Elias
Drengjanafn Samþykkt· 3 atkvæði· 39 bera nafnið
Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum síðan á 12. öld. Í Noregi og Svíþjóð tíðkaðist einnig ritmyndin „Elis“ og var „Elias“ jafnframt notað í Svíþjóð sem lærð eða fínni nafnmynd fyrir „Helge“. Nafnið er einnig notað í Þýskalandi og Ameríku en á Englandi og í Finnlandi er notuð nafnmyndin „Ellis“. Nafnið á rætur að rekja til Biblíunnar, sbr. „Elía“, sem er grísk mynd af hebreska orðinu „Elijāh“ er merkir „Jahve er minn Guð“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
30
Fyrsta nafn
9
Annað nafn
39
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
ElíasNafn þetta er biblíunafn, grísk mynd hebreska orðsins "elijah" sem merkir Jahve er minn guð.ElimarNafnið er sett saman af forliðnum „Eli-/Elí-“ sem gæti til dæmis verið dregið af kvenmannsnafninu „Elín“, og viðliðnum „-mar“ sem merkir „frægur“.ElisElis er íslensk mynd af nafninu Elías, sem er af hebresku og merkir „Guð minn er Jahve“.ElioNafnið er upphaflega spænskt og merkir „sól“.ElinórNafn þetta er dregið af kvenmannsnafninu ElenóraElidonNafnið virðist fyrst hafa verið notað í upphafi 19. aldar. Eldri mynd þess er „Jelídon“.ElvisNafnið varð vinsælt á dögum rokkstjörnunnar Elviss Presley. Uppruni þess er óviss.ElísSama/svipað og Elías.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →