Marion
Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 23 bera nafnið
Nafnið er upprunalega frönsk smækkunarmynd frá miðöldum af nafninu „Marie“ sem barst frá Frakklandi til Bretlandseyja. Það er nú notað víða í Evrópu, einkum sem kvenmannsnafn en einnig sem nafn á karlmönnum þótt í minna mæli sé.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
13
Fyrsta nafn
10
Annað nafn
23
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
MariaNafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.MaríonMaríon er miðaldafranskt gælunafn af nafninu Marie (María), sem er komið af hebreska nafninu Mirjam.MarieEnsk mynd nafnsins María.MarikóNafnið er japanskt að uppruna og er hugsanlega sett saman af japönsku „ma“ sem merkir sannur, „ri“ sem merkir vitur og „ko“ sem merkir barn, stúlka.MariskaNafnið mun vera ungverskt að uppruna og merkja „beiskur“ eða „frá sjó“.MaríaNafnið er komið af hinni arameísku mynd „Mariam“, hliðarmynd hebreska nafnsins „Miriam“. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning þegar nýtt nefnifall var myndað af þolfallsmyndinni „Mariam“. Merking og uppruni nafnsins er óljós en talið er sennilegt að það sé af egypskum toga, líkt og nafn Miriam úr Gamla testamentinu, systur Móse og Arons. Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi enda tengt Maríu, móður Jesú.MaríanNafnið „Marian“ er enskt að uppruna. Upphaflega var það hliðarmynd af „Marion“ en síðar var það notað sem samsett nafn af „Mary“ og „Ann“.MarínaNafnið er talið stytting á nafninu „Marina“ sem aftur er talið kvenkynsmyndun af latneska ættarheitinu „Marīnus“. Latneska lýsingarorðið „marīnus“ merkir „sem viðkemur hafi; frá sjó“. „Marina“ varð eitt algengasta nafn á miðöldum og þótti minna á Maríu mey. Heilög Marína frá Alexandríu var uppi á 5. öld. Nafnmyndin „Marín“ er líklegast millistig milli „Marína“ og „Maren“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →