Dufgus
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði
Dufgus Þorleifsson er nefndur í Sturlungu. Nafnið er komið úr fornírsku „Dubgus“, af „dub“ sem merkir „dökkur“ og „gus“ sem merkir „höfuð“, og er samsvarandi íslenska nafninu Svarthöfði.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
0
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
DugfúsNafnið kemur fyrir í Landnámu og er sennilega íslenskun á „Dufgus“.DemusNafnið er talið þýsk stytting á „Nikodemus“.DíbusDennisDennis er komið úr frönsku eða ensku sem stytting af gríska nafninu Díónýsíusi, „vígður Díónýsíusi (guði víns og lífsgleði í grísku goðafræðinni)“. Það er skylt frönsku og rússnesku Denis. Nafnið er þekkt á Norðurlöndum, í Þýskalandi, Ameríku og á Englandi.DufþakurNafnið er komið úr fornírsku „Dubthach“. Forliðurinn er talinn vera fornírska „dub(h)“ sem merkir svartur, dökkur, en viðliðurinn „-thach“ hefur óvissa merkingu. Nafnið gæti ef til vill merkt „hinn svarthærði“ eða eitthvað í þá veruna, sbr. írska nafnið „Duald“ sem er ensk mynd af gelíska nafninu „Dubhaltach“ og merkir hugsanlega „svarthærður“ eða „svartfættur“. Dufþakur hét þræll Hjörleifs, fóstbróður Ingólfs Arnarsonar, sem lagði á ráðin um víg hans að sögn Landnámu. Ingólfur hefndi fóstbróður síns úti í Vestmannaeyjum og féll Dufþakur þar sem nefndist Dufþaksskor en heitir nú Dufþekja. Í Landnámu er einnig nefndur Dufþakur í Holti, síðar Dufþaksholti í Rangárvallasýslu, og frá viðskiptum hans og þeirra feðga Stórólfs og Orms á Stórólfshvoli segir í Orms þætti Stórólfssonar.DaríusNafnið er persneskt að uppruna og er þekktasti nafnberi líklegast Daríus Persakonungur. Í grísku var nafnið „Dareios“ en upphafleg persnesk mynd þess mun líklega hafa verið „Darayavhush“, sett saman af liðunum „daraya(miy)“ sem merkir „eiga“ og „vahu“ sem merkir „góður“. Ítalska myndin „Dario“ hefur verið tekin upp á Englandi en latneska myndin „Darius“ er notuð í Ameríku.LárusNafn þetta er fengið af latneska orðinu "laurus" sem merkir lárviður.DeimosDeimos merkir „skelfing“ á grísku. Í grískri goðafræði var Deimos sonur stríðsguðsins Aresar og persónugervingur ógnar; tungl Mars ber einnig nafnið.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →