Kamal
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 13 bera nafnið
Nafnið hefur tvenns konar uppruna. Annars vegar er það arabískt og merkir „fullkomnun“ og hins vegar indverskt og merkir „lótusblóm; ljósrauður“ á sanskrít. Þá er það einnig stytting á nafninu Kamala sem bæði er notað á karla og konur.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
9
Fyrsta nafn
8
Annað nafn
17
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
KarelNafn þetta er hollensk/slavnesk mynd af nafninu "Karl" sem merkir karlmaður.KarvelUppruni nafnsins er óviss en það er hugsanlega hið sama og írska nafnið „Cerbhall“. Það bar meðal annars Írakonungur sem nefndur var „Kjarvalur“ í Laxdælu og víðar. „Karvel“ kemur einnig fyrir sem nafn á konungi í Karlamagnúss sögu.KarimNafnið er arabískt, eitt af 99 nöfnum Allah, og merkir „göfuglyndur, örlátur“.KarmaKarma er komið af sanskrítorðinu „karma“ sem merkir „verk, gjörð, örlög“. Hugtakið er þekkt úr búddisma og hindúisma um orsök og afleiðingu gjörða.KarlNafn þetta er komið af nafnorðinu "karl".KarliKarli hét þræll Ingólfs Arnarsonar og Karli á Karlastöðum er nefndur í Landnámu. Nafnið á vinsældir sínar í Evrópu að þakka Karli mikla eða Karlamagnúsi keisara í Þýskalandi (742–814), sem árið 800 lýsti sig heilagan keisara Rómaríkis, „Carolus magnus“. Nafnið er sama orð og „karl“ sem merkir karlmaður, gamall maður; frjáls maður, sbr. færeysku „kallur“, norsku „kar“, „kall“, sænsku og dönsku „karl“ og fornháþýsku „kar(a)l“ sem merkir karlmaður, eiginmaður, brúðgumi.KalebNafnið er hebreskt að uppruna, „Kaleb“, sem leitt er af orði sem merkir „hundur“. Kaleb er biblíunafn, nefnt á ýmsum stöðum í Gamla og Nýja testamentinu. Ef til vill hefur ritverkið „Ísfólkið“ haft einhver áhrif á nafngiftirnar.KasperNafnið þekkist á Norðurlöndum sem „Kaspar“ og „Kasper“ frá 15. öld og tíðkast einnig á Englandi sem „Caspar“ og í Þýskalandi sem „Kaspar“. Samkvæmt miðaldaheimildum hét einn vitringanna frá Austurlöndum, sem færðu Jesúbarninu gjafir, „Kasper“. Nafnið er talið af persneskum uppruna og merkja upphaflega „féhirðir“. Nafnið „Jesper“ er norræn mynd af þýska nafninu „Jaspar“ sem aftur er hliðarmynd af „Kasper“.