Torben
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 2 bera nafnið
Nafnið er dönsk mynd af „Þorbjörn“/„Þórbjörn“ og kemur einnig fyrir í Landnámu og víða í fornum bókmenntum. Í gamalli dönsku þekktist nafnið „Thorbiorn“, sem stytt var í „Thorben“, auk hliðarmyndanna „Thurbiorn“ og „Therbern“; í fornsænsku eru heimildir um „Thorbiørn“ og „Thorbiærn“. Nú er nafnið ritað „Torben“ í Danmörku, „Torbjørn“ í Noregi og „Torbjörn“ í Svíþjóð. Upprunalegu nöfnin „Þorbjörn“ og „Þórbjörn“ eru samsett af forliðnum „Þor-“ („Þór-“) og viðliðnum „-björn“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
1
Annað nafn
2
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
TorfiNafn þetta er leitt af nafnorðinu "torf".TristanNafn þetta hefur verið tengt latneska lýsingarorðinu "tristis" sem merkir dapur.RúbenNafnið er sótt til Biblíunnar og er hebreskt. Jakob og Lea skírðu son sinn þessu nafni samkvæmt Fyrstu Mósebók (29.32) Gamla testamentisins og frá honum voru Rúbenítar komnir. Það er talið merkja „sjá, sonur!“. Nafnið er notað í enskumælandi löndum sem hliðarmynd af „Reuben“.TodorNafnið þekkist vel í Búlgaríu, Makedóníu og Serbíu og kemur upphaflega úr grísku „Theodor“, sem er skylt nafninu „Theódór“.JörgenNafn þetta er dönsk mynd af nafninu "Georg" sem merkir jarðyrkjumaður, - bóndi.TrúmannNafn þetta líklega tekið upp af norður-ameríska nafninu Truman sem var upphaflega sett saman af fornenska lýsingarorðinu "treowe" sem merkir tryggur, - trúr og nafnorðinu "mann" sem merkir maður.TrostanNafnið er trúlega sótt í örnefnið „Trostansfjörður“ en uppruni þess er óviss. Sumir telja að það sé af írskum toga, sbr. piktneska nafnið „Drostan“. Aðrir ætla að „Trostan“ sé af norrænum toga og skylt nafni eins og „Trausti“.MortenSama/svipað og Marteinn.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →