Víóletta
Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 4 bera nafnið
Nafnið er erlent að uppruna. Í ensku er notuð myndin „Violet“, í frönsku „Violetta“, leidd af fornfranska jurtarheitinu „violette“ sem aftur er fengið að láni úr síðlatínu „violetta“, smækkunarmynd af „viōla“. Íslenska jurtarheitið er „fjóla“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
4
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
4
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
VíólaNafnið þekkist vel á Norðurlöndum, í enskumælandi löndum og á Ítalíu. Það á rætur að rekja til latneska orðsins „viola“ sem merkir „fjóla“.ViktoríaNafn þetta er komið úr latínu og er leitt af orðinu "victoria" sem merkir sigur. Viktoría er því hin sigursæla.VeronikaNafn þetta er latnesk ummyndun nafnsins "Berenice" og merkir sú sem veitir sigur.VictoríaSama/svipað og Viktoría.VictoriaViktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.JúlíettaNafnið er upphaflega franskt, leitt af nafninu „Julie“ (sjá „Júlía“) með frönsku smækkunarendingunni „-ette“. Enska myndin er „Juliet“ og hún öðlaðist talsverðar vinsældir eftir að Shakespeare skrifaði leikrit sitt „Romeo and Juliet“ árið 1597. Nafnið „Giuliétta“ er einnig vinsælt á Ítalíu.ViktoriaViktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.HenriettaNafn þetta er komið úr frönsku og er upphaflega myndað af nafninu "Henri" sem merkir sá sem er valdmikill heima fyrir.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →