Greinar · Vinsælustu nöfn eftir árum
Vinsælustu nöfnin 2016
Þjóðskrá birtir lista yfir nöfn nýfæddra frá árinu 2021 en ekki fyrir eldri ár. Fyrir árið 2016 sýnum við í staðinn nöfnin sem bættu við sig flestum skráningum í þjóðskrá það árið. Í þeim tölum eru nýfædd börn, fólk sem flutti til landsins og nafnbreytingar.
Topp 10 stúlkunöfn 2016
- SaraStúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.
- AnnaStúlkaSamþykkt2 atkv.4.692 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur frá hebreska orðinu Channa sem merkir náð.
- MariaStúlkaSamþykkt5. maí 20063 atkv.486 sem fyrsta nafn
Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.
- AndreaStúlkaSamþykkt3 atkv.846 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er kvenmynd nafnsins Andreas sem aftur er norræn mynd nafnsins Andrés sem er biblíunafnið Andréas úr grísku og táknar hugrekki.
- EmmaStúlkaSamþykkt2 atkv.558 sem fyrsta nafn
Nafnið barst til Norðurlanda frá Þýskalandi. Það var upphaflega stytting á nöfnum sem hófust á „Erm-“ eða „Ermen-“, til dæmis „Ermgard“, „Ermenhild“ og „Ermtraud“, en sá forliður er skyldur „jörmun-“ í íslensku. Stuttnefnið var þá líklega fyrst „Erma“ en síðar varð til myndin „Emma“, sem einnig var notuð sem stytting á nafninu „Emilia“.
- EvaStúlkaSamþykkt2 atkv.1.440 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og þýðir það líf, - sú sem gefur líf. Eva er fyrsta konan og hún og Adam eru þau sem allir menn eru komnir af skv. biblíunni.
- HeklaStúlkaSamþykkt2 atkv.531 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sótt til eldfallsins Hekla. Það hefur verið tengt við nafnorðið "hekla" sem merkir ermalaus kápa með hettu.
- KarolStúlkaSamþykkt21. nóv 20142 atkv.199 sem fyrsta nafn
Nafnið er notað víða í Evrópu sem stytting á „Karoline“ og „Karola“, sem tengjast nafninu Karólína.
- SóleyStúlkaSamþykkt2 atkv.759 sem fyrsta nafn
Nafnið er myndað af forliðnum „Sól-“ og viðliðnum „ey“ og merkir þá „sólareyja“. Hugsanlega gæti jurtarheitið „sóley“ einnig legið að baki sumum nafngiftunum.
Topp 10 drengjanöfn 2016
- AlexanderDrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.
- MikaelDrengurSamþykkt3 atkv.621 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni, komið af nafninu "Mika'el" sem merkir hver er sem guð? Mikael erkiengill er af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverk guðs.
- AdamDrengurSamþykkt2 atkv.678 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn úr hebresku og táknar bæði mann og jörð.
- SebastianDrengurSamþykkt4 atkv.314 sem fyrsta nafn
Nafnið er af sumum rakið til gríska nafnsins „Sebastianós“, „maður frá Sebasta“, en Sebasta var borg í Litlu-Asíu. Aðrir telja það leitt af gríska lýsingarorðinu „sebastós“, „tiginn“. Heilagur Sebastian var píslarvottur sem uppi var á þriðju öld.
- AronDrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn
Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.
- AdrianDrengurSamþykkt6. jan 20173 atkv.317 sem fyrsta nafn
Nafnið er leitt af latnesku nafnmyndinni „Hadrianus“ og merkir „maður frá Hadria“, borg á Norður-Ítalíu. Það er vinsælt í enskumælandi löndum og hefur þekkst í Danmörku frá 15. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 16. öld.
- RobertDrengurSamþykkt30. jan 20082 atkv.346 sem fyrsta nafn
Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá miðöldum, meðal annars sem „Hróðbjartr“, „Róðbertr“ og „Rotbert“. Það er tökunafn úr fornháþýsku „Hruodperht“, „Ruodpert“, „Rodbert“, sett saman af nafnorðinu „hroth“ sem merkir hróður, frægð, og lýsingarorðinu „beraht“ sem merkir bjartur, skínandi.
- EmilDrengurSamþykkt2 atkv.758 sem fyrsta nafn
Nafnið er tökunafn hérlendis, líklega komið úr dönsku, af latneska ættarheitinu „Aemilius“ sem hugsanlega á rætur í latneska orðinu „aemulus“, er merkir „keppinautur“. Nafnið hefur verið notað víða á Norðurlöndum og í Evrópu; frönsk mynd þess er „Émile“, ítölsk, spænsk og portúgölsk „Emilio“ og slavnesk „Milo“.
- ViktorDrengurSamþykkt2 atkv.1.101 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af latneska orðinu "victor" sem merkir sigurvegari.
Topp kynhlutlaus nöfn 2016
- FreyKynhlutlaustSamþykkt8. maí 20251 atkv.2 sem fyrsta nafn
Frey er af norræna nafninu Freyr, sem merkir „drottinn“ eða „herra“. Freyr var frjósemis- og árgæskugoð í norrænni goðafræði.
Topp millinöfn 2016
- DanMillinafnSamþykkt1 atkv.23 sem fyrsta nafn
Danskur. Dan konungur, sem Danmörk heitir eftir, skv. Snorra.
Árið 2016 í tölum
- Sara bætti við sig flestum skráningum stúlkunafna, alls 32.
- Alexander bætti við sig flestum skráningum drengjanafna, alls 40.
- Samtals fjölgaði skráningum á stúlkunöfn um 1.894 og á drengjanöfn um 1.919 árið 2016.
Um gögnin
Tölurnar byggjast á breytingu á fjölda í þjóðskrá: fjöldi einstaklinga með nafnið sem fyrsta eiginnafn í lok árs 2016 mínus sama tala í lok árs 2015. Í þeim mun eru nýfædd börn, fólk sem flutti til Íslands og nafnbreytingar. Gögnin koma frá Þjóðskrá Íslands.
Opinberir listar yfir nöfn nýfæddra barna ná aftur til ársins 2021. Þá lista má sjá á síðum þeirra ára hér á vefnum.
Önnur ár
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →