Arnika
Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði
Nafnið er erlent að uppruna. Í Noregi er „Arnike“ hliðarmynd af „Anniken“ sem í þýsku er gælumynd af „Anna“. „Arnika“ er einnig notað í Þýskalandi, lagað eins og í Noregi, eftir forliðnum „Arn-“ sem merkir „örn“. Einnig gæti lækningajurtin arnika hafa haft áhrif á nafngjöf í Þýskalandi.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
ArnóraKvenmynd af karlmannsnafninu Arnór.ArnkatlaNafnið kemur fyrir í Landnámu og hefur verið endurvakið eftir að hafa lítið verið í notkun. Það er leitt af karlmannsnafninu „Arnkell“, með forliðnum „Arn-“ og viðliðnum „-katla“, sem er dreginn af nafninu „Katla“.AnnikaNafnið á rætur að rekja til Norður-Þýskalands og Hollands, þar sem það þekkist sem „Anneke“ og er leitt af nafninu „Anna“ með viðskeyti. Endingin „-ke“ í lágþýsku samsvarar endingunni „-chen“ í háþýsku og er notuð sem gælu- og smækkunarending; háþýska myndin er „Ännchen“, þ.e. „Anna litla“. Úr þýsku barst nafnið til Danmerkur á 15. öld sem „Annike“ og til Svíþjóðar á 16. öld sem „Annika“. Nafnið „Anniken“ þekkist í Noregi frá 17. öld.ArnfinnaNafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir ýmist örn eða arinn og er þá tákn fyrir heimili, og viðliðnum "finna" sem merkir kona.ArnþóraKvenmynd karlmannsnafnsins Arnþór sem er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða Arinn, og viðliðnum "þór" sem er guðinn úr goðafræðinni.ArnaKvenmynd nafnsins Örn.AnikaNafn þetta er þýsk smækkunarmynd, samsett úr orðunum "Anna" og "chen" og merkir Anna litlaArntinnaNafnið er sett saman af forliðnum „Arn-“ og nafnorðinu „tinna“.