Dufþakur
Nafnið er komið úr fornírsku „Dubthach“. Forliðurinn er talinn vera fornírska „dub(h)“ sem merkir svartur, dökkur, en viðliðurinn „-thach“ hefur óvissa merkingu. Nafnið gæti ef til vill merkt „hinn svarthærði“ eða eitthvað í þá veruna, sbr. írska nafnið „Duald“ sem er ensk mynd af gelíska nafninu „Dubhaltach“ og merkir hugsanlega „svarthærður“ eða „svartfættur“. Dufþakur hét þræll Hjörleifs, fóstbróður Ingólfs Arnarsonar, sem lagði á ráðin um víg hans að sögn Landnámu. Ingólfur hefndi fóstbróður síns úti í Vestmannaeyjum og féll Dufþakur þar sem nefndist Dufþaksskor en heitir nú Dufþekja. Í Landnámu er einnig nefndur Dufþakur í Holti, síðar Dufþaksholti í Rangárvallasýslu, og frá viðskiptum hans og þeirra feðga Stórólfs og Orms á Stórólfshvoli segir í Orms þætti Stórólfssonar.
Ábending eða leiðrétting?Fjöldi sem ber nafnið, á ári
| Ár | 1. nafn | 2. nafn |
|---|---|---|
| 2004 | 0 | 1 |
| 2005 | 0 | 1 |
| 2006 | 0 | 1 |
| 2007 | 0 | 1 |
| 2008 | 0 | 1 |
| 2009 | 0 | 1 |
| 2010 | 0 | 1 |
| 2011 | 0 | 1 |
| 2012 | 0 | 1 |
| 2013 | 0 | 1 |
| 2014 | 0 | 1 |
| 2015 | 0 | 1 |
| Ár | 1. nafn | 2. nafn |
|---|---|---|
| 2016 | 0 | 1 |
| 2017 | 0 | 1 |
| 2018 | 0 | 1 |
| 2019 | 0 | 1 |
| 2020 | 0 | 1 |
| 2021 | 0 | 1 |
| 2022 | 0 | 1 |
| 2023 | 0 | 1 |
| 2024 | 0 | 1 |
| 2025 | 0 | 1 |
| 2026 | 0 | 1 |
Þú þarft ekki að setja hjarta fyrst.
Með föður- eða móðurnafniPrófaðu fullt nafn
Dufþakur Gunnarsson
Heimildir
- 1 Merking: Nafnaskýringar að hluta byggðar á Nöfnum Íslendinga, Behind the Name og Nordic Names
- 2 Fjöldi og sætiFjöldi nafnbera og nýfæddra: Þjóðskrá Íslands
- 3 Sæti meðal nýfæddra: Þjóðskrá hefur ekki birt kyn barnanna síðan 2023. Kynið kemur því úr listum áranna 2021 og 2022 og annars úr mannanafnaskrá.
- 4 Staða: Mannanafnaskrá Þjóðskrár