Margit
Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði· 9 bera nafnið
Nafnið er sænskt og norskt að uppruna, leitt af nafninu „Margareta“, og þekkist allt frá 14. öld í Noregi en frá um 1400 í Svíþjóð. Það er skylt íslenska nafninu „Margrét“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
5
Fyrsta nafn
4
Annað nafn
9
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
MargrétNafnið barst upphaflega til Evrópu frá Grikklandi. Gríska myndin er „Margarītēs“, mynduð af nafnorðinu „margaron“ sem merkir „perla“, en það orð er sjálft tökuorð í grísku úr persnesku. Úr grísku barst nafnið í latínu sem „Margarīta“ og þaðan í fornfrönsku sem „Marguerite“, en úr frönsku barst það síðan til enskumælandi landa. Það var einnig vel þekkt í Þýskalandi á miðöldum og var meðal algengustu kvenmannsnafna þar og í evrópskum konungaættum. Þekktasti dýrlingur með þessu nafni var heilög Margrét frá Antíokkíu sem dó píslarvættisdauða snemma á 4. öld.MargotMargot er frönsk stytting á nafninu Marguerite (Margrét). Það er komið af latneska orðinu „margarita“ sem merkir „perla“.MargretNafnið barst upphaflega til Evrópu frá Grikklandi. Gríska myndin er „Margarītēs“, mynduð af nafnorðinu „margaron“ sem merkir „perla“, en það orð er aftur tökuorð í grísku úr persnesku. Úr grísku er nafnið tekið upp í latínu, „Margarīta“, og þaðan í fornfrönsku, „Marguerite“, og barst svo þaðan til enskumælandi landa. Það var einnig mjög vel þekkt í Þýskalandi á miðöldum og var meðal algengustu kvenmannsnafna á miðöldum, algengt í evrópsku konungaættunum. Þekktasti dýrlingur með þessu nafni var heilög Margrét frá Antíokkíu sem dó píslarvættisdauða snemma á 4. öld. Margrét Sæmundardóttir, kona Kolbeins kaldaljóss, er nefnd í Flóamanna sögu