Marit
Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði· 12 bera nafnið
Marit er norsk og sænsk stytting á nafninu „Margareta“ og þekkist í Noregi frá 15. öld. Sjá einnig Margrét.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
7
Fyrsta nafn
5
Annað nafn
12
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
MargitNafnið er sænskt og norskt að uppruna, leitt af nafninu „Margareta“, og þekkist allt frá 14. öld í Noregi en frá um 1400 í Svíþjóð. Það er skylt íslenska nafninu „Margrét“.MargrétNafnið barst upphaflega til Evrópu frá Grikklandi. Gríska myndin er „Margarītēs“, mynduð af nafnorðinu „margaron“ sem merkir „perla“, en það orð er sjálft tökuorð í grísku úr persnesku. Úr grísku barst nafnið í latínu sem „Margarīta“ og þaðan í fornfrönsku sem „Marguerite“, en úr frönsku barst það síðan til enskumælandi landa. Það var einnig vel þekkt í Þýskalandi á miðöldum og var meðal algengustu kvenmannsnafna þar og í evrópskum konungaættum. Þekktasti dýrlingur með þessu nafni var heilög Margrét frá Antíokkíu sem dó píslarvættisdauða snemma á 4. öld.MariaNafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.MarítMarit er norsk og sænsk stytting á nafninu „Margareta“ og þekkist í Noregi frá 15. öld. Sjá einnig Margrét.MarieEnsk mynd nafnsins María.MartaNafn þetta er komið úr biblíunni, fengið af arameíska nafninu "Martá" sem merkir frú, - húsfrú.MargotMargot er frönsk stytting á nafninu Marguerite (Margrét). Það er komið af latneska orðinu „margarita“ sem merkir „perla“.MarínSama/svipað og Maren.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →