Greinar · Vinsælustu nöfn eftir árum

Vinsælustu nöfnin 2025

Þjóðskrá skráði eiginnöfn 4.227 nýfæddra barna árið 2025. Listarnir hér fyrir neðan koma úr þeim tölum: vinsælustu fyrstu eiginnöfn stúlkna og drengja og hvaða annað eiginnafn var oftast valið. Neðar á síðunni sést svo hvaða nöfn bættu við sig flestum skráningum í þjóðskrá í heild, þar sem innflytjendur og nafnbreytingar telja líka.

2025
2024

Topp 10 stúlkunöfn 2025

  1. 1Matthildur34 stúlkur
  2. 2Embla25 stúlkur
  3. 3Salka23 stúlkur
  4. 4Emma21 stúlka
  5. 5Sóldís19 stúlkur
  6. 6Andrea18 stúlkur
  7. 7Viktoría18 stúlkur
  8. 8Hildur17 stúlkur
  9. 9Sóley17 stúlkur
  10. 10Emilía17 stúlkur

Topp 10 drengjanöfn 2025

  1. 1Birnir33 drengir
  2. 2Matthías29 drengir
  3. 3Jökull26 drengir
  4. 4Emil26 drengir
  5. 5Aron24 drengir
  6. 6Ýmir23 drengir
  7. 7Óliver23 drengir
  8. 8Jón21 drengur
  9. 9Björn20 drengir
  10. 10Stefán20 drengir

Annað eiginnafn 2025

Um 84% barna fengu líka annað eiginnafn árið 2025. Þessi voru algengust.

Annað eiginnafn stúlkna

  1. 1Rós51 stúlka
  2. 2María41 stúlka
  3. 3Sól40 stúlkur
  4. 4Líf36 stúlkur
  5. 5Ósk36 stúlkur
  6. 6Björk29 stúlkur
  7. 7Rún25 stúlkur
  8. 8Kristín24 stúlkur
  9. 9Dís23 stúlkur
  10. 10Sif22 stúlkur

Annað eiginnafn drengja

  1. 1Máni66 drengir
  2. 2Þór65 drengir
  3. 3Leó47 drengir
  4. 4Freyr47 drengir
  5. 5Snær44 drengir
  6. 6Logi43 drengir
  7. 7Orri42 drengir
  8. 8Örn40 drengir
  9. 9Hrafn36 drengir
  10. 10Ingi34 drengir

Árið 2025 í tölum

  • Matthildur var vinsælasta stúlkunafnið. 34 stúlkur fengu það.
  • Birnir var vinsælasta drengjanafnið. 33 drengir fengu það.
  • Alls fengu 4.227 börn fyrsta eiginnafn og um 84% þeirra fengu einnig annað eiginnafn.
  • Vinsælasta annað eiginnafnið var Rós hjá stúlkum og Máni hjá drengjum.

Flestar nýjar skráningar í þjóðskrá 2025

Þjóðskrá stækkar ekki bara við fæðingar. Fólk flytur til landsins og sumir breyta nafni sínu. Hér eru nöfnin sem bættu við sig flestum skráningum árið 2025 þegar allt er talið, og röðin verður önnur en á listunum yfir nýfædd börn.

Stúlkunöfn með flestar nýjar skráningar

  • Maria
    StúlkaSamþykkt5. maí 20063 atkv.486 sem fyrsta nafn

    Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.

  • Sara
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.

  • Embla
    StúlkaSamþykkt2 atkv.542 sem fyrsta nafn

    Embla er fyrsta konan í norrænni goðafræði, - viðarheiti. Sagan segir að Óðinn og bræður hans hafi gefið tveimur trjám, Aski og Emblu líf og urðu þau fyrstu manneskjurnar og frá þeim á allt mannkyn að vera komið.

  • Matthildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.461 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er þýskt að uppruna og er sett saman af nafnorðinu "maht" sem merkir kraftur, - afl og nafnorðinu "hiltiu" sem merkir orrusta.

  • Birta
    StúlkaSamþykkt2 atkv.540 sem fyrsta nafn

    Ýmist talið að hér sé um að ræða íslenska orðið birta, - ljómi, eða þá að nafnið sé komið frá Norðurlöndum og sé leitt af nafninu Birgitta sem merkir hin háa.

  • Eva
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.440 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni og þýðir það líf, - sú sem gefur líf. Eva er fyrsta konan og hún og Adam eru þau sem allir menn eru komnir af skv. biblíunni.

  • Andrea
    StúlkaSamþykkt3 atkv.846 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er kvenmynd nafnsins Andreas sem aftur er norræn mynd nafnsins Andrés sem er biblíunafnið Andréas úr grísku og táknar hugrekki.

  • Viktoría
    StúlkaSamþykkt4 atkv.531 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr latínu og er leitt af orðinu "victoria" sem merkir sigur. Viktoría er því hin sigursæla.

  • Aþena
    StúlkaSamþykkt3 atkv.314 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr grískri goðafræði en Aþena var gyðja skynsemi og handiðnar, auk þess sem hún var stríðsgyðja.

  • Bríet
    StúlkaSamþykkt2 atkv.390 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið frá Norðurlöndum og er víxlmynd við nöfn eins og Brigit, - Brigitta og tengist því nafninu Birgitta sem merkir hin háa.

Drengjanöfn með flestar nýjar skráningar

  • Adam
    DrengurSamþykkt2 atkv.678 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er biblíunafn úr hebresku og táknar bæði mann og jörð.

  • Matthías
    DrengurSamþykkt3 atkv.612 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr biblíunni, af hebreska nafninu "Mattathiha" sem merkir gjöf guðs.

  • Birnir
    DrengurSamþykkt2 atkv.206 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er það sama og nafnið Björn en myndað af kvennafninu Birna.

  • Óliver
    DrengurSamþykkt3 atkv.400 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Oliver.

  • Alexander
    DrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.

  • Ýmir
    DrengurSamþykkt2 atkv.208 sem fyrsta nafn

    Mismunandi hugmyndir eru uppi um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir vilja meina að það tengist sögninni "ymja" sem merkir að umla, - hljóða en aðrir að það merki jötunn í goðafræðinni. Ýmir var mestur jötna, líkt og Óðinn var æðstur ása. Óðinn og bræður hans drápu Ými og gerðu úr honum heiminn, beinin og tennurnar urðu að fjöllum og firnindum, blóðið að sjónum, hárið að skógi, höfuðkúpan að himinhvolfinu og heilinn að skýjum.

  • Martin
    DrengurSamþykkt2 atkv.157 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Marteinn.

  • Viktor
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.101 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska orðinu "victor" sem merkir sigurvegari.

  • Jökull
    DrengurSamþykkt2 atkv.576 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "jökull" sem merkir klaki, - ís.

  • Aron
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn

    Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.

Kynhlutlaus nöfn með flestar nýjar skráningar

  • Skylar
    KynhlutlaustSamþykkt6. ágú 20212 atkv.

    Nafnið er erlent að uppruna, hollenskt í rót, og notað fyrir öll kyn. Það er talsvert notað í Ameríku og tengist meðal annars tónlist auk þess að koma fyrir sem nafn persóna í leikþáttum, sjónvarpsseríum og kvikmyndum.

  • Arló
    KynhlutlaustSamþykkt19. ágú 20242 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Arló er afbrigði af nafninu Arlo, sem er af óvissum uppruna. Það er hugsanlega komið úr kvæðinu The Faerie Queene (1590) og tengt írska örnefninu Aherlow („milli tveggja hálenda“).

  • Frey
    KynhlutlaustSamþykkt8. maí 20251 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Frey er af norræna nafninu Freyr, sem merkir „drottinn“ eða „herra“. Freyr var frjósemis- og árgæskugoð í norrænni goðafræði.

  • Quin
    KynhlutlaustSamþykkt7. jún 20232 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er írskt að uppruna og talið merkja afkomandi „Conn“, en „conn“ er talið fornkeltískt og merkja „höfðingi“.

  • Rökkur
    KynhlutlaustSamþykkt13. ágú 20252 atkv.

    Rökkur er íslenskt nafn af orðinu „rökkur“ sem merkir „ljósaskipti, húm eða skuggsýni í dagslok“.

  • Silfurregn
    KynhlutlaustSamþykkt13. ágú 20253 atkv.

    Silfurregn er samsett íslenskt nafn úr „silfur“ og „regn“, og merkir bókstaflega „silfurlitað regn“.

Millinöfn með flestar nýjar skráningar

  • Dan
    MillinafnSamþykkt1 atkv.23 sem fyrsta nafn

    Danskur. Dan konungur, sem Danmörk heitir eftir, skv. Snorra.

  • Matt
    MillinafnSamþykkt20. okt 20041 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Matt er stytting á nafninu Matthew (Matthías), sem er af hebreska nafninu Mattityahu og merkir „gjöf Guðs“.

Um gögnin

Topplistarnir yfir nöfn nýfæddra koma frá Þjóðskrá Íslands, sem birtir árlega öll fyrstu og önnur eiginnöfn barna sem fæddust á árinu. Þjóðskrá birtir kynjaskiptingu ekki fyrir þetta ár, svo hún er fengin úr mannanafnaskrá.

Listinn yfir nýjar skráningar byggist á öðrum tölum: fjölda einstaklinga með hvert nafn í þjóðskrá í lok árs. Munurinn milli ára telur nýfædd börn, innflytjendur og nafnbreytingar, að frádregnum þeim sem falla frá eða flytja úr landi. Þess vegna raðast nöfnin ekki eins á þessum tveimur listum.

Önnur ár

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →