Nöfn úr rómverskri goðafræði
Rómverjar tóku mörg goð sín frá Grikkjum og gáfu þeim latnesk nöfn. Díana var gyðja veiða og mánans, Áróra gyðja morgunroðans og Flóra gyðja vors og blóma. Venus var ástargyðjan og Janus réði gangi tímans; janúar heitir eftir honum.
Nafn er í safninu þegar merking þess í gagnagrunninum tengir það við rómverskan guð eða gyðju. Markús og Marteinn eru aðeins leidd af nafni stríðsguðsins Mars og eru því undir „Samsett nöfn“. Grísku goðin eru í öðru safni.
Stúlkunöfn
- DíanaStúlkaSamþykkt3 atkv.249 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr rómverskri goðafræði en Díana var gyðja veiða auk þess sem hún var mánagyðja. Giskað hefur verið á að nafnið sé af sama stofni og orðið "deus" sem merkir guð.
- ÁróraStúlkaSamþykkt3 atkv.142 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið frá rómversku gyðjunni Aurora sem var gyðja morgunroðans en gríska orðið "aurora" merkir morgunroði.
- VictoriaStúlkaSamþykkt29. maí 20174 atkv.80 sem fyrsta nafn
Viktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.
- AuroraStúlkaSamþykkt23. jún 20043 atkv.55 sem fyrsta nafn
Í rómverskri goðafræði var Aurora gyðja morgunroðans, sama og Eos hjá Grikkjum, en „aurora“ merkir „morgunroði“. Nafnið þekkist í Svíþjóð frá 17. öld og í Danmörku frá 19. öld, auk þess í ensku- og þýskumælandi löndum, Frakklandi („Aurore“) og Ítalíu („Aurora“). Dæmi þekkist um að „Áróra“ sé sett saman af „Árni“ og „Elínóra“.
- ViktoriaStúlkaSamþykkt12. maí 20104 atkv.44 sem fyrsta nafn
Viktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.
- LunaStúlkaSamþykkt16. sep 20162 atkv.31 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og þekkist bæði á Ítalíu og Spáni en hefur borist þaðan m.a. til Þýskalands. Að baki liggur nafn rómversku mánagyðjunnar „Luna“ og latneska orðið „luna“ sem merkir tungl, máni.
- LúnaStúlkaSamþykkt13. feb 20082 atkv.23 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og þekkist bæði á Ítalíu og Spáni en hefur borist þaðan m.a. til Þýskalands. Að baki liggur nafn rómversku mánagyðjunnar „Luna“ og latneska orðið „luna“ sem merkir tungl, máni.
- MínervaStúlkaSamþykkt3 atkv.12 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af grísk-rómversku gyðjunni Menerva sem var gyðja lista og visku.
- VenusStúlkaSamþykkt2 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafn þetta merkir ást. Það er fengið úr rómverskri goðafræði þar sem ástargyðjan bar nafnið Venus.
- MinervaStúlkaSamþykkt7. feb 20133 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt í grísk-rómverska goðafræði. Aþena Grikkja nefndist í Róm „Minerva“ og var hún verndargyðja lista og handiðnaðar en einnig gyðja visku. Nafnið er oftast tengt nafnorðinu „mens“ sem merkir hugur.
- ReaStúlkaSamþykkt16. maí 20132 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið finnst bæði í grískri og rómverskri goðafræði og er hliðarmynd við „Rhea“. Í grískri goðafræði var Rhea dóttir Gæju og Úranusar og eiginkona og systir Krónosar. Hún var móðir Seifs og annarra goða. Í rómverskri goðafræði var Rhea Silvia móðir Rómúlusar og Remusar sem lögðu grunninn að Rómaborg.
Drengjanöfn
- JanusDrengurSamþykkt2 atkv.26 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr rómverskri goðafræði. Janus var sá guð sem réði gangi tímans og upphafi alls. Janúarmánuður er nefndur eftir Janusi.
- MarsDrengurSamþykkt1 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið er komið úr latínu, „Mars“, sem var heiti rómverska herguðsins. Við hann er þriðji mánuður ársins, mars, kenndur.
- AmorDrengurSamþykkt17. des 20082 atkv.2 sem fyrsta nafn
Amor er komið af latneska orðinu „amor“ sem merkir „ást“. Í rómverskri goðafræði var Amor annað heiti á Kúpid, ástarguðinum.
- MerkúrDrengurSamþykkt20. júl 20072 atkv.1 sem fyrsta nafn
Merkúr er ein af reikistjörnunum og sú sem næst er sólu. „Mercūrius“ var einstaklega frár sendiboði samkvæmt rómverskri goðafræði.
- NeptúnusDrengurSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn
Neptúnus var sjávarguð Rómverja og eftir honum er reikistjarnan Neptúnus nefnd, sem er áttunda reikistjarna frá sólu.
Samsett nöfn
Nöfn þar sem einn hluti nafnsins tengist þemanu.
Stúlkunöfn
- SilvanaStúlkaSamþykkt3 atkv.9 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og leitt af ítalska karlmannsnafninu „Silvano“, sem aftur er leitt af nafninu „Silvan“, komið úr latínu „Silvanus“. Guð skógarins, akranna og hjarðanna hét „Silvanus“ og er nafnið dregið af latneska nafnorðinu „silva“ sem merkir skógur.
- MarsilíaStúlkaSamþykkt4 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað eftir karlmannsnafninu "Marsilíus" sem merkir sonur stríðsguðsins Mars.
- JúníStúlkaSamþykkt18. feb 20142 atkv.2 sem fyrsta nafn
Júní er dregið af heiti mánaðarins júní, sem er komið af latneska Junius — mánuðinum sem kenndur var við gyðjuna Júnó.
- MarkrúnStúlkaSamþykkt2 atkv.
Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu "Markús" sem merkir afkomandi stríðsguðsins Mars og viðliðnum "rún" sem merkir duli, - vinur í raun.
Drengjanöfn
- JúlíusDrengurSamþykkt3 atkv.361 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er ýmist talið komið af gríska orðinu "jovilios" sem merkir afkomandi Júpíters eða að það sé komið af gríska orðinu "iolus" sem merkir þakinn dúni, - dúnmjúkur.
- MarkúsDrengurSamþykkt2 atkv.250 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af latneska nafninu "Marcus" sem merkir sonur stríðsguðsins Mars.
- MarteinnDrengurSamþykkt2 atkv.192 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af latneska nafninu "Martinus" sem er leitt af nafni stríðsguðs Rómverja sem hét Mars.
- MaríusDrengurSamþykkt3 atkv.37 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr latínu og hefur verið tengt rómverska guðinum Mars sem var stríðsguð Rómverja.
- MarcusDrengurSamþykkt16. mar 20262 atkv.15 sem fyrsta nafn
Markús/Marcus er latneskt nafn sem merkir „sonur Mars“, leitt af nafni herguðsins Mars. Nafnið kemur fyrir í Landnámu, Sturlungu og fornbréfum frá 14. og 15. öld, og fyrsti íslenski nafnberinn sem vitað er um var Markús Skeggjason skáld og lögsögumaður. Markus þekkist á Norðurlöndum frá miðöldum og er einnig notað í enskumælandi og þýskumælandi löndum. Það er vel þekkt úr Nýja testamentinu sem heiti eins guðspjallamannsins. Meðal annarra mynda nafnsins má nefna ensku Mark eða Marcus, þýsku Markus, frönsku Marc, ítölsku og spænsku Marco/Marcos og finnsku Markku.
- JúníDrengurSamþykkt16. okt 20082 atkv.2 sem fyrsta nafn
Júní er dregið af heiti mánaðarins júní, sem er komið af latneska Junius — mánuðinum sem kenndur var við gyðjuna Júnó.