Greinar · Vinsælustu nöfn eftir árum

Vinsælustu nöfnin 2018

Þjóðskrá birtir lista yfir nöfn nýfæddra frá árinu 2021 en ekki fyrir eldri ár. Fyrir árið 2018 sýnum við í staðinn nöfnin sem bættu við sig flestum skráningum í þjóðskrá það árið. Í þeim tölum eru nýfædd börn, fólk sem flutti til landsins og nafnbreytingar.

Topp 10 stúlkunöfn 2018

  • Anna
    StúlkaSamþykkt2 atkv.4.692 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta kemur frá hebreska orðinu Channa sem merkir náð.

  • Maria
    StúlkaSamþykkt5. maí 20063 atkv.486 sem fyrsta nafn

    Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.

  • Marta
    StúlkaSamþykkt2 atkv.574 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni, fengið af arameíska nafninu "Martá" sem merkir frú, - húsfrú.

  • Magdalena
    StúlkaSamþykkt4 atkv.423 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta kemur úr biblíunni, af viðurnefninu "Hé Magdalené" sem merkir kona frá Magdala, en það var þorp við Genesaretvatn

  • Sara
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.

  • Monika
    StúlkaSamþykkt3 atkv.395 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Mónika.

  • Freyja
    StúlkaSamþykkt2 atkv.643 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er skylt gotneska orðinu "frauja" sem merkir herra, - drottinn og þýðir í þessu tilviki frú.

  • Alexandra
    StúlkaSamþykkt4 atkv.580 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur frá karlmannsnafninu Alexander sem merkir verndari.

  • Hekla
    StúlkaSamþykkt2 atkv.531 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sótt til eldfallsins Hekla. Það hefur verið tengt við nafnorðið "hekla" sem merkir ermalaus kápa með hettu.

  • Eva
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.440 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni og þýðir það líf, - sú sem gefur líf. Eva er fyrsta konan og hún og Adam eru þau sem allir menn eru komnir af skv. biblíunni.

Topp 10 drengjanöfn 2018

  • Adam
    DrengurSamþykkt2 atkv.678 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er biblíunafn úr hebresku og táknar bæði mann og jörð.

  • Aron
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn

    Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.

  • Viktor
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.101 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska orðinu "victor" sem merkir sigurvegari.

  • Daniel
    DrengurSamþykkt18. júl 20053 atkv.524 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Daníel.

  • Robert
    DrengurSamþykkt30. jan 20082 atkv.346 sem fyrsta nafn

    Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá miðöldum, meðal annars sem „Hróðbjartr“, „Róðbertr“ og „Rotbert“. Það er tökunafn úr fornháþýsku „Hruodperht“, „Ruodpert“, „Rodbert“, sett saman af nafnorðinu „hroth“ sem merkir hróður, frægð, og lýsingarorðinu „beraht“ sem merkir bjartur, skínandi.

  • Alexander
    DrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.

  • Emil
    DrengurSamþykkt2 atkv.758 sem fyrsta nafn

    Nafnið er tökunafn hérlendis, líklega komið úr dönsku, af latneska ættarheitinu „Aemilius“ sem hugsanlega á rætur í latneska orðinu „aemulus“, er merkir „keppinautur“. Nafnið hefur verið notað víða á Norðurlöndum og í Evrópu; frönsk mynd þess er „Émile“, ítölsk, spænsk og portúgölsk „Emilio“ og slavnesk „Milo“.

  • Kári
    DrengurSamþykkt2 atkv.913 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er veik mynd lýsingarorðsins "kárr" sem merkir hrokkinn, - hrokkinhærður. Einnig má geta þess að nafn þetta er notað um vind. Þegar vindurinn blæs hressilega er oft talað um að Kári blási.

  • Adrian
    DrengurSamþykkt6. jan 20173 atkv.317 sem fyrsta nafn

    Nafnið er leitt af latnesku nafnmyndinni „Hadrianus“ og merkir „maður frá Hadria“, borg á Norður-Ítalíu. Það er vinsælt í enskumælandi löndum og hefur þekkst í Danmörku frá 15. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 16. öld.

  • Filip
    DrengurSamþykkt2 atkv.206 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Filippus.

Topp millinöfn 2018

  • Dan
    MillinafnSamþykkt1 atkv.23 sem fyrsta nafn

    Danskur. Dan konungur, sem Danmörk heitir eftir, skv. Snorra.

  • Stein
    MillinafnSamþykkt1 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „steinn“.

Árið 2018 í tölum

  • Anna bætti við sig flestum skráningum stúlkunafna, alls 49.
  • Adam bætti við sig flestum skráningum drengjanafna, alls 53.
  • Samtals fjölgaði skráningum á stúlkunöfn um 2.123 og á drengjanöfn um 2.098 árið 2018.

Um gögnin

Tölurnar byggjast á breytingu á fjölda í þjóðskrá: fjöldi einstaklinga með nafnið sem fyrsta eiginnafn í lok árs 2018 mínus sama tala í lok árs 2017. Í þeim mun eru nýfædd börn, fólk sem flutti til Íslands og nafnbreytingar. Gögnin koma frá Þjóðskrá Íslands.

Opinberir listar yfir nöfn nýfæddra barna ná aftur til ársins 2021. Þá lista má sjá á síðum þeirra ára hér á vefnum.

Önnur ár

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →