Greinar · Vinsælustu nöfn eftir árum
Vinsælustu nöfnin 2019
Þjóðskrá birtir lista yfir nöfn nýfæddra frá árinu 2021 en ekki fyrir eldri ár. Fyrir árið 2019 sýnum við í staðinn nöfnin sem bættu við sig flestum skráningum í þjóðskrá það árið. Í þeim tölum eru nýfædd börn, fólk sem flutti til landsins og nafnbreytingar.
Topp 10 stúlkunöfn 2019
- AnnaStúlkaSamþykkt2 atkv.4.692 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur frá hebreska orðinu Channa sem merkir náð.
- SaraStúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.
- MariaStúlkaSamþykkt5. maí 20063 atkv.486 sem fyrsta nafn
Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.
- EmblaStúlkaSamþykkt2 atkv.542 sem fyrsta nafn
Embla er fyrsta konan í norrænni goðafræði, - viðarheiti. Sagan segir að Óðinn og bræður hans hafi gefið tveimur trjám, Aski og Emblu líf og urðu þau fyrstu manneskjurnar og frá þeim á allt mannkyn að vera komið.
- EvaStúlkaSamþykkt2 atkv.1.440 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og þýðir það líf, - sú sem gefur líf. Eva er fyrsta konan og hún og Adam eru þau sem allir menn eru komnir af skv. biblíunni.
- AlexandraStúlkaSamþykkt4 atkv.580 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur frá karlmannsnafninu Alexander sem merkir verndari.
- ElísabetStúlkaSamþykkt4 atkv.1.276 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af hebreska orðinu "elisheba" sem merkir Guð er fullkominn, - Guð hefur svarið.
- EmmaStúlkaSamþykkt2 atkv.558 sem fyrsta nafn
Nafnið barst til Norðurlanda frá Þýskalandi. Það var upphaflega stytting á nöfnum sem hófust á „Erm-“ eða „Ermen-“, til dæmis „Ermgard“, „Ermenhild“ og „Ermtraud“, en sá forliður er skyldur „jörmun-“ í íslensku. Stuttnefnið var þá líklega fyrst „Erma“ en síðar varð til myndin „Emma“, sem einnig var notuð sem stytting á nafninu „Emilia“.
- HeklaStúlkaSamþykkt2 atkv.531 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sótt til eldfallsins Hekla. Það hefur verið tengt við nafnorðið "hekla" sem merkir ermalaus kápa með hettu.
- AþenaStúlkaSamþykkt3 atkv.314 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr grískri goðafræði en Aþena var gyðja skynsemi og handiðnar, auk þess sem hún var stríðsgyðja.
Topp 10 drengjanöfn 2019
- AdamDrengurSamþykkt2 atkv.678 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn úr hebresku og táknar bæði mann og jörð.
- AlexanderDrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.
- AronDrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn
Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.
- JökullDrengurSamþykkt2 atkv.576 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "jökull" sem merkir klaki, - ís.
- EmilDrengurSamþykkt2 atkv.758 sem fyrsta nafn
Nafnið er tökunafn hérlendis, líklega komið úr dönsku, af latneska ættarheitinu „Aemilius“ sem hugsanlega á rætur í latneska orðinu „aemulus“, er merkir „keppinautur“. Nafnið hefur verið notað víða á Norðurlöndum og í Evrópu; frönsk mynd þess er „Émile“, ítölsk, spænsk og portúgölsk „Emilio“ og slavnesk „Milo“.
- AdrianDrengurSamþykkt6. jan 20173 atkv.317 sem fyrsta nafn
Nafnið er leitt af latnesku nafnmyndinni „Hadrianus“ og merkir „maður frá Hadria“, borg á Norður-Ítalíu. Það er vinsælt í enskumælandi löndum og hefur þekkst í Danmörku frá 15. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 16. öld.
- KáriDrengurSamþykkt2 atkv.913 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er veik mynd lýsingarorðsins "kárr" sem merkir hrokkinn, - hrokkinhærður. Einnig má geta þess að nafn þetta er notað um vind. Þegar vindurinn blæs hressilega er oft talað um að Kári blási.
Topp kynhlutlaus nöfn 2019
- BrynKynhlutlaustSamþykkt25. mar 20211 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið er af sama stofni og „brynja“ sem merkir herklæði, en upphafleg merking var sennilega „brjósthlíf“.
Topp millinöfn 2019
- SteinbergMillinafnSamþykkt2 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Stein" sem fenginn er af nafnorðinu "steinn" og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættur.
Árið 2019 í tölum
- Anna bætti við sig flestum skráningum stúlkunafna, alls 48.
- Adam bætti við sig flestum skráningum drengjanafna, alls 49.
- Samtals fjölgaði skráningum á stúlkunöfn um 2.219 og á drengjanöfn um 2.133 árið 2019.
Um gögnin
Tölurnar byggjast á breytingu á fjölda í þjóðskrá: fjöldi einstaklinga með nafnið sem fyrsta eiginnafn í lok árs 2019 mínus sama tala í lok árs 2018. Í þeim mun eru nýfædd börn, fólk sem flutti til Íslands og nafnbreytingar. Gögnin koma frá Þjóðskrá Íslands.
Opinberir listar yfir nöfn nýfæddra barna ná aftur til ársins 2021. Þá lista má sjá á síðum þeirra ára hér á vefnum.
Önnur ár
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →