Kaj

Drengjanafn Samþykkt· 1 atkvæði· 16 bera nafnið

Nafnið er erlent að uppruna og þekkist í Danmörku frá 14. öld, í Noregi frá því eftir siðskipti og í Svíþjóð frá 19. öld. Uppruni þess er umdeildur: sumir telja það frísneskt með óvissa merkingu, hugsanlega „hæna“, aðrir telja það keltneskt afbrigði af latneska nafninu „Caius“ eða „Gaius“, en enn aðrir telja það þýska styttingu á „Kaganher“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

6

Fyrsta nafn

10

Annað nafn

16

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042025

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

KarlNafn þetta er komið af nafnorðinu "karl".KaiNafnið er erlent að uppruna og þekkist í Danmörku frá 14. öld, í Noregi frá því eftir siðskipti og í Svíþjóð frá 19. öld. Uppruni er umdeildur: sumir telja það frísneskt með óvissa merkingu, hugsanlega „hæna“, aðrir segja það keltneskt afbrigði af latneska nafninu „Caius“ eða „Gaius“, en enn aðrir telja það þýska styttingu á „Kaganher“.KimNafnið er vel þekkt frá þessari öld á Norðurlöndum, á Englandi og í Þýskalandi. Upphaflega var það eingöngu karlmannsnafn en er nú einnig erlendis notað sem kvenmannsnafn og er þá enskt stuttnefni af „Kimberley“. Söguhetja Rudyards Kiplings í skáldsögunni „Kim“ bar nafnið sem styttingu á „Kimball“ og er það talið hafa ýtt undir notkun styttingarinnar. Nafnið er einnig notað sem stytting á „Jóakim“.KarelNafn þetta er hollensk/slavnesk mynd af nafninu "Karl" sem merkir karlmaður.KatóNafnið er líklegast latneskt að uppruna, ef til vill af „catus“ sem merkir gáfaður, klókur. Rómverskur stjórnmálamaður hét Cato og var kallaður gamli til aðgreiningar frá Cato yngri (d. 147 f.Kr.). Hann var frægur fyrir að enda allar sínar ræður með orðunum: „Auk þess legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði.“ Nafnið Cato var tekið upp í Danmörku á 19. öld, var nokkuð algengt í Noregi á síðustu áratugum 20. aldar og tíðkast einnig í Þýskalandi.KarimNafnið er arabískt, eitt af 99 nöfnum Allah, og merkir „göfuglyndur, örlátur“.KalebNafnið er hebreskt að uppruna, „Kaleb“, sem leitt er af orði sem merkir „hundur“. Kaleb er biblíunafn, nefnt á ýmsum stöðum í Gamla og Nýja testamentinu. Ef til vill hefur ritverkið „Ísfólkið“ haft einhver áhrif á nafngiftirnar.KarvelUppruni nafnsins er óviss en það er hugsanlega hið sama og írska nafnið „Cerbhall“. Það bar meðal annars Írakonungur sem nefndur var „Kjarvalur“ í Laxdælu og víðar. „Karvel“ kemur einnig fyrir sem nafn á konungi í Karlamagnúss sögu.
Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.