Marsibil
Uppruni nafnsins er óviss en elstu heimildir benda til að það sé erlent. Hugsanleg eru tengsl við latneska nafnið „Marcella“, sem myndað er af karlmannsnafninu „Marcellus“ (smækkunarheiti af „Marcus“), en það nafn þekkist víða, m.a. sem „Mairsile“ á Írlandi og „Marsaili“ í Skotlandi. Nafnið gæti einnig hafa blandast nafninu „Sibilla“, sem var völva þekkt úr grískri goðafræði. Endingin „-bil“ þekkist úr öðrum fornum nöfnum, t.d. „Blensinbil“, nafni móður riddarans Tristrams. Nafnið kemur fyrir í fornaldarsögum, m.a. sem nafn dætra konunga í Sörla sögu sterka, Hjálmþés sögu og Ölvis og Hálfdanar sögu Brönufóstra.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
37
Fyrsta nafn
20
Annað nafn
57
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir: