða beint af latneska orðinu „oliva“ sem merkir ólífutré. Nafnið barst til Norðurlanda á 18. öld.

  • Silfá
    StúlkaSamþykkt2 atkv.10 sem fyrsta nafn

    Heimildir eru um nafnið frá síðari hluta 18. aldar og var það ritað Silpha. Nafnmyndin Sylva þekkist í Noregi sem hliðarmynd af Sylvia en er einnig talin mynduð beint af latneska nafnorðinu silva: skógur. Íslenska nafnið Silfá er lagað eftir þeirri nafnmynd.

  • Melrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.9 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af jurtaheitinu melrós.

  • Ivy
    StúlkaSamþykkt7. okt 20252 atkv.8 sem fyrsta nafn

    Nafnið er breskt að uppruna og sótt til vínviðarplöntu.

  • Rosemarie
    StúlkaSamþykkt12. okt 20215 atkv.8 sem fyrsta nafn

    Nafnið er enskt að uppruna, „Rosemary“, og er rakið til latneska jurtarheitisins „ros marīnus“. Í sumum tilvikum er nafnið sett saman af „Rose“ og „Mary“.

  • Althea
    StúlkaSamþykkt16. apr 20243 atkv.6 sem fyrsta nafn

    Nafnið er grískt að uppruna og merkir „votlendisblóm, mýrarblóm“.

  • Fífa
    StúlkaSamþykkt2 atkv.6 sem fyrsta nafn

    Jurtaheitið fífa.

  • Viola
    StúlkaSamþykkt13. jan 20223 atkv.6 sem fyrsta nafn

    Nafnið þekkist vel á Norðurlöndum, í enskumælandi löndum og á Ítalíu. Það á rætur að rekja til latneska orðsins „viola“ sem merkir „fjóla“.

  • Rósmary
    StúlkaSamþykkt3 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafnið er enskt að uppruna, „Rosemary“, og er rakið til latneska jurtarheitisins „ros marīnus“. Í sumum tilvikum er nafnið sett saman af „Rose“ og „Mary“.

  • Tamar
    StúlkaSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafnið er hebreskt að uppruna, leitt af nafnorðinu „tāmār“ sem merkir „döðlupálmi“. Það er sótt til Biblíunnar þar sem þrjár konur bera þetta nafn, þar á meðal dóttir Davíðs í Síðari Samúelsbók og tengdadóttir Júda í Fyrstu Mósebók. Einnig nefndi Absalon dóttur sína Tamar.

  • Lily
    StúlkaSamþykkt2 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna, upphaflega ensk stytting á „Elísabet“ en blandaðist snemma jurtarheitinu „lily“, sem merkir lilja. „Lilly“ varð vinsælt nafn í Noregi í lok 19. aldar en er lítið notað núna, og þekkist frá svipuðum tíma í Danmörku og Svíþjóð.

  • Víóletta
    StúlkaSamþykkt4 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna. Í ensku er notuð myndin „Violet“, í frönsku „Violetta“, leidd af fornfranska jurtarheitinu „violette“ sem aftur er fengið að láni úr síðlatínu „violetta“, smækkunarmynd af „viōla“. Íslenska jurtarheitið er „fjóla“.

  • Linnea
    StúlkaSamþykkt24. jún 20163 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafnið er upphaflega sænskt að uppruna, myndað eftir jurtarheitinu „linnea“ sem aftur var nefnt eftir sænska grasafræðingnum Carl Linné.

  • Víóla
    StúlkaSamþykkt17. des 20093 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafnið þekkist vel á Norðurlöndum, í enskumælandi löndum og á Ítalíu. Það á rætur að rekja til latneska orðsins „viola“ sem merkir „fjóla“.

  • Eldlilja
    StúlkaSamþykkt15. maí 20083 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er dregið af jurtarheitinu „eldlilja“.

  • Súsan
    StúlkaSamþykkt4. apr 20112 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir í Nýja testamentinu í Lúkasarguðspjalli. Það er hebreskt að uppruna, „Shoshana“, myndað af nafnorðinu „shoshan“ sem merkir „lilja“. Í einni af apókrýfu bókum Biblíunnar er sagt frá Súsönnu konu Jóakims sem ranglega var dæmd til dauða en Daníel kom henni til hjálpar og sannaði sakleysi hennar. Þessi sögn var mjög vinsæl á miðöldum og birtist víða í málverkum, sem stuðlaði mjög að útbreiðslu nafnsins víða um Evrópu.

  • Sylva
    StúlkaSamþykkt15. apr 20102 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er notað t.d. í Noregi og er þar talið annaðhvort hliðarmynd af „Sylvi“ eða stytting á „Sylvana“ sem aftur er hliðarmynd af ítalska nafninu „Silvana“. Að baki er latneska orðið „silva“ sem merkir skógur.

  • Hvönn
    StúlkaSamþykkt1 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af jurtaheitinu Hvönn.

  • Ivý
    StúlkaSamþykkt19. okt 20202 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er breskt að uppruna og sótt til vínviðarplöntu.

  • Láretta
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta kemur frá ítalska nafninu "Laurétta" sem aftur á móti er komið af latneska nafninu "Laurentia" sem merkir sú sem ber lárviðarkrans.

  • Melía
    StúlkaSamþykkt16. sep 20243 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Úr grísku og merkir „askur“ (tréð). Í grískri goðafræði var Melía ein af dætrum Ókeanosar og Meliai voru dísir asktrjánna. Orðið er skylt gríska orðinu „meli“, hunang.

  • Mörk
    StúlkaSamþykkt1 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur sennilega nafnorðið „mörk“ sem merkir skógur.

  • Olivía
    StúlkaSamþykkt6. des 20234 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna og elsta heimild um það er í leikritinu „Þrettándakvöld“ eftir Shakespeare frá lokum 16. aldar. Talið er að höfundur hafi annaðhvort leitt það af nafninu „Oliver“ eða beint af latneska orðinu „oliva“ sem merkir ólífutré. Nafnið barst til Norðurlanda á 18. öld.

  • Palma
    StúlkaSamþykkt24. jan 20242 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er spænskt og merkir „pálmatré“.

  • Reyn
    StúlkaSamþykkt30. apr 20091 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Uppruni er ekki fullljós en hugsanlega er nafnið sótt til nafnorðsins „reynir“, sem merkir trjátegund, og því tengt nafninu „Reynir“.

  • Rósý
    StúlkaSamþykkt5. feb 20162 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er algengt eiginnafn í hinum enskumælandi heimi, einkum Bandaríkjunum, og er dregið af enska jurtarheitinu „rose“, sbr. íslenska nafnið Rós.

  • Þöll
    StúlkaSamþykkt1 atkv.1 sem fyrsta nafn

    „Þöll“ er heiti á furu en kemur einnig fyrir sem árheiti í fornu máli.

  • Arnika
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Nafnið er erlent að uppruna. Í Noregi er „Arnike“ hliðarmynd af „Anniken“ sem í þýsku er gælumynd af „Anna“. „Arnika“ er einnig notað í Þýskalandi, lagað eins og í Noregi, eftir forliðnum „Arn-“ sem merkir „örn“. Einnig gæti lækningajurtin arnika hafa haft áhrif á nafngjöf í Þýskalandi.

  • Bláklukka
    StúlkaSamþykkt5. des 20143 atkv.

    Nafnið er dregið af jurtarheitinu „bláklukka“.

  • Ebonney
    StúlkaSamþykkt11. júl 20123 atkv.

    Líklega er um sama nafn að ræða og „Ebony“ sem notað er hjá enskumælandi þjóðum. Að baki liggur viðarheitið „ebony“, „íbenviður“, sem er harður svartviður af ýmsum trjátegundum af ættinni „ebenaceae“.

  • Gleymmérei
    StúlkaSamþykkt9. mar 20233 atkv.

    Nafnið er dregið af plöntuheitinu „gleymmérei“.

  • Grein
    StúlkaSamþykkt15. maí 20081 atkv.

    Uppruni nafnsins er óviss, en ef til vill dregið af nafnorðinu „grein“ í merkingunni „trjágrein“.

  • Lárensína
    StúlkaSamþykkt4 atkv.

    Nafn þetta kemur frá latneska nafninu "Laurentia" sem merkir sú sem ber lárviðarkrans.

  • Liljan
    StúlkaSamþykkt3. jún 20162 atkv.

    Liljan er íslenskt kvenmannsnafn, ákveðin mynd af blómheitinu lilja; merkir „liljan“, hvíta og ilmandi vorblómið.

  • Lílý
    StúlkaSamþykkt29. jún 20152 atkv.

    Nafnið er erlent að uppruna, upphaflega ensk stytting á „Elísabet“ en blandaðist snemma jurtarheitinu „lily“, sem merkir lilja. „Lilly“ varð vinsælt nafn í Noregi í lok 19. aldar en er lítið notað núna, og þekkist frá svipuðum tíma í Danmörku og Svíþjóð.

  • Ljósbera
    StúlkaSamþykkt20. jún 20223 atkv.

    Nafnið er kvenkyns mynd af „Ljósberi“ sem merkir „sá sem ber ljós“ en er einnig nafn á plöntutegund.

  • Magnólía
    StúlkaSamþykkt21. maí 20244 atkv.

    Nafnið er dregið af heiti blómsins magnólíu.

  • Mímósa
    StúlkaSamþykkt21. maí 20143 atkv.

    Nafnið er dregið af jurtarheitinu „mímósa“.

  • Naranja
    StúlkaSamþykkt26. jan 20063 atkv.

    Orðið „naranja“ er spænskt og merkir „appelsína“.

  • Sakura
    StúlkaSamþykkt24. jún 20163 atkv.

    Nafnið er japanskt og merkir „kirsuberjablóm“.

  • Salvía
    StúlkaSamþykkt7. okt 20223 atkv.

    Salvía er íslenskt kvenmannsnafn dregið af jurtaheitinu salvía, af latínu salvia (skylt salvus „heill, heilbrigður“).

Drengjanöfn

  • Bjarki
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.028 sem fyrsta nafn

    Bjarki er þekkt sem viðurnefni kappans „Böðvars bjarka“ í Hrólfs sögu kraka og bar einnig maður að nafni „Þórður bjarki“ á 14. öld. Nafnið er upphaflega norrænt viðurnefni, líklega leitt af forngermönsku „*Berikan“, sbr. fornháþýsku „Bericho“ í merkingunni „litli björninn“, skylt nöfnunum Björn og Bera. Það getur einnig hafa verið leitt af trjáheitinu „björk“ eða „birki“.

  • Hlynur
    DrengurSamþykkt2 atkv.646 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af trjátegundinni hlynur.

  • Reynir
    DrengurSamþykkt2 atkv.500 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af tjáheitinu reynir.

  • Viðar
    DrengurSamþykkt2 atkv.376 sem fyrsta nafn

    Um uppruna og merkingu nafnsins fara tvennum sögum. Ef leshátturinn er talinn „Viðarr“ er nafnið samsett af nafnorðinu „viður“ sem merkir „skógur“ og viðskeytinu „-ar“. Sé lesháttinn hins vegar talinn „Víðarr“, er nafnið líklega skylt lýsingarorðinu „víður“ og merkir þá eiginlega „sá sem ræður víðlendu ríki“. Nafnið kemur nokkrum sinnum fyrir í fornum heimildum, meðal annars í Landnámu, og var einnig borið af syni Óðins sem drap Fenrisúlf í ragnarökum.

  • Lárus
    DrengurSamþykkt2 atkv.364 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af latneska orðinu "laurus" sem merkir lárviður.

  • Pálmi
    DrengurSamþykkt2 atkv.262 sem fyrsta nafn

    Uppruni nafnsins er óljós. Sumir telja það sama orð og „pálmi“ - tré af pálmaætt, komið úr latínu „palma“ sem merkir bæði „pálmatré“ og „lófi, hönd“. Aðrir tengja það við forndanska nafnið „Palm“/„Palmir“, dregið af orðinu „pall“ sem merkir „páll; stólpi“. Nafnið kemur fyrir í fornbréfum frá 15. og 16. öld.

  • Smári
    DrengurSamþykkt2 atkv.243 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af jurtaheitinu smári.

  • Oliver
    DrengurSamþykkt3 atkv.214 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af latneska orðinu "olivarius" sem merkir ólívutré.

  • Víðir
    DrengurSamþykkt2 atkv.154 sem fyrsta nafn

    Trjáheitið víðir.

  • Börkur
    DrengurSamþykkt2 atkv.86 sem fyrsta nafn

    Ýmist talið að hér sé um að ræða börk á trjám eða þá að nafn þetta sé komið úr fornþýsku og þá af nafninu Bárekr sem gæti útlaggst sem voldugur bardagamaður.

  • Pálmar
    DrengurSamþykkt2 atkv.70 sem fyrsta nafn

    Nafnið er talið hafa borist frá Noregi, þar sem það þekkist frá síðari hluta 19. aldar í myndinni „Palmar“. Það er talið hugsanleg afleiðsla af kvenmannsnafninu „Palma“, sem líklega er myndað af latneska orðinu „palma“ er getur merkt bæði „lófi, hönd“ og „pálmatré“. Íslenska nafnið „Pálmar“ gæti verið aðlögun að þessu norska nafni.

  • Askur
    DrengurSamþykkt2 atkv.43 sem fyrsta nafn

    Askur er fyrsti maðurinn samkvæmt norrænni goðafræði, - viðarheiti. Sagan segir að Óðinn og bræður hans hafi gefið tveimur trjám, Aski og Emblu líf og urðu þau fyrstu manneskjurnar og frá þeim á allt mannkyn að vera komið.

  • Einir
    DrengurSamþykkt2 atkv.21 sem fyrsta nafn

    Trjátegundin Einir.

  • Burkni
    DrengurSamþykkt2 atkv.15 sem fyrsta nafn

    Heiti á jurt.

  • Mosi
    DrengurSamþykkt14. nóv 20062 atkv.8 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur jurtarheitið „mosi“.

  • Hlini
    DrengurSamþykkt2 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Úr ævintýrum, ef til vill veik mynd af trjáheitinu Hlynur. Önnur mynd nafnsins er Hlyni.

  • Kamal
    DrengurSamþykkt3. okt 20142 atkv.6 sem fyrsta nafn

    Nafnið hefur tvenns konar uppruna. Annars vegar er það arabískt og merkir „fullkomnun“ og hins vegar indverskt og merkir „lótusblóm; ljósrauður“ á sanskrít. Þá er það einnig stytting á nafninu Kamala sem bæði er notað á karla og konur.

  • Bjarkan
    DrengurSamþykkt13. júl 20102 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Líklega myndað af trjáheitinu „björk“ með viðskeytinu „-an“ sem algengt er við myndun millinafna.

  • Eikar
    DrengurSamþykkt25. sep 20082 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er leitt af trjáheitinu „eik“ með viðskeytinu „-ar“.

  • Hvannar
    DrengurSamþykkt2. feb 20072 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Uppruni nafnsins er óviss en það er hugsanlega myndað af jurtarheitinu „hvönn“ með viðskeytinu „-ar“.

  • Lauritz
    DrengurSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Lauritz er ein af ýmsum ritmyndum nafnsins „Lárentíus“ sem komið er úr latínu „Laurentius“, sem merkir „krýndur lárviðarsveig“ eða „maður frá bænum Laurentium“. Fyrsti Íslendingurinn sem vitað er um að hafi borið nafnið var Laurentius Kálfsson Hólabiskup. Nafnið er alþekkt í ýmsum myndum á Norðurlöndum, Englandi og í Þýskalandi frá fornu fari, en tengt því er meðal annars heilagur Laurentius sem dó píslarvættisdauða árið 258 og var í miklum metum á Norðurlöndum, þar sem margar kirkjur voru honum helgaðar, t.d. dómkirkjan í Lundi.

  • Þinur
    DrengurSamþykkt12. ágú 20112 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er dregið af trjáheitinu „þinur“.

  • Þyrnir
    DrengurSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er líklega sömu merkingar og nafnorðið "þyrnir" sem merkir hvass plöntuoddur.

  • Aspar
    DrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er hugsanlega leitt af trjáheitinu „ösp“ með viðliðnum „-ar“.

  • Ivar
    DrengurSamþykkt14. jan 20202 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir í Landnámu og Íslendinga sögum, meðal annars í Sturlungu og fornbréfum frá 14. og 15. öld. Einna þekktastur er Ívar Ingimundarson, skáld við hirð Eysteins konungs á 12. öld. Uppruni nafnsins er umdeildur; ef til vill leitt af „ýr“ sem merkir „ýviður, bogi“, sbr. „*iwa-hariR“ sem merkir „bogmaður“. Einnig hefur verið bent á að nafnið sé víxlmynd við Ingvar og Yngvar, þar sem sami maður hafi til forna bæði verið nefndur Ívarr og Yngvarr.

  • Kaktus
    DrengurSamþykkt25. maí 20062 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur jurtarheitið „kaktus“.

  • Karkur
    DrengurSamþykkt18. des 20032 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið þekkist til forna sem viðurnefni þræls Hákonar jarls samkvæmt Heimskringlu, en „Þormóður karkur“ er einnig nefndur þar. Uppruni er ekki ljós en orðið gæti verið skylt nýnorska orðinu „kark“ sem merkir þykkur og hnúðóttur trjábörkur, og vísar þá til húðar þeirra sem báru nafnið til forna.

  • Lótus
    DrengurSamþykkt30. júl 20142 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur plöntuheitið „lótus“.

  • Reyr
    DrengurSamþykkt1 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur plöntuheitið „reyr“.

  • Bambus
    DrengurSamþykkt20. mar 20182 atkv.

    Að baki nafninu er jurtarheitið „bambus“ sem notað er um nokkrar ættkvíslir plantna af grasætt, hávaxnar með trékenndum, holum, liðskiptum stönglum.

  • Fífill
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er fengið af samnefndu blómi.

  • Holti
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafnið kemur fyrir í Landnámu þar sem greinir frá Holta á Holtastöðum. Það kemur einnig fyrir á danskri rúnaristu, „ek hlewagastiR holtijaR“, sem oftast er ráðið „ég Hlégestur Holtason“. Nafnið er sennilega skylt nafnorðinu „holt“ í merkingunni „skógur“.

  • Kalix
    DrengurSamþykkt13. okt 20252 atkv.

    Kalix er karlmannsnafn, líklega af gríska kalyx „bikar, blómbikar“; einnig þekkt sem sænskt staðarheiti.

  • Lár
    DrengurSamþykkt1 atkv.

    Uppruni óviss, ef til vill ´lárviður´.

  • Lárentíus
    DrengurSamþykkt4 atkv.

    Lauritz er ein af ýmsum ritmyndum nafnsins „Lárentíus“ sem komið er úr latínu „Laurentius“, sem merkir „krýndur lárviðarsveig“ eða „maður frá bænum Laurentium“. Fyrsti Íslendingurinn sem vitað er um að hafi borið nafnið var Laurentius Kálfsson Hólabiskup. Nafnið er alþekkt í ýmsum myndum á Norðurlöndum, Englandi og í Þýskalandi frá fornu fari, en tengt því er meðal annars heilagur Laurentius sem dó píslarvættisdauða árið 258 og var í miklum metum á Norðurlöndum, þar sem margar kirkjur voru honum helgaðar, t.d. dómkirkjan í Lundi.

  • Lárenz
    DrengurSamþykkt22. des 20202 atkv.

    Lauritz er ein af ýmsum ritmyndum nafnsins „Lárentíus“ sem komið er úr latínu „Laurentius“, sem merkir „krýndur lárviðarsveig“ eða „maður frá bænum Laurentium“. Fyrsti Íslendingurinn sem vitað er um að hafi borið nafnið var Laurentius Kálfsson Hólabiskup. Nafnið er alþekkt í ýmsum myndum á Norðurlöndum, Englandi og í Þýskalandi frá fornu fari, en tengt því er meðal annars heilagur Laurentius sem dó píslarvættisdauða árið 258 og var í miklum metum á Norðurlöndum, þar sem margar kirkjur voru honum helgaðar, t.d. dómkirkjan í Lundi.

  • Lerkir
    DrengurSamþykkt30. júl 20262 atkv.

    Nafnið er leitt af trjáheitinu lerki, á sama hátt og Reynir og Birkir eru leidd af trjáheitum.

  • Skógur
    DrengurSamþykkt8. sep 20262 atkv.

    Nafnið er sama orð og „skógur“ (fornnorrænt „skógr“) sem merkir „skóglendi, þyrping trjáa“.

Kynhlutlaus nöfn

  • Akarn
    KynhlutlaustSamþykkt5. sep 20222 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Akarn er af norræna orðinu „akarn“ sem merkir „akarn“, það er aldin eikartrésins sem vex í volduga eik.

  • Lauf
    KynhlutlaustSamþykkt7. okt 20221 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „lauf“ sem merkir plöntublað.

  • Blom
    KynhlutlaustSamþykkt9. feb 20231 atkv.

    Blom er nafn af norrænum uppruna og merkir „blóm, blómstur“; sbr. sænsku og norsku blom og íslenska orðið blóm.

  • Blóm
    KynhlutlaustSamþykkt30. júl 20261 atkv.

    Nafnið er sama orð og „blóm“ (fornnorrænt „blóm“), skylt gotnesku „bloma“ og latínu „flos“ sem merkir „blóm“.

  • Elri
    KynhlutlaustSamþykkt13. ágú 20252 atkv.

    Elri er íslenskt nafn af trjáheitinu elri (ölur), sem merkir „elritré“, lauftré sem vex við vatn og læki.

  • Yggdrasil
    KynhlutlaustSamþykkt7. jún 20233 atkv.

    Nafnið er sótt í norræna goðafræði en „Yggur“ var eitt af dulnefnum Óðins. „Yggdrasill“ var tré mikið sem náði um alla heima, og um það má lesa í Snorra-Eddu. „Drasill“ er sama orð og „drösull“ og merkir „hestur“. Nafnið merkir því „hestur Óðins“.

Samsett nöfn

Nöfn þar sem einn hluti nafnsins tengist þemanu.

Stúlkunöfn

  • Laufey
    StúlkaSamþykkt2 atkv.574 sem fyrsta nafn

    Laufey var móðir Loka samkvæmt Snorra-Eddu. Nafnið er líklega sett saman af „lauf“ sem merkir plöntublað og viðliðnum „ey“.

  • Sigurrós
    StúlkaSamþykkt3 atkv.208 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Bergrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.66 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Berg" sem merkir hjálp, - frelsun og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Sóllilja
    StúlkaSamþykkt3 atkv.50 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sól" sem fenginn er af nafnorðinu "sól" og viðliðnum "lilja" sem merkir blómið Lilja.

  • Dalrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.26 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Dal" sem fenginn er af nafnorðinu "dalur" og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Elínrós
    StúlkaSamþykkt3 atkv.25 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett úr nafninu Elín og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Bjarkey
    StúlkaSamþykkt2 atkv.20 sem fyrsta nafn

    Ýmist notað sem kvenmynd nafnsins Bjarki eða þá að hér er um að ræða nafn sem leitt er af trjáheitinu björk með viðliðnum "ey".

  • Særós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.20 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Heiðrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Heið" sem merkir ýmist sæmd, - tign, - bjartur, - skær og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Hafrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.15 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Haf" sem merkir sjór og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Rósalind
    StúlkaSamþykkt3 atkv.15 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "lind" sem merkir tær, - hrein. Önnur hugmynd er sú að nafnið sé komið úr þýsku og sé sett saman af forliðnum "hroth" sem merkir hróður og viðliðnum "lind" sem merkir mildur.

  • Sumarrós
    StúlkaSamþykkt3 atkv.13 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af nafnorðinu "sumar" og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Snærós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Snæ" sem merkir snjór og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Rósey
    StúlkaSamþykkt2 atkv.10 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "ey".

  • Róshildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.9 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

  • Rósmarý
    StúlkaSamþykkt3 atkv.9 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af enska nafninu "Rosemary" sem sett er saman af jurtaheitinu "Rose" og nafninu "Mary" og hefur verið lagað að íslensku.

  • Silvana
    StúlkaSamþykkt3 atkv.9 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna og leitt af ítalska karlmannsnafninu „Silvano“, sem aftur er leitt af nafninu „Silvan“, komið úr latínu „Silvanus“. Guð skógarins, akranna og hjarðanna hét „Silvanus“ og er nafnið dregið af latneska nafnorðinu „silva“ sem merkir skógur.

  • Líneik
    StúlkaSamþykkt2 atkv.8 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af forliðnum "Lín" sem er hliðarmynd nafnsins Hlín sem merkir verndardís og viðliðnum "eik" sem merkir trjáheitið eik.

  • Rósbjörg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.

  • Kristrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.6 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Valrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.6 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Daggrós
    StúlkaSamþykkt15. sep 20052 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Dögg og rós.

  • Jökulrós
    StúlkaSamþykkt3 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman úr nafnorðinu "jökull" og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós. þó er líkleg merking þessa nafns frekar eitthvað í ætt við frostrós.

  • Rósfríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg, - ást.

  • Róslaug
    StúlkaSamþykkt2 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.

  • Róslín
    StúlkaSamþykkt2 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðskeytinu "lín".

  • Sólrós
    StúlkaSamþykkt20. júl 20072 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Sól-“ og jurtarheitinu „rós“.

  • Blómey
    StúlkaSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af „blóm“ og viðliðnum „-ey“.

  • Dallilja
    StúlkaSamþykkt28. okt 20113 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Dal" sem fenginn er af nafnorðinu "dalur" og viðliðnum "lilja" sem merkir blómið Lilja.

  • Eyrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ey" og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Harley
    StúlkaSamþykkt30. okt 20232 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Breskt nafn, notað jafnt fyrir karla og konur, talið merkja í fornensku „akur þar sem hampjurtir vaxa“.

  • Rósborg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af plöntuheitinu rós og viðliðnum "borg" sem merkir vörn.

  • Sigurlilja
    StúlkaSamþykkt4 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og jurtaheitinu "lilja".

  • Friðrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Frið" sem merkir friður, - ró, - næði og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Heiðbjörk
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Heið" sem merkir ýmist sæmd, - tign, - bjartur, - skær og viðliðnum "björg" sem merkir trjáheitið björk.

  • Laufhildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "lauf" og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

  • Róslinda
    StúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og kvennafninu "Linda" sem merkir mjúk, - fögur, - hrein.

  • Steinrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Stein" sem fenginn er af nafnorðinu "steinn" og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Valbjörk
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "björk" sem er komið af trjáheitinu björk.

  • Arnrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir ýmist örn eða arinn og er þá tákn fyrir heimili, og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Ásrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð í norrænni goðafræði og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Hrafnfífa
    StúlkaSamþykkt30. júl 20143 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Hrafn-“ og jurtarheitinu „fífa“.

  • Linddís
    StúlkaSamþykkt21. jún 20122 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er myndað af nafnorðinu „lind“, annaðhvort í merkingunni „linditré“ eða „uppspretta, vatnsrás“, og viðliðnum „-dís“.

  • Lindey
    StúlkaSamþykkt21. okt 20242 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er myndað af nafnorðinu „lind“, annaðhvort í merkingunni „linditré“ eða „uppspretta, vatnsrás“, og viðliðnum „-ey“.

  • Mánarós
    StúlkaSamþykkt7. mar 20243 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af nafnorðinu „máni“ og jurtarheitinu „rós“.

  • Náttrós
    StúlkaSamþykkt9. jún 20222 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af nafnorðunum „nátt“ sem merkir nótt og „rós“.

  • Reyndís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu "Reynir" sem er trjáheiti og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís, - verndargyðja.

  • Reynhildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu "Reynir" sem er trjáheiti og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

  • Róslind
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "lind" sem merkir tær, - hrein, - uppspretta.

  • Rósný
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "ný" sem merkir ung, - ný.

  • Svanrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Svan" sem merkir svanur og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Tíalilja
    StúlkaSamþykkt24. apr 20154 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Uppruni nafnsins er óviss. Fyrri liðurinn gæti verið kvenmannsnafnið „Tía“ og síðari liðurinn jurtarheitið „lilja“.

  • Burkney
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafnið er sennilega sett saman af jurtarheitinu „burkni“ og viðliðnum „-ey“.

  • Eyrarrós
    StúlkaSamþykkt7. mar 20243 atkv.

    Nafnið er myndað af nafnorðunum „eyri“ sem merkir sand- eða malarsvæði, einkum meðfram ám eða við árósa, og jurtarheitinu „rós“.

  • Finnbjörk
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Finn" sem merkir maður, - Finni og viðliðnum "björk".

  • Hjálmrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Hjálm" sem merkir hjálmur, - höfuðhlíf og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Hrafnrós
    StúlkaSamþykkt7. feb 20252 atkv.

    Hrafnrós er íslenskt kvenmannsnafn, samsett úr hrafn „hrafn (fuglinn)“ og rós „rós (blómið)“; nafn af blóma- og fuglaættum.

  • Hugrós
    StúlkaSamþykkt30. mar 20232 atkv.

