Nöfn úr grískri goðafræði
Grísk goðafræði hefur gefið mörg nöfn sem notuð eru á Íslandi. Íris var persónugervingur regnbogans og sendiboði guðanna, Aþena gyðja skynsemi og stríðs, og Hera kona Seifs. Atlas bar heiminn á herðum sér í refsingarskyni og Hector var prins í Tróju.
Nafn er í safninu þegar merking þess í gagnagrunninum nefnir persónu úr grískri goðafræði, líka ef nafnið er aðeins dregið af slíkri persónu. Nafn sem er bara grískt að uppruna, eins og Sófía, er ekki með. Rómversku goðin og þau norrænu eiga sín eigin söfn.
Stúlkunöfn
- ÍrisStúlkaSamþykkt2 atkv.1.088 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr grískri goðafræði þar sem Íris var upphaflega persónugerving regnbogans en varð síðar sendiboði guðanna.
- AþenaStúlkaSamþykkt3 atkv.314 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr grískri goðafræði en Aþena var gyðja skynsemi og handiðnar, auk þess sem hún var stríðsgyðja.
- DiljáStúlkaSamþykkt2 atkv.187 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunnið úr grískri goðafræði en "Delia" var annað nafn gyðjunnar Artemisar. Artemis á að hafa tekið þetta nafn frá sínum fæðingarstað sem var eyjan Delos.
- HeraStúlkaSamþykkt2 atkv.165 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr grískri goðafræði, en Hera var kona Seifs sem var æðstur allra guða.
- ÍrenaStúlkaSamþykkt3 atkv.154 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er latnesk mynd gríska nafnsins Irene sem er komið af gríska orðinu "eirene" sem merkir friður. Irene var gyðja friðar í grískri goðafræði.
- TalíaStúlkaSamþykkt3 atkv.34 sem fyrsta nafn
Nafnið er latnesk mynd gríska nafnsins „Tháleia“, myndað af grísku sögninni „thallō“ sem merkir „blómstra“. Gyðja leiklistarinnar hét „Tháleia“ samkvæmt grískri goðafræði.
- MelissaStúlkaSamþykkt4. apr 20113 atkv.28 sem fyrsta nafn
Úr grísku og merkir „býfluga“. Í grískri goðafræði fóstraði Melissa, dóttir Melisseusar konungs á Krít, Seif ungan ásamt Amalþeu systur sinni. Nafnið er vinsælt víða í Evrópu og í enskumælandi löndum vestan hafs.
- IreneStúlkaSamþykkt3 atkv.24 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og hefur borist hingað annaðhvort frá Norðurlöndum eða Englandi. Irena var gyðja friðar í grískri trú en „eirēnē“ merkir „friður“. Nafnið varð vinsælt á Bretlandseyjum í lok 19. aldar og vinsældir þess jukust enn þegar „Saga Forsyte ættarinnar“ eftir John Galsworthy kom út 1922, en ein kvenna í sögunni hét Irene. Nafnið þekkist í Svíþjóð frá því á 19. öld og í Noregi frá 18. öld.
- SelenaStúlkaSamþykkt3 atkv.15 sem fyrsta nafn
Nafnið á rætur í gríska orðinu „selēnē“ sem merkir „tungl, máni“ og var nafn mánagyðjunnar í grískri goðafræði.
- DorisStúlkaSamþykkt18. des 20032 atkv.12 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og barst til Norðurlanda líklega frá Þýskalandi eða Bretlandi. Það er sótt til grískrar goðafræði en Doris var kona sjávarguðsins Nerevs, fulltrúa hins lygna kyrra sjávar, og átti með honum að minnsta kosti fimmtíu dætur, fagrar og hjálpfúsar sjávardísir. Nafnið merkir upphaflega „dórísk kona“, þ.e. „kona af þjóðflokki Dóra (Doroi)“.
- SelinaStúlkaSamþykkt27. okt 20173 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafnið á rætur í gríska orðinu „selēnē“ sem merkir „tungl, máni“ og var nafn mánagyðjunnar í grískri goðafræði.
- ElektraStúlkaSamþykkt16. nóv 20043 atkv.8 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið úr grískri goðafræði en Elektra var dóttir Agamemnons og Klýtemnestru. Elektra er annaðhvort leitt af gríska orðinu „élektron“ sem merkir „raf“ eða „élektor“ sem merkir „glansandi“. Nafnið er vel þekkt í ensku- og þýskumælandi löndum.
- ArisStúlkaSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn
Aris er nýgrísk mynd af nafni stríðsguðsins Aresar; einnig notað sem stytting á Aristóteles (Aristotelis).
- ArtemisStúlkaSamþykkt20. feb 20203 atkv.4 sem fyrsta nafn
Artemis var forngrísk gyðja, veiðigyðja og gyðja meydóms.
- ThaliaStúlkaSamþykkt6. ágú 20213 atkv.4 sem fyrsta nafn
„Þalía“ er íslenskun á „Thalia“ sem var nafn leiklistargyðjunnar í grískri goðafræði. Nafnið á rætur að rekja til grísku sagnarinnar „thallein“ sem merkir „blómstra, dafna“.
- AtlantaStúlkaSamþykkt2. apr 20123 atkv.3 sem fyrsta nafn
Uppruni er óviss, tengist ef til vill sögninni um „Atlantis“, landið sokkna. Einnig gæti hér verið um sama nafn að ræða og „Atalanta“ en það bar fóthvöt stúlka í grískri goðafræði.
- CasandraStúlkaSamþykkt26. júl 20213 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur úr grísku. „Kassandra“ var trójönsk prinsessa sem hafði til að bera spádómsgáfu en henni fylgdu þær bölbænir að enginn trúði því sem hún sagði.
- DyljáStúlkaSamþykkt21. sep 20202 atkv.2 sem fyrsta nafn
Diljá (og afbrigðið Dyljá) á rætur að rekja til gríska nafnsins „Delia“, sem var annað nafn gyðjunnar Artemisar, kennt við fæðingarstað hennar, eyjuna Delos. „Delia“ er vel þekkt nafn í ensku- og þýskumælandi löndum. Vinsældir nafnsins hérlendis á síðari áratugum má að öllum líkindum rekja til Diljár í „Vefaranum mikla frá Kasmír“ eftir Halldór Laxness.
- KassandraStúlkaSamþykkt24. nóv 19913 atkv.2 sem fyrsta nafn
Kassandra er gríska myndin af nafninu Cassandra úr grískri goðafræði. Merking þess er óviss, en það er oft tengt gríska liðnum „aner“ („maður“).
- DórisStúlkaSamþykkt9. feb 20112 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og barst til Norðurlanda líklega frá Þýskalandi eða Bretlandi. Það er sótt til grískrar goðafræði en Doris var kona sjávarguðsins Nerevs, fulltrúa hins lygna kyrra sjávar, og átti með honum að minnsta kosti fimmtíu dætur, fagrar og hjálpfúsar sjávardísir. Nafnið merkir upphaflega „dórísk kona“, þ.e. „kona af þjóðflokki Dóra (Doroi)“.
- EileiþíaStúlkaSamþykkt9. júl 20154 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er latnesk ummyndun á gríska nafninu „Ilithyia“ en hún var grísk gyðja sem heitið var á við barnsfæðingar.
- MelíaStúlkaSamþykkt16. sep 20243 atkv.1 sem fyrsta nafn
Úr grísku og merkir „askur“ (tréð). Í grískri goðafræði var Melía ein af dætrum Ókeanosar og Meliai voru dísir asktrjánna. Orðið er skylt gríska orðinu „meli“, hunang.
- ReaStúlkaSamþykkt16. maí 20132 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið finnst bæði í grískri og rómverskri goðafræði og er hliðarmynd við „Rhea“. Í grískri goðafræði var Rhea dóttir Gæju og Úranusar og eiginkona og systir Krónosar. Hún var móðir Seifs og annarra goða. Í rómverskri goðafræði var Rhea Silvia móðir Rómúlusar og Remusar sem lögðu grunninn að Rómaborg.
- SalínStúlkaSamþykkt18. des 20032 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er notað í ensku- og þýskumælandi löndum og er þar talið hliðarmynd af enska nafninu „Selina“ sem aftur er leitt af gríska nafninu „Selēnē“ en það bar gríska mánagyðjan. Í Bandaríkjunum er „Salina“ talið myndað af latneska orðinu „sal“ sem merkir salt. Hérlendis gæti nafnið í elstu heimildum verið leitt af forliðnum „Sal-“ og viðskeytinu „-ína“.
- ÚraníaStúlkaSamþykkt12. nóv 20084 atkv.1 sem fyrsta nafn
„Úranía“ merkir „hin himneska“ og var eitt af auknefnum Afródíte. Stjörnufræðin var einnig helguð Úraníu. Árið 1898 kom út sagan „Úranía“ eftir Camille Flammarion í þýðingu Björns Bjarnasonar frá Viðfirði og hefur hún ef til vill orðið kveikjan að nafninu.
- ÞalíaStúlkaSamþykkt1. júl 20113 atkv.1 sem fyrsta nafn
„Þalía“ er íslenskun á „Thalia“ sem var nafn leiklistargyðjunnar í grískri goðafræði. Nafnið á rætur að rekja til grísku sagnarinnar „thallein“ sem merkir „blómstra, dafna“.
Drengjanöfn
- AtlasDrengurSamþykkt28. maí 20042 atkv.138 sem fyrsta nafn
Nafnið á rætur að rekja til grískrar goðafræði. Seifur refsaði Títananum Atlasi með því að láta hann bera heiminn á herðum sér.
- HectorDrengurSamþykkt18. nóv 20162 atkv.23 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið úr grísku „hektor“ sem merkir „haldreipi“. Hektor hét prins í Tróju til forna sem féll fyrir Akkillesi hinum gríska eins og segir frá í Ilíonskviðu.
- DennisDrengurSamþykkt27. apr 20112 atkv.20 sem fyrsta nafn
Dennis er komið úr frönsku eða ensku sem stytting af gríska nafninu Díónýsíusi, „vígður Díónýsíusi (guði víns og lífsgleði í grísku goðafræðinni)“. Það er skylt frönsku og rússnesku Denis. Nafnið er þekkt á Norðurlöndum, í Þýskalandi, Ameríku og á Englandi.
- AresDrengurSamþykkt2 atkv.18 sem fyrsta nafn
Nafnið er grískt að uppruna. „Ares“ var hernaðarguð Grikkja, sonur Seifs og Heru.
- SeifurDrengurSamþykkt2 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er dregið af nafni æðsta guðsins í grískri goðafræði. Sumir telja nafn þetta merkja "bjartur, - skínandi" eða "himinn"
- ErosDrengurSamþykkt23. maí 20172 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið er dregið af gríska orðinu „eros“ sem merkir ást, en Eros var ástarguðinn í grískri goðafræði.
- ÓríonDrengurSamþykkt26. jan 20223 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið merkir „veiðimaðurinn“ eða „risinn“ og er jafnframt heiti stjörnumerkis við miðbaug himins. Í grískri goðafræði var Óríon veiðimaðurinn mikli, sonur Póseidons og drottningarinnar Eruyale.
- OrfeusDrengurSamþykkt22. sep 20043 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafnið er grískt að uppruna og sótt í gríska goðafræði. Orfeus var mikill tónlistarmaður og sagt var að hann gæti stjórnað náttúrunni með lýruleik sínum. Þekktust er þó sagan af ferð hans í dauðraríkið til að reyna að fá þaðan aftur Evridísi (Eurydike). Nafnið hefur verið notað á Ítalíu sem „Orfeo“ og barst þaðan til enskumælandi landa.
- AthenDrengurSamþykkt9. feb 20232 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er notað í enskumælandi löndum og er lagað eftir kvenmannsnafninu „Athena“, sem aftur er sama nafn og „Aþena“.
- HerkúlesDrengurSamþykkt16. apr 20243 atkv.1 sem fyrsta nafn
Herkúles er latnesk mynd af gríska nafninu Herakles, myndað af nafni gyðjunnar Heru og „kleos“ („frægð“), og merkir „frægð Heru“.
- ÍkarusDrengurSamþykkt19. okt 20203 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til grískrar goðafræði. Íkarus flaug með vængjum sem faðir hans gerði honum úr fjöðrum og vaxi of nálægt sólinni þannig að vaxið bráðnaði og Íkarus féll til jarðar og varð það hans bani.
- ÚranusDrengurSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn
„Úranos“ var eitt af goðum Grikkja sem, samkvæmt Hesíódosi skáldi, steig upp úr skauti jarðar. Gríska orðið „ouranós“ merkir „himinn“. Reikistjarnan „Úranus“ ber nafn hans.
- AnteoDrengurSamþykkt24. mar 20253 atkv.
Anteo er ítölsk mynd af gríska nafninu Antaíos (Antaeus), sem í goðafræði var risi, sonur Póseidons og jarðargyðjunnar Gaiu.
- DeimosDrengurSamþykkt8. maí 20252 atkv.
Deimos merkir „skelfing“ á grísku. Í grískri goðafræði var Deimos sonur stríðsguðsins Aresar og persónugervingur ógnar; tungl Mars ber einnig nafnið.
- DímítríDrengurSamþykkt16. apr 20243 atkv.
Nafnið er bæði spænskt, „Dimitri“, og rússneskt, „Dmitri“, og er sótt til grísku gyðjunnar „Demeter“.
- DíómedesDrengurSamþykkt6. apr 20044 atkv.
Nafnið er komið úr grísku. Kappinn „Díómedes“ tók þátt í Trójustríðinu.
- EkkóDrengurSamþykkt16. sep 20242 atkv.
Ef til vill sama nafn og gríska nafnið „Echo“ sem merkir „bergmál“ og var notað bæði fyrir karla og konur. Echo var gyðja í grískri goðafræði.