Greinar · Vinsælustu nöfn eftir árum
Vinsælustu nöfnin 2020
Þjóðskrá birtir lista yfir nöfn nýfæddra frá árinu 2021 en ekki fyrir eldri ár. Fyrir árið 2020 sýnum við í staðinn nöfnin sem bættu við sig flestum skráningum í þjóðskrá það árið. Í þeim tölum eru nýfædd börn, fólk sem flutti til landsins og nafnbreytingar.
Topp 10 stúlkunöfn 2020
- FreyjaStúlkaSamþykkt2 atkv.643 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er skylt gotneska orðinu "frauja" sem merkir herra, - drottinn og þýðir í þessu tilviki frú.
- AndreaStúlkaSamþykkt3 atkv.846 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er kvenmynd nafnsins Andreas sem aftur er norræn mynd nafnsins Andrés sem er biblíunafnið Andréas úr grísku og táknar hugrekki.
- SaraStúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.
- EmilíaStúlkaSamþykkt4 atkv.736 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr latínu og er upprunalega nafnið "Aemilia". Emilía getur einnig verið víxlmynd við Amalía.
- BríetStúlkaSamþykkt2 atkv.390 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið frá Norðurlöndum og er víxlmynd við nöfn eins og Brigit, - Brigitta og tengist því nafninu Birgitta sem merkir hin háa.
- EmmaStúlkaSamþykkt2 atkv.558 sem fyrsta nafn
Nafnið barst til Norðurlanda frá Þýskalandi. Það var upphaflega stytting á nöfnum sem hófust á „Erm-“ eða „Ermen-“, til dæmis „Ermgard“, „Ermenhild“ og „Ermtraud“, en sá forliður er skyldur „jörmun-“ í íslensku. Stuttnefnið var þá líklega fyrst „Erma“ en síðar varð til myndin „Emma“, sem einnig var notuð sem stytting á nafninu „Emilia“.
- EvaStúlkaSamþykkt2 atkv.1.440 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og þýðir það líf, - sú sem gefur líf. Eva er fyrsta konan og hún og Adam eru þau sem allir menn eru komnir af skv. biblíunni.
- HelenaStúlkaSamþykkt3 atkv.748 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er ýmist talið komið af gríska orðinu "helios" sem merkir sól eða af gríska orðinu "élene" sem merkir kyndill.
- HeklaStúlkaSamþykkt2 atkv.531 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sótt til eldfallsins Hekla. Það hefur verið tengt við nafnorðið "hekla" sem merkir ermalaus kápa með hettu.
Topp 10 drengjanöfn 2020
- AlexanderDrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.
- AronDrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn
Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.
- EmilDrengurSamþykkt2 atkv.758 sem fyrsta nafn
Nafnið er tökunafn hérlendis, líklega komið úr dönsku, af latneska ættarheitinu „Aemilius“ sem hugsanlega á rætur í latneska orðinu „aemulus“, er merkir „keppinautur“. Nafnið hefur verið notað víða á Norðurlöndum og í Evrópu; frönsk mynd þess er „Émile“, ítölsk, spænsk og portúgölsk „Emilio“ og slavnesk „Milo“.
- KristóferDrengurSamþykkt3 atkv.859 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af gríska nafninu "Khristóphoros" sem merkir sá sem ber krist.
- KáriDrengurSamþykkt2 atkv.913 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er veik mynd lýsingarorðsins "kárr" sem merkir hrokkinn, - hrokkinhærður. Einnig má geta þess að nafn þetta er notað um vind. Þegar vindurinn blæs hressilega er oft talað um að Kári blási.
- ArnarDrengurSamþykkt2 atkv.1.741 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðskeytinu "ar"
- TómasDrengurSamþykkt2 atkv.1.018 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, frá Tómasi sem var einn af lærisveinum Jesú. Þaðan kom nafnið úr grísku þar sem það merkir tvíburi.
- EgillDrengurSamþykkt2 atkv.714 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er af norrænum uppruna, leitt af rótinni agi, - ógn.
- BenediktDrengurSamþykkt3 atkv.866 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er tekið úr latinu, samsvarar latneska orðinu "benedictus" sem þýðir blessaður.
Topp millinöfn 2020
- ElvanMillinafnSamþykkt31. ágú 20062 atkv.1 sem fyrsta nafn
Fyrri liður nafnsins er hinn sami og í eiginnöfnunum „Elva“ og „Elvar“, en viðliðurinn „-an“ er algengur við myndun millinafna, líkt og í nöfnunum „Aldan“, „Diljan“ og „Hrafnan“.
Árið 2020 í tölum
- Freyja bætti við sig flestum skráningum stúlkunafna, alls 40.
- Alexander bætti við sig flestum skráningum drengjanafna, alls 45.
- Samtals fjölgaði skráningum á stúlkunöfn um 1.939 og á drengjanöfn um 1.990 árið 2020.
Um gögnin
Tölurnar byggjast á breytingu á fjölda í þjóðskrá: fjöldi einstaklinga með nafnið sem fyrsta eiginnafn í lok árs 2020 mínus sama tala í lok árs 2019. Í þeim mun eru nýfædd börn, fólk sem flutti til Íslands og nafnbreytingar. Gögnin koma frá Þjóðskrá Íslands.
Opinberir listar yfir nöfn nýfæddra barna ná aftur til ársins 2021. Þá lista má sjá á síðum þeirra ára hér á vefnum.
Önnur ár
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →