Greinar · Vinsælustu nöfn eftir árum
Vinsælustu nöfnin 2017
Þjóðskrá birtir lista yfir nöfn nýfæddra frá árinu 2021 en ekki fyrir eldri ár. Fyrir árið 2017 sýnum við í staðinn nöfnin sem bættu við sig flestum skráningum í þjóðskrá það árið. Í þeim tölum eru nýfædd börn, fólk sem flutti til landsins og nafnbreytingar.
Topp 10 stúlkunöfn 2017
- AnnaStúlkaSamþykkt2 atkv.4.692 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur frá hebreska orðinu Channa sem merkir náð.
- KarolStúlkaSamþykkt21. nóv 20142 atkv.199 sem fyrsta nafn
Nafnið er notað víða í Evrópu sem stytting á „Karoline“ og „Karola“, sem tengjast nafninu Karólína.
- MagdalenaStúlkaSamþykkt4 atkv.423 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr biblíunni, af viðurnefninu "Hé Magdalené" sem merkir kona frá Magdala, en það var þorp við Genesaretvatn
- MariaStúlkaSamþykkt5. maí 20063 atkv.486 sem fyrsta nafn
Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.
- SandraStúlkaSamþykkt2 atkv.816 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er ítalskt að uppruna og er stytting á nafninu "Alessandra" sem á Íslandi mundi útleggjast Alexandra.
- EmilíaStúlkaSamþykkt4 atkv.736 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr latínu og er upprunalega nafnið "Aemilia". Emilía getur einnig verið víxlmynd við Amalía.
- SaraStúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.
- EmblaStúlkaSamþykkt2 atkv.542 sem fyrsta nafn
Embla er fyrsta konan í norrænni goðafræði, - viðarheiti. Sagan segir að Óðinn og bræður hans hafi gefið tveimur trjám, Aski og Emblu líf og urðu þau fyrstu manneskjurnar og frá þeim á allt mannkyn að vera komið.
Topp 10 drengjanöfn 2017
- AdamDrengurSamþykkt2 atkv.678 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn úr hebresku og táknar bæði mann og jörð.
- AronDrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn
Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.
- RobertDrengurSamþykkt30. jan 20082 atkv.346 sem fyrsta nafn
Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá miðöldum, meðal annars sem „Hróðbjartr“, „Róðbertr“ og „Rotbert“. Það er tökunafn úr fornháþýsku „Hruodperht“, „Ruodpert“, „Rodbert“, sett saman af nafnorðinu „hroth“ sem merkir hróður, frægð, og lýsingarorðinu „beraht“ sem merkir bjartur, skínandi.
- SebastianDrengurSamþykkt4 atkv.314 sem fyrsta nafn
Nafnið er af sumum rakið til gríska nafnsins „Sebastianós“, „maður frá Sebasta“, en Sebasta var borg í Litlu-Asíu. Aðrir telja það leitt af gríska lýsingarorðinu „sebastós“, „tiginn“. Heilagur Sebastian var píslarvottur sem uppi var á þriðju öld.
- AdrianDrengurSamþykkt6. jan 20173 atkv.317 sem fyrsta nafn
Nafnið er leitt af latnesku nafnmyndinni „Hadrianus“ og merkir „maður frá Hadria“, borg á Norður-Ítalíu. Það er vinsælt í enskumælandi löndum og hefur þekkst í Danmörku frá 15. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 16. öld.
- EmilDrengurSamþykkt2 atkv.758 sem fyrsta nafn
Nafnið er tökunafn hérlendis, líklega komið úr dönsku, af latneska ættarheitinu „Aemilius“ sem hugsanlega á rætur í latneska orðinu „aemulus“, er merkir „keppinautur“. Nafnið hefur verið notað víða á Norðurlöndum og í Evrópu; frönsk mynd þess er „Émile“, ítölsk, spænsk og portúgölsk „Emilio“ og slavnesk „Milo“.
- AlexanderDrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.
- KristóferDrengurSamþykkt3 atkv.859 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af gríska nafninu "Khristóphoros" sem merkir sá sem ber krist.
Topp millinöfn 2017
Árið 2017 í tölum
- Anna bætti við sig flestum skráningum stúlkunafna, alls 71.
- Drengur bætti við sig flestum skráningum drengjanafna, alls 63.
- Samtals fjölgaði skráningum á stúlkunöfn um 2.146 og á drengjanöfn um 2.211 árið 2017.
Um gögnin
Tölurnar byggjast á breytingu á fjölda í þjóðskrá: fjöldi einstaklinga með nafnið sem fyrsta eiginnafn í lok árs 2017 mínus sama tala í lok árs 2016. Í þeim mun eru nýfædd börn, fólk sem flutti til Íslands og nafnbreytingar. Gögnin koma frá Þjóðskrá Íslands.
Opinberir listar yfir nöfn nýfæddra barna ná aftur til ársins 2021. Þá lista má sjá á síðum þeirra ára hér á vefnum.
Önnur ár
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →