Keltnesk og írsk nöfn
Sum keltnesk nöfn hafa verið á Íslandi frá landnámi, þegar fólk frá Írlandi og Skotlandi settist hér að. Kjartan, Njáll, Kormákur og Melkorka koma fyrir í Íslendingasögunum og Óskar er líka af írskum uppruna.
Nafn er í safninu þegar merking þess í gagnagrunninum segir að það sé keltneskt, írskt, gelískt eða velskt að uppruna. Yngri nöfn eins og Liam og Ian eru líka með.
Stúlkunöfn
- MelkorkaStúlkaSamþykkt3 atkv.155 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er lagað eftir keltneska nafninu "Mael-Curcaich" sem merkir þjónustukona dýrlingsins Curcaich
- TaraStúlkaSamþykkt2 atkv.120 sem fyrsta nafn
Nafnið er sennilega enskt og hefur verið vinsælt í Ameríku frá því um 1940, líklega vegna sögunnar Á hverfanda hveli og samnefndrar kvikmyndar, en þar er „Tara“ nafn á setri. Það er talið írskt að uppruna og merkja „hæð“. Nafnið hefur einnig notið vinsælda á Englandi frá því um 1960, meðal annars vegna vinsællar persónu í sjónvarpsþætti.
- EvelynStúlkaSamþykkt3 atkv.29 sem fyrsta nafn
Evelyn er enskt nafn að uppruna sem einnig þekkist í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og þýsku. Uppruni þess er ekki fullljós. Ein tilgáta er að það sé aðlögun á keltneska nafninu „Aibhlin“ sem merkir „vingjarnlegur“. Önnur tilgáta er að það sé leitt af ættarnafninu „Evelyn“, sem aftur er leitt af nafninu „Avelina“, fornfrönsku nafni sem barst til Englands með Normönnum. „Avelina“ er sett saman af nafninu „Ava“, sem talið er af fornsaxneskum rótum og merkja „kraftur“, og smækkunarendingunni „-lina“.
- KolkaStúlkaSamþykkt2 atkv.22 sem fyrsta nafn
Uppruni er óviss en til er forna viðurnefnið „kolka“ sem hugsanlega er talið írskt, „colcu“, í merkingunni „sverð“. Viðurnefnið bar Þorbjörn kolka sem Kolkumýrar eiga að vera kenndar við.
- ErinStúlkaSamþykkt22. jún 20112 atkv.17 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr gelísku þar sem það þýðir Írland. Einnig er talið að nafn þetta merki friður.
- KiraStúlkaSamþykkt10. mar 20102 atkv.17 sem fyrsta nafn
Nafnið er annaðhvort rússneskt, leitt af nafnmyndinni „Kyra“ sem aftur er leidd af grísku myndinni „Kyros“ sem merkir „veldi, máttur“, eða írskt, leitt af „Ciara“, en heilög Ciara var írsk nunna sem stofnaði klaustur á Kilkeary á 7. öld.
- MonaStúlkaSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn
„Móna“ er algeng gælumynd af nafninu „Mónika“ og „Mona“ er einnig stytting á sama nafni á Norðurlöndum. Í sumum tilvikum getur „Móna“ einnig verið tökunafn úr ensku, „Mona“, sem á rætur að rekja til írska nafnsins „Muadhnait“, leitt af nafnorðinu „muadh“ sem merkir tiginn.
- EleonoraStúlkaSamþykkt19. sep 20055 atkv.12 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss. Sumir giska á arabískan uppruna og að nafnið hafi borist með márum til Spánar og þaðan til Frakklands, en það eigi rætur að rekja til arabísks orðs, „ellinor“, sem merkir „Guð er ljós mitt“. Aðrir telja að nafnið sé portúgalskt, grískt eða keltneskt. Til Englands er nafnið talið komið úr fornfrönsku, „Alienor“, á 12. öld með konu Hinriks II., en franska myndin nú er „Eléonore“. Þjóðverjar tóku upp nafnið frá Englendingum á 18. öld, einkum í myndinni „Leonore“. Nafnið þekkist í Danmörku frá 13. öld og í Svíþjóð frá 17. öld en í Noregi er algengari mynd þess „Ellinor“.
- BríanaStúlkaSamþykkt3 atkv.9 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna, ritað „Brianne“ í enskumælandi löndum. Það er myndað af karlmannsnafninu „Brian“ sem er keltneskt að uppruna og talið merkja „hinn tigni“.
- BríannaStúlkaSamþykkt3 atkv.9 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna, ritað „Brianne“ í enskumælandi löndum. Það er myndað af karlmannsnafninu „Brian“ sem er keltneskt að uppruna og talið merkja „hinn tigni“.
- MónaStúlkaSamþykkt2 atkv.8 sem fyrsta nafn
Algeng gælumynd af nafninu Mónika. En Móna getur einnig verið tökunafn úr ensku þar sem það á rætur að rekja til írska nafnsins Muadhnait, leitt af nafnorðinu muadh ´tiginn´.
- SabrínaStúlkaSamþykkt3 atkv.7 sem fyrsta nafn
Nafnið er sennilega keltneskt að uppruna. Gömul sögn segir frá þjóðsagnapersónu sem gefið hafi ánni Severn nafn, og í latneskri frásögn Tacitusar hét áin „Sabrīna“. Flestir telja þó að þessu sé öfugt farið og árheitið hafi orðið kveikjan að kvenmannsnafninu. Í Bandaríkjunum er „Sabrine“ talið gælumynd af „Sabra“ sem á rætur að rekja til hebresku og merkir „kaktus með þyrnum“.
- BrigittaStúlkaSamþykkt3 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið á rætur að rekja til keltneskrar eldgyðju, „Brigit“ eða „Brigantia“, og síðar til írsks dýrlings, heilagrar Brigitar af Kildare. Uppruni er óviss en flestir telja nafnið leitt af fornírska orðinu „brí“ sem merkir „hæð“, og að „Brigit“, „Brigitta“ merki þá „hin háa“. Í „Heilagra meyja drápu“ er ort um heilaga Brígiðu sem Skotland tignar. Af sama uppruna eru nöfnin „Birgit“ og „Birgitta“ þar sem orðið hefur tekið stafavíxlum.
- KaðlínStúlkaSamþykkt2 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af keltneska nafninu "Caithlin" sem merkir hin hreina.
- MýrúnStúlkaSamþykkt22. des 20102 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Landnámu á Mýrúnu Maddaðardóttur, dóttur Íra konungs. Það er talið keltneskt að uppruna, komið af írska nafninu „Muirenn“.
- KíraStúlkaSamþykkt24. apr 20192 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið er annaðhvort rússneskt, leitt af nafnmyndinni „Kyra“ sem aftur er leidd af grísku myndinni „Kyros“ sem merkir „veldi, máttur“, eða írskt, leitt af „Ciara“, en heilög Ciara var írsk nunna sem stofnaði klaustur á Kilkeary á 7. öld.
- MýraStúlkaSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss. Hugsanlega er það sama og enska nafnið „Myra“, sem aftur er hliðarmynd við írska nafnið „Moira“.
- ArínStúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Uppruni óviss. Nafnið er notað í enskumælandi löndum sem hliðarmynd við „Erin“ en það nafn er myndað af gelíska orðinu „Éirinn“, þágufalli af „Éire“ sem merkir „Írland“.
- EðnaStúlkaSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Úr írsku, eða hebresku. Eðna eða Edna heitir ein persóna Tóbíasarbókar. Merking ókunn.
- ElínoraStúlkaSamþykkt2. feb 20074 atkv.1 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss. Sumir giska á arabískan uppruna og að nafnið hafi borist með márum til Spánar og þaðan til Frakklands, en það eigi rætur að rekja til arabísks orðs, „ellinor“, sem merkir „Guð er ljós mitt“. Aðrir telja að nafnið sé portúgalskt, grískt eða keltneskt. Til Englands er nafnið talið komið úr fornfrönsku, „Alienor“, á 12. öld með konu Hinriks II., en franska myndin nú er „Eléonore“. Þjóðverjar tóku upp nafnið frá Englendingum á 18. öld, einkum í myndinni „Leonore“. Nafnið þekkist í Danmörku frá 13. öld og í Svíþjóð frá 17. öld en í Noregi er algengari mynd þess „Ellinor“.
- GróStúlkaSamþykkt4. maí 20231 atkv.1 sem fyrsta nafn
Gróa hét völva ein, kona Aurvandils hins frækna, samkvæmt Snorra-Eddu. Nafnið kemur einnig fyrir í Landnámu og í nokkrum Íslendinga sögum. Nefnifallsmyndin var upphaflega „Gróa“ en í aukaföllum „Gró“, þar sem „-u“ féll brott á eftir löngu sérhljóði; nefnifallsmyndin „Gró“ er síðar til orðin fyrir áhrif frá endingarlausu aukaföllunum. „Gro“ er vel þekkt nafn á Norðurlöndum, einkum í Noregi, og þaðan barst það til Bretlands. Að baki liggur sennilega sögnin að „vaxa, spretta“ en einnig hefur verið giskað á keltneskan uppruna og væri nafnið þá skylt orðinu „gruach“ sem merkir „kona“.
- NólaStúlkaSamþykkt4. maí 20232 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er írskt og er kvenkynsmynd af nafninu „Nólan“.
- EnoraStúlkaSamþykkt20. nóv 20253 atkv.
Enora er bretónskt kvenmannsnafn, dregið af orðinu „enor“ („heiður“, af latínu) eða sem bretónsk mynd af nafninu Honoría.
- EvinStúlkaSamþykkt2. okt 20232 atkv.
Nafnið er hliðarmynd af „Evan“, sem að uppruna er ensk mynd af velska nafninu „Ieuan“, er tengist nafninu „Jón“.
- FíónaStúlkaSamþykkt23. jan 20253 atkv.
Fíóna er kvenkynsmynd af nafninu Fionn, dregin af skosk-gelíska orðinu „fionn“ sem merkir „hvítur“ eða „fagur“.
- GrélöðStúlkaSamþykkt2 atkv.
Nafnið er talið írskt eða péttneskt og merking þess er óviss. Grélöð Bjartmarsdóttir er nefnd í Landnámu.
- KellýStúlkaSamþykkt7. jan 20102 atkv.
Nafnið er erlent, leitt af írska nafninu „Ceallach“ eða eftirnafni af því leiddu, „Ó Ceallaigh“. Í enskumælandi löndum er „Kelly“ einnig algengt ættarnafn.
- KormlöðStúlkaSamþykkt2 atkv.
Nafnið kemur fyrir í Landnámu, þar sem nefnd er „Kormlöð Kjarvalsdóttir“ Írakonungs. „Kormlöð“ drottning Ólafs konungs kvarans er einnig nefnd í Gunnlaugs sögu og í Njálu. Það er líklega keltneskt að uppruna, af „Gormflaith“, sem merkir „bláa eða græna hefðarfrúin“.
- RoríStúlkaSamþykkt21. jún 20122 atkv.
Að uppruna írskt kvenmannsnafn, „Rori“, „Rory“, dregið af nöfnunum „Roderick“ og „Robert“. Í enskumælandi löndum er það einnig notað sem karlmannsnafn.
Drengjanöfn
- ÓskarDrengurSamþykkt2 atkv.1.051 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur af írska nafninu "Oscara" sem samsett er af forliðnum "Os" sem merkir hjörtur og viðliðnum "cara" sem merkir vinur.
- KjartanDrengurSamþykkt2 atkv.791 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af írska konungsheitinu "Muircheartach" sem merkir sækonungur, - sjóliði.
- EiðurDrengurSamþykkt2 atkv.244 sem fyrsta nafn
Mismunandi kenningar eru um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja að það merki eiður, - loforð, - svardagi en aðrir að það sé leitt af gömlu keltnesku sólguðsnafni "Aodh" sem merkir eldur.
- KormákurDrengurSamþykkt3 atkv.96 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur af fornírska nafninu "Cormac" sem merkir kerrusveinn.
- AlanDrengurSamþykkt18. nóv 20152 atkv.88 sem fyrsta nafn
Nafnið er enskt og skoskt, „Alan“ komið af „Alain“, af keltneskum uppruna með óvissa merkingu, ef til vill smækkunarmynd af orði sem merkti „klettur“. Þá gæti nafnið verið skylt velska heitinu „Alun“ sem er bæði árheiti og nafn á landsvæði í Wales. Einnig hefur sést sú skýring að nafnið sé komið úr latínu „alanus“ af „Alane“, einum þjóðflokki fólksflutningatímans.
- PatrickDrengurSamþykkt19. ágú 20042 atkv.50 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið úr fornírsku „Pátraic“ og kemur fyrir á dýrlingi sem tókst að kristna mestan hluta Írlands á 5. öld; hans er einnig minnst í örnefninu „Patreksfjörður“. Heilagur Patrekur er í latneskum heimildum skráður „Patricius“ sem merkir eiginlega „aðalsmaður, maður af ætt patricia“, sbr. latínu „pater“ „faðir“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 18. öld og er notað bæði í ensku- og þýskumælandi löndum.
- NjállDrengurSamþykkt1 atkv.45 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af gelíska nafninu "Níall" sem merkir bardagamaður, - hetja.
- MarvinDrengurSamþykkt2 atkv.40 sem fyrsta nafn
Nafnið þekkist á Norðurlöndum, á Englandi og í Þýskalandi og kemur sennilega upphaflega frá Wales sem „Merfyn“, sem tekið var upp í ensku sem „Mervyn“ og „Mervin“. „Marvin“ er síðan gömul hliðarmynd við „Mervyn“ sem varð til þegar „-er-“ breyttist í „-ar-“ í miðensku.
- LiamDrengurSamþykkt24. apr 20192 atkv.38 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega írsk stytting á „William“, sem samsvarar íslenska nafninu „Vilhjálmur“. Nafnið er nú notað víða um Evrópu og í Bandaríkjunum.
- IanDrengurSamþykkt19. nóv 20252 atkv.26 sem fyrsta nafn
Ian er skosk mynd af nafninu Jóhannes (John), enskuð úr gelíska nafninu Iain. Nafnið er af hebreskum rótum og merkir „Guð er náðugur“.
- AllanDrengurSamþykkt2 atkv.25 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er af enskum/skoskum uppruna, komið af keltneska orðinu "Alain" sem merkir klettur
- BrianDrengurSamþykkt8. sep 20262 atkv.24 sem fyrsta nafn
Sama nafn og Brjánn. Úr írsku; uppruni óviss en líklega af keltneskri rót „brixs“ sem merkir „hæð, hár“ eða „brigā“ sem merkir „máttur“. Nafnið er talið merkja „hinn tigni“.
- KaiDrengurSamþykkt23. mar 20152 atkv.19 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og þekkist í Danmörku frá 14. öld, í Noregi frá því eftir siðskipti og í Svíþjóð frá 19. öld. Uppruni er umdeildur: sumir telja það frísneskt með óvissa merkingu, hugsanlega „hæna“, aðrir segja það keltneskt afbrigði af latneska nafninu „Caius“ eða „Gaius“, en enn aðrir telja það þýska styttingu á „Kaganher“.
- LíamDrengurSamþykkt24. apr 20152 atkv.19 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega írsk stytting á „William“, sem samsvarar íslenska nafninu „Vilhjálmur“. Nafnið er nú notað víða um Evrópu og í Bandaríkjunum.
- ArthúrDrengurSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn
Nafnið er keltneskt, af óvissum uppruna. Það kemur fyrst fyrir í latneskri mynd „Artorius“ og gæti tengst latneska ættarnafninu „Artorius“. Á miðöldum breiddist það út um Vestur-Evrópu með sögum af keltneska kónginum „Arthur“ og riddurum hans, sem þýddar voru meðal annars á íslensku.
- EvanDrengurSamþykkt2. apr 20122 atkv.17 sem fyrsta nafn
„Evan“ er enskuð mynd af velska nafninu „Iefan“, sem aftur er myndað af nafninu „John“, sömu ættar og íslenska nafnið „Jón“.
- KarvelDrengurSamþykkt2 atkv.15 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss en það er hugsanlega hið sama og írska nafnið „Cerbhall“. Það bar meðal annars Írakonungur sem nefndur var „Kjarvalur“ í Laxdælu og víðar. „Karvel“ kemur einnig fyrir sem nafn á konungi í Karlamagnúss sögu.
- BrjánnDrengurSamþykkt1 atkv.14 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr fornírsku það sem það er sagt "Bríán" og merkir lítill hóll eða göfugur.
- DylanDrengurSamþykkt26. jan 20222 atkv.13 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent og rakið til Wales. Í Bandaríkjunum er það kynhlutlaust, þ.e. bæði notað sem nafn á drengi og stúlkur. Nafnið er talið merkja „haf, sjór“.
- KiljanDrengurSamþykkt2 atkv.12 sem fyrsta nafn
Nafnið var tekið upp sem kenningarnafn á þriðja áratug 20. aldar af rithöfundinum Halldóri Laxness. Það er gelískt, „Cillian“, upphaflega viðurnefni myndað með smækkunarendingu af gelísku „ceallach“ 'barátta' eða leitt af gelísku „ceall“ 'klaustur, kirkja'. Ýmsir írskir dýrlingar hafa borið þetta nafn. Ensk mynd nafnsins er „Killian“, „Cillian“ og „Kilian“.
- MorganDrengurSamþykkt1. mar 20122 atkv.11 sem fyrsta nafn
Morgan er velskt nafn, komið úr fornvelsku „Morcant“. Uppruni fyrri liðarins er óviss en síðari liðurinn „cant“ á rætur í fornkeltnesku í merkingunni „hringur“.
- ArtúrDrengurSamþykkt15. sep 20052 atkv.8 sem fyrsta nafn
Nafnið er keltneskt af óvissum uppruna og kemur fyrst fyrir í latneskri mynd „Artorius“, sbr. ensku „Arthur“, nýírsku „Arthur“ og fornírsku „Arturíus“. Það gæti tengst latneska ættarnafninu „Artorius“. Á miðöldum gekk sagan um keltneska kónginn Arthur og riddara hans um alla Vestur-Evrópu og gerði nafnið þekkt, en hans var getið í mörgum riddarasögum sem þýddar voru á íslensku og var ritmynd nafnsins þá oft „Arturus“. Stafsetningin með „-th-“ kom ekki fram fyrr en á 16. öld og virðist upphaflega einungis hafa verið til skrauts. Nafnið hefur verið algengt í Evrópu síðan í Napóleonsstyrjöldinni í byrjun 19. aldar, en meðal þekktra nafnbera var hertoginn af Wellington sem hét Arthur.
- GaelDrengurSamþykkt30. apr 20092 atkv.7 sem fyrsta nafn
Nafnið er talið af keltneskum uppruna. Það er annaðhvort talið tengjast orðinu „Gael“, þ.e. Gallar, eða vera hliðarmynd af nafninu „Gweaël“. Nafnið þekkist í Frakklandi, ritað „Gaël“, en einnig í enskumælandi löndum sem „Gael“.
- KajDrengurSamþykkt1 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og þekkist í Danmörku frá 14. öld, í Noregi frá því eftir siðskipti og í Svíþjóð frá 19. öld. Uppruni þess er umdeildur: sumir telja það frísneskt með óvissa merkingu, hugsanlega „hæna“, aðrir telja það keltneskt afbrigði af latneska nafninu „Caius“ eða „Gaius“, en enn aðrir telja það þýska styttingu á „Kaganher“.
- PatrekDrengurSamþykkt8. nóv 20072 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið úr fornírsku „Pátraic“ og kemur fyrir á dýrlingi sem tókst að kristna mestan hluta Írlands á 5. öld; hans er einnig minnst í örnefninu „Patreksfjörður“. Heilagur Patrekur er í latneskum heimildum skráður „Patricius“ sem merkir eiginlega „aðalsmaður, maður af ætt patricia“, sbr. latínu „pater“ „faðir“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 18. öld og er notað bæði í ensku- og þýskumælandi löndum.
- KíranDrengurSamþykkt4. ágú 20162 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið getur haft tvenns konar uppruna. Annars vegar á það rætur að rekja til orðsins „kirana“ sem merkir „sólargeisli; ryk“ í sanskrít, en hins vegar til írska nafnsins „Ciaran“ sem merkir „dimmur“. Það er vinsælt til dæmis í Englandi og Wales.
- TrostanDrengurSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið er trúlega sótt í örnefnið „Trostansfjörður“ en uppruni þess er óviss. Sumir telja að það sé af írskum toga, sbr. piktneska nafnið „Drostan“. Aðrir ætla að „Trostan“ sé af norrænum toga og skylt nafni eins og „Trausti“.
- BekanDrengurSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn
Bekan á Bekansstöðum er nefndur í Landnámu. Nafnið er írskt að uppruna og er talið merkja „dálítið“.
- CameronDrengurSamþykkt22. apr 20263 atkv.2 sem fyrsta nafn
Cameron er komið af skosku ættarnafni, myndað af gelísku „cam“ („boginn“) og „sròn“ („nef“), og merkir „bogið nef“.
- KjaranDrengurSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af fornírska orðinu "ciarán" sem merkir lítill, - jarphærður.
- CecilDrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er trúlega tökunafn úr ensku. „Cecil“ er dregið af eftirnafni ættgöfugrar fjölskyldu af velskum uppruna á 16. öld. Eftirnafnið er ensk mynd velska nafnsins „Seissylt“, sem er bretónsk eða fornvelsk mynd latneska nafnsins „Sextilius“, af „Sextus“ „sjötti“. Á miðöldum var nafnið einnig stundum notað sem ensk mynd latneska nafnsins „Caecilius“, forns rómversks ættarnafns dregið af þorpsnafninu „Caecus“, en að baki þess liggur latneska lýsingarorðið „caecus“ „blindur“. „Caecilius“ var nafn á rómverskum dýrlingi sem uppi var á þriðju öld.
- DeníelDrengurSamþykkt18. feb 20103 atkv.1 sem fyrsta nafn
„Deniel“ er bretónsk hliðarmynd nafnsins „Daníel“.
- DónaldDrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er tökunafn í Norðurlandamálum úr ensk-amerísku en er upphaflega af keltneskum rótum, ensk mynd af keltneska nafninu „Domhnall“. Það er sett saman úr fornkeltnesku orðunum „dubno“ sem merkir heimur og „val“ sem merkir ríkja.
- KjarvalDrengurSamþykkt5. ágú 20102 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Landnámu sem heiti á konungi í Dyflinni og lifir einnig í bæjarnafninu „Kjarvalsstaðir“. Jóhannes Sveinsson listmálari tók sér nafnið „Kjarval“ og hefur það síðan verið notað sem ættarnafn af afkomendum hans. „Kjarvalur“, „Kjarval“ er írskt nafn, sbr. fornírsku „Cerbal“ eða „Cerbhal“ sem er konungsnafn. Uppruni og merking eru óljós en e.t.v. er nafnið skylt kymbrísku „carw“ og latínu „cervus“ sem merkir hjörtur.
- MalcolmDrengurSamþykkt23. jan 20252 atkv.1 sem fyrsta nafn
Malcolm er komið af skosk-gelíska nafninu Máel Coluim, sem merkir „lærisveinn (dýrkandi) heilags Kólumba“.
- NólanDrengurSamþykkt2. nóv 20222 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er talið írskt að uppruna og merkja „afkomandi hins fræga“.
- BenvýDrengurSamþykkt19. des 20132 atkv.
Nafnið er írskt að uppruna, yngri ritháttur fyrir „Bean Mhí“, og er notað bæði á karla og konur.
- BjólanDrengurSamþykkt2 atkv.
„Bjólan“ var viðurnefni til forna, talið keltneskt að uppruna, en merking þess er óviss.
- BresiDrengurSamþykkt2 atkv.
Nafnið kemur fyrir í Landnámu sem föðurnafn tveggja landnámsmanna og til er örnefnið „Bresastaðir“. Það er komið úr írsku, þar sem „Bresse“ merkir „óeirðarseggur“.
- DónaldurDrengurSamþykkt3 atkv.
Nafnið er tökunafn í Norðurlandamálum úr ensk-amerísku en er upphaflega af keltneskum rótum, ensk mynd af keltneska nafninu „Domhnall“. Það er sett saman úr fornkeltnesku orðunum „dubno“ sem merkir heimur og „val“ sem merkir ríkja.
- DufgusDrengurSamþykkt2 atkv.
Dufgus Þorleifsson er nefndur í Sturlungu. Nafnið er komið úr fornírsku „Dubgus“, af „dub“ sem merkir „dökkur“ og „gus“ sem merkir „höfuð“, og er samsvarandi íslenska nafninu Svarthöfði.
- DufþakurDrengurSamþykkt3 atkv.
Nafnið er komið úr fornírsku „Dubthach“. Forliðurinn er talinn vera fornírska „dub(h)“ sem merkir svartur, dökkur, en viðliðurinn „-thach“ hefur óvissa merkingu. Nafnið gæti ef til vill merkt „hinn svarthærði“ eða eitthvað í þá veruna, sbr. írska nafnið „Duald“ sem er ensk mynd af gelíska nafninu „Dubhaltach“ og merkir hugsanlega „svarthærður“ eða „svartfættur“. Dufþakur hét þræll Hjörleifs, fóstbróður Ingólfs Arnarsonar, sem lagði á ráðin um víg hans að sögn Landnámu. Ingólfur hefndi fóstbróður síns úti í Vestmannaeyjum og féll Dufþakur þar sem nefndist Dufþaksskor en heitir nú Dufþekja. Í Landnámu er einnig nefndur Dufþakur í Holti, síðar Dufþaksholti í Rangárvallasýslu, og frá viðskiptum hans og þeirra feðga Stórólfs og Orms á Stórólfshvoli segir í Orms þætti Stórólfssonar.
- KilíanDrengurSamþykkt26. jan 20063 atkv.
Nafnið var tekið upp sem kenningarnafn á þriðja áratug 20. aldar af rithöfundinum Halldóri Laxness. Það er gelískt, „Cillian“, upphaflega viðurnefni myndað með smækkunarendingu af gelísku „ceallach“ 'barátta' eða leitt af gelísku „ceall“ 'klaustur, kirkja'. Ýmsir írskir dýrlingar hafa borið þetta nafn. Ensk mynd nafnsins er „Killian“, „Cillian“ og „Kilian“.
- KjallakurDrengurSamþykkt3 atkv.
Nafnið kemur fyrir til forna en virðist ekki hafa verið notað síðan sem eiginnafn. Það er talið írskt að uppruna, dregið af „Cellach“.
- KjárrDrengurSamþykkt9. feb 20111 atkv.
„Kjárr“ eða „Kíarr“ er konungsheiti í Sæmundar-Eddu. Uppruni er ekki ljós, en nafnið er ef til vill komið úr fornírsku „cíar“ sem merkir brúnn, eða er ummyndun úr „Caesar“.
- LennonDrengurSamþykkt19. maí 20202 atkv.
Nafnið er talið írskt að uppruna og merkja „hinn kæri“. Þekktur nafnberi var breski tónlistarmaðurinn John Lennon.
- MelkólmurDrengurSamþykkt3 atkv.
Uppruni er óviss en nafnið er hugsanlega íslenskun á nafninu „Malcolm“ sem er gelískt að uppruna, „Mael Coluim“, og merkir „sá sem er hollur heilögum Columba“.
- MýrkjartanDrengurSamþykkt3 atkv.
Nafnið kemur fyrir í Landnámu og Laxdælu þar sem segir frá Melkorku, dóttur Mýrkjartans Írakonungs, móður Ólafs pá. Á rætur að rekja til fornírsku, „Muircertán“, leitt af „Muirchertach“ sem merkir „sævíkingur“.
- SesilDrengurSamþykkt2 atkv.
Nafnið er trúlega tökunafn úr ensku. „Cecil“ er dregið af eftirnafni ættgöfugrar fjölskyldu af velskum uppruna á 16. öld. Eftirnafnið er ensk mynd velska nafnsins „Seissylt“, sem er bretónsk eða fornvelsk mynd latneska nafnsins „Sextilius“, af „Sextus“ „sjötti“. Á miðöldum var nafnið einnig stundum notað sem ensk mynd latneska nafnsins „Caecilius“, forns rómversks ættarnafns dregið af þorpsnafninu „Caecus“, en að baki þess liggur latneska lýsingarorðið „caecus“ „blindur“. „Caecilius“ var nafn á rómverskum dýrlingi sem uppi var á þriðju öld.
Kynhlutlaus nöfn
- ArlóKynhlutlaustSamþykkt19. ágú 20242 atkv.1 sem fyrsta nafn
Arló er afbrigði af nafninu Arlo, sem er af óvissum uppruna. Það er hugsanlega komið úr kvæðinu The Faerie Queene (1590) og tengt írska örnefninu Aherlow („milli tveggja hálenda“).
- QuinKynhlutlaustSamþykkt7. jún 20232 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er írskt að uppruna og talið merkja afkomandi „Conn“, en „conn“ er talið fornkeltískt og merkja „höfðingi“.