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Hug-“ og nafnorðinu „rós“.

  • Ingirós
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Íslilja
    StúlkaSamþykkt10. feb 20143 atkv.

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Ís-“, „Ísa-“ og nafnorðinu „lilja“.

  • Júlírós
    StúlkaSamþykkt6. sep 20073 atkv.

    Nafnið er sett saman af mánaðarheitinu „júlí“ og nafnorðinu „rós“.

  • Laufheiður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "lauf" og viðliðnum "heiður" sem merkir björt, - skær.

  • Liljurós
    StúlkaSamþykkt4. feb 20103 atkv.

    Liljurós er samsett íslenskt kvenmannsnafn úr lilja „lilja“ og rós „rós“; hliðarmynd við nafnið Liljarós.

  • Lyngheiður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Lyng og -heiður: björt.

  • Reynheiður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu "Reynir" sem er trjáheiti og viðliðnum "heiður" sem merkir björt, - skær.

  • Snæbjörk
    StúlkaSamþykkt7. apr 20252 atkv.

    Snæbjörk er íslenskt kvenmannsnafn, samsett úr forliðnum Snæ- „snjór“ og björk „björk (tréð)“; merkir bókstaflega „snæviþakin björk“.

  • Sveinrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Svein" sem fenginn er af nafnorðinu "sveinn" og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

Drengjanöfn

  • Víglundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.35 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Víg" sem merkir bardagi, - orrusta og viðliðnum "lundur" í merkingunni trjáþyrping.

  • Hreggviður
    DrengurSamþykkt3 atkv.34 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "hregg" sem merkir snjókoma, - slydda og nafnorðinu "viður" sem merkir tré.

  • Rósmundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.9 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Rós" sem merkir blómið rós og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn, - gjöf.

  • Arnviður
    DrengurSamþykkt3 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðskeytinu "viður"

  • Kolviður
    DrengurSamþykkt3 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Kol" sem merkir dökkt yfirbragð og nafnorðinu "viður".

  • Fjólmundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af kvennafninu "Fjóla" sem er tekið frá jurtaheitinu fjóla og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn.

  • Lindberg
    DrengurSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Lindberg er samsett nafn, upphaflega sænskt ættarnafn, úr „lind“ (lindartré) og „berg“ (klettur, bjarg).

  • Rósberg
    DrengurSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Rós" sem merkir blómið rós og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættir.

  • Bentley
    DrengurSamþykkt15. júl 20192 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Bentley er komið af ensku ættarnafni af örnefni, myndað af fornenska „beonet“ („hálmgras“) og „leah“ („rjóður, skógur“), og merkir „hálmgrasrjóður“.

  • Heiðlindur
    DrengurSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Ungt nafn í íslensku, fyrst notað á sjöunda áratug 20. aldar. Nafnið er sett saman af forliðnum „Heið-“ og síðari lið sem er óvissur, en er ef til vill myndaður af „lind“ í merkingunni „linditré“ eða „uppspretta“.

  • Freyviður
    DrengurSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta samsett af forliðnum "Freyr" sem kemur úr norrænni goðafræði og kemur af frumnorræna orðinu "frauja" sem merkir hinn fremsti, - herra og nafnorðinu "viður" sem merkir tré.

  • Gautviður
    DrengurSamþykkt3 atkv.

    Nafn þetta er sett saman úr karlmannsnafninu Gauti og nafnorðinu "viður" sem merkir tré.

  • Lyngþór
    DrengurSamþykkt14. okt 20162 atkv.

    Nafnið er sett saman af jurtarheitinu „lyng“ og viðliðnum „-þór“, sem er skyldur nafninu „Þór“.

  • Rósmann
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Rós" sem merkir blómið rós og viðliðnum "mann" sem merkir maður.

Kynhlutlaus nöfn

  • Villiblóm
    KynhlutlaustSamþykkt1. mar 20223 atkv.

    Nafnið er sett saman af lýsingarorðinu „villur“ sem merkir villtur, sem hefur villst, og nafnorðinu „blóm“.

Vantar nafn eða á eitthvað ekki heima hér? Sendu ábendingu

Fleiri nafnasöfn

Merking nafna kemur úr gagnagrunni síðunnar. Gögn um nafnatíðni eru fengin frá Þjóðskrá Íslands.