Mjöll
Stúlkunafn Samþykkt· 1 atkvæði· 620 bera nafnið
Nafn þetta merkir snjór. Nafn þetta kemur fyrir í Fornaldarsögum Norðurlanda en dætur Snæs konungs hétu Mjöll, Drífa og Fönn. Einnig kemur þetta nafn fyrir í Andrésblöðum en frænkur Andrésínu heita einmitt Mjöll, Drífa og Fönn.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
22
Fyrsta nafn
598
Annað nafn
620
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
Þöll„Þöll“ er heiti á furu en kemur einnig fyrir sem árheiti í fornu máli.MaríaNafnið er komið af hinni arameísku mynd „Mariam“, hliðarmynd hebreska nafnsins „Miriam“. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning þegar nýtt nefnifall var myndað af þolfallsmyndinni „Mariam“. Merking og uppruni nafnsins er óljós en talið er sennilegt að það sé af egypskum toga, líkt og nafn Miriam úr Gamla testamentinu, systur Móse og Arons. Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi enda tengt Maríu, móður Jesú.MichellNafnið er franskt að uppruna og er kvenkynsmynd af nafninu „Michael“, sem er skylt íslenska nafninu „Mikael“.MábilNafnið kemur fyrir í Landnámu þar sem nefnd er Mábil Hallgeirsdóttir, og einnig voru ortar rímur af Mábil sterku um 1600. Nafnið er líklegast tökunafn úr fornensku „Mabilia“, „Amabilia“. Upprunalega mun það hafa verið viðurnefni komið úr fornfrönsku „amabel“, „amable“ „elskulegur“, úr latínu „amabilis“ í sömu merkingu. Sérhljóðið í framstöðu féll brott þegar á 12. öld. „Mabel“ er vel þekkt nafn á Englandi og „Amàbile“, „Amabìlia“ á Ítalíu.MistNafn þetta merkir sú sem veldur missi. Það er valkyrjuheiti en Mist var ein af sendimeyjunum sem reið um vígvellina og valdi úr þá sem fallið höfðu til að fara til Valhallar. Nafnið tengist dönsku sögninni "miste" sem merkir að missa, - að tapa.MartaNafn þetta er komið úr biblíunni, fengið af arameíska nafninu "Martá" sem merkir frú, - húsfrú.LillNafnið er erlent að uppruna og talið gælumynd af „Elisabeth“, sem er sama nafn og „Elísabet“.MariaNafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →