Marselín
Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 1 ber nafnið
Nafnið er erlent að uppruna og myndað eftir karlmannsheitinu „Marselíus“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
1
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
MarsibilUppruni nafnsins er óviss en elstu heimildir benda til að það sé erlent. Hugsanleg eru tengsl við latneska nafnið „Marcella“, sem myndað er af karlmannsnafninu „Marcellus“ (smækkunarheiti af „Marcus“), en það nafn þekkist víða, m.a. sem „Mairsile“ á Írlandi og „Marsaili“ í Skotlandi. Nafnið gæti einnig hafa blandast nafninu „Sibilla“, sem var völva þekkt úr grískri goðafræði. Endingin „-bil“ þekkist úr öðrum fornum nöfnum, t.d. „Blensinbil“, nafni móður riddarans Tristrams. Nafnið kemur fyrir í fornaldarsögum, m.a. sem nafn dætra konunga í Sörla sögu sterka, Hjálmþés sögu og Ölvis og Hálfdanar sögu Brönufóstra.MarlínUppruni nafnsins er óviss. Það gæti verið samsett af forliðnum „Mar-“ og viðliðnum „-lín“, en sennilegra þykir að það sé lagað eftir erlendu nöfnunum „Marleen“ eða „Marlene“, sem tengjast nafninu „Marlena“.MarionNafnið er upprunalega frönsk smækkunarmynd frá miðöldum af nafninu „Marie“ sem barst frá Frakklandi til Bretlandseyja. Það er nú notað víða í Evrópu, einkum sem kvenmannsnafn en einnig sem nafn á karlmönnum þótt í minna mæli sé.MaríonMaríon er miðaldafranskt gælunafn af nafninu Marie (María), sem er komið af hebreska nafninu Mirjam.MarínSama/svipað og Maren.MarselíaSama/svipað og Marsilía.MarsilíaNafn þetta er myndað eftir karlmannsnafninu "Marsilíus" sem merkir sonur stríðsguðsins Mars.MarlenaNafnið er erlent að uppruna. Í þýsku er það talið samandregin mynd úr nöfnunum „María“ og „Lena“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →