Greinar · Vinsælustu nöfn eftir árum
Vinsælustu nöfnin 2015
Þjóðskrá birtir lista yfir nöfn nýfæddra frá árinu 2021 en ekki fyrir eldri ár. Fyrir árið 2015 sýnum við í staðinn nöfnin sem bættu við sig flestum skráningum í þjóðskrá það árið. Í þeim tölum eru nýfædd börn, fólk sem flutti til landsins og nafnbreytingar.
Topp 10 stúlkunöfn 2015
- SaraStúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.
- EmmaStúlkaSamþykkt2 atkv.558 sem fyrsta nafn
Nafnið barst til Norðurlanda frá Þýskalandi. Það var upphaflega stytting á nöfnum sem hófust á „Erm-“ eða „Ermen-“, til dæmis „Ermgard“, „Ermenhild“ og „Ermtraud“, en sá forliður er skyldur „jörmun-“ í íslensku. Stuttnefnið var þá líklega fyrst „Erma“ en síðar varð til myndin „Emma“, sem einnig var notuð sem stytting á nafninu „Emilia“.
- EmilíaStúlkaSamþykkt4 atkv.736 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr latínu og er upprunalega nafnið "Aemilia". Emilía getur einnig verið víxlmynd við Amalía.
- SalkaStúlkaSamþykkt2 atkv.258 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er ýmist talið stytting á nafninu Salvör og þá komið úr bókinni Salka Valka eftir Halldór Laxness, eða þá að það sé myndað af slavneska lýsingarorðinu "salvus" sem merkir sæll, - heill.
- ÍsabellaStúlkaSamþykkt4 atkv.437 sem fyrsta nafn
Spænsk mynd af nafninu Elísabet, lagað að lýsingarorðinu "bella" sem merkir fögur.
- EmblaStúlkaSamþykkt2 atkv.542 sem fyrsta nafn
Embla er fyrsta konan í norrænni goðafræði, - viðarheiti. Sagan segir að Óðinn og bræður hans hafi gefið tveimur trjám, Aski og Emblu líf og urðu þau fyrstu manneskjurnar og frá þeim á allt mannkyn að vera komið.
- EvaStúlkaSamþykkt2 atkv.1.440 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og þýðir það líf, - sú sem gefur líf. Eva er fyrsta konan og hún og Adam eru þau sem allir menn eru komnir af skv. biblíunni.
- FreyjaStúlkaSamþykkt2 atkv.643 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er skylt gotneska orðinu "frauja" sem merkir herra, - drottinn og þýðir í þessu tilviki frú.
- AnítaStúlkaSamþykkt3 atkv.568 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er spænsk smækkunarmynd og merkir Anna litla.
Topp 10 drengjanöfn 2015
- AlexanderDrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.
- AronDrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn
Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.
- ViktorDrengurSamþykkt2 atkv.1.101 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af latneska orðinu "victor" sem merkir sigurvegari.
- BaltasarDrengurSamþykkt3 atkv.255 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upphaflega komið úr biblíunni, nánar tiltekið frá konunginum Belshazzar en það nafn merkir "Baal verndi konunginn". Sumir hafa útfært merkingu nafnsins yfir í "verndaður af guði"
- BjarkiDrengurSamþykkt2 atkv.1.028 sem fyrsta nafn
Bjarki er þekkt sem viðurnefni kappans „Böðvars bjarka“ í Hrólfs sögu kraka og bar einnig maður að nafni „Þórður bjarki“ á 14. öld. Nafnið er upphaflega norrænt viðurnefni, líklega leitt af forngermönsku „*Berikan“, sbr. fornháþýsku „Bericho“ í merkingunni „litli björninn“, skylt nöfnunum Björn og Bera. Það getur einnig hafa verið leitt af trjáheitinu „björk“ eða „birki“.
Topp kynhlutlaus nöfn 2015
- AlphaKynhlutlaustSamþykkt9. sep 20212 atkv.2 sem fyrsta nafn
„Alpha“ er fyrsti stafurinn í gríska stafrófinu. Nafnið hefur verið notað á Englandi bæði á drengi og stúlkur.
Topp millinöfn 2015
Árið 2015 í tölum
- Sara bætti við sig flestum skráningum stúlkunafna, alls 41.
- Drengur bætti við sig flestum skráningum drengjanafna, alls 464.
- Samtals fjölgaði skráningum á stúlkunöfn um 1.511 og á drengjanöfn um 1.970 árið 2015.
Um gögnin
Tölurnar byggjast á breytingu á fjölda í þjóðskrá: fjöldi einstaklinga með nafnið sem fyrsta eiginnafn í lok árs 2015 mínus sama tala í lok árs 2014. Í þeim mun eru nýfædd börn, fólk sem flutti til Íslands og nafnbreytingar. Gögnin koma frá Þjóðskrá Íslands.
Opinberir listar yfir nöfn nýfæddra barna ná aftur til ársins 2021. Þá lista má sjá á síðum þeirra ára hér á vefnum.
Önnur ár
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →