Kiljan
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 23 bera nafnið
Nafnið var tekið upp sem kenningarnafn á þriðja áratug 20. aldar af rithöfundinum Halldóri Laxness. Það er gelískt, „Cillian“, upphaflega viðurnefni myndað með smækkunarendingu af gelísku „ceallach“ 'barátta' eða leitt af gelísku „ceall“ 'klaustur, kirkja'. Ýmsir írskir dýrlingar hafa borið þetta nafn. Ensk mynd nafnsins er „Killian“, „Cillian“ og „Kilian“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
12
Fyrsta nafn
11
Annað nafn
23
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
KilíanNafnið var tekið upp sem kenningarnafn á þriðja áratug 20. aldar af rithöfundinum Halldóri Laxness. Það er gelískt, „Cillian“, upphaflega viðurnefni myndað með smækkunarendingu af gelísku „ceallach“ 'barátta' eða leitt af gelísku „ceall“ 'klaustur, kirkja'. Ýmsir írskir dýrlingar hafa borið þetta nafn. Ensk mynd nafnsins er „Killian“, „Cillian“ og „Kilian“.KinanNafnið er arabískt að uppruna og dregið af orðinu „keenan“ sem merkir blæja, hula, slæða.KjartanNafn þetta er komið af írska konungsheitinu "Muircheartach" sem merkir sækonungur, - sjóliði.KjaranNafn þetta er komið af fornírska orðinu "ciarán" sem merkir lítill, - jarphærður.KalmanÚr írsku: lítil dúfa.KíranNafnið getur haft tvenns konar uppruna. Annars vegar á það rætur að rekja til orðsins „kirana“ sem merkir „sólargeisli; ryk“ í sanskrít, en hins vegar til írska nafnsins „Ciaran“ sem merkir „dimmur“. Það er vinsælt til dæmis í Englandi og Wales.DamjanSennilega sama nafn og „Damian“ sem er vel þekkt í enskumælandi löndum og Póllandi. Það á rætur í gríska nafninu „Damianos“ sem aftur er líklega skylt gríska orðinu „damazein“ sem merkir að temja.KeranNafnið þekkist í Noregi sem „Kjeran“ og „Kjerand“. Elsta mynd þess er „Hjarrandi“ sem var Óðinsheiti, en dæmi eru um eiginnafnið á Íslandi á 10. öld og í Noregi á 11. öld. Eftir 1300 var „Hjarrand(r)“ algengt nafn í Noregi og breyttist sú mynd síðan í „Kjeran(d)“ og sums staðar í „Tjerand“, „Tjærand“ og „Jarand“. Nafnið er hugsanlega skylt fornháþýska nafninu „Herrant“ og fornenska nafninu „Heorenda“, en fyrri liður er þá sama orð og „her“ og síðari liður „rönd“ í merkingunni „skjöldur“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →