Kai
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 29 bera nafnið
Nafnið er erlent að uppruna og þekkist í Danmörku frá 14. öld, í Noregi frá því eftir siðskipti og í Svíþjóð frá 19. öld. Uppruni er umdeildur: sumir telja það frísneskt með óvissa merkingu, hugsanlega „hæna“, aðrir segja það keltneskt afbrigði af latneska nafninu „Caius“ eða „Gaius“, en enn aðrir telja það þýska styttingu á „Kaganher“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fjöldi með nafn
19
Fyrsta nafn
10
Annað nafn
29
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
KáriNafn þetta er veik mynd lýsingarorðsins "kárr" sem merkir hrokkinn, - hrokkinhærður. Einnig má geta þess að nafn þetta er notað um vind. Þegar vindurinn blæs hressilega er oft talað um að Kári blási.KarliKarli hét þræll Ingólfs Arnarsonar og Karli á Karlastöðum er nefndur í Landnámu. Nafnið á vinsældir sínar í Evrópu að þakka Karli mikla eða Karlamagnúsi keisara í Þýskalandi (742–814), sem árið 800 lýsti sig heilagan keisara Rómaríkis, „Carolus magnus“. Nafnið er sama orð og „karl“ sem merkir karlmaður, gamall maður; frjáls maður, sbr. færeysku „kallur“, norsku „kar“, „kall“, sænsku og dönsku „karl“ og fornháþýsku „kar(a)l“ sem merkir karlmaður, eiginmaður, brúðgumi.KarelNafn þetta er hollensk/slavnesk mynd af nafninu "Karl" sem merkir karlmaður.KatóNafnið er líklegast latneskt að uppruna, ef til vill af „catus“ sem merkir gáfaður, klókur. Rómverskur stjórnmálamaður hét Cato og var kallaður gamli til aðgreiningar frá Cato yngri (d. 147 f.Kr.). Hann var frægur fyrir að enda allar sínar ræður með orðunum: „Auk þess legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði.“ Nafnið Cato var tekið upp í Danmörku á 19. öld, var nokkuð algengt í Noregi á síðustu áratugum 20. aldar og tíðkast einnig í Þýskalandi.KarimNafnið er arabískt, eitt af 99 nöfnum Allah, og merkir „göfuglyndur, örlátur“.KalebNafnið er hebreskt að uppruna, „Kaleb“, sem leitt er af orði sem merkir „hundur“. Kaleb er biblíunafn, nefnt á ýmsum stöðum í Gamla og Nýja testamentinu. Ef til vill hefur ritverkið „Ísfólkið“ haft einhver áhrif á nafngiftirnar.KarlNafn þetta er komið af nafnorðinu "karl".KasperNafnið þekkist á Norðurlöndum sem „Kaspar“ og „Kasper“ frá 15. öld og tíðkast einnig á Englandi sem „Caspar“ og í Þýskalandi sem „Kaspar“. Samkvæmt miðaldaheimildum hét einn vitringanna frá Austurlöndum, sem færðu Jesúbarninu gjafir, „Kasper“. Nafnið er talið af persneskum uppruna og merkja upphaflega „féhirðir“. Nafnið „Jesper“ er norræn mynd af þýska nafninu „Jaspar“ sem aftur er hliðarmynd af „Kasper“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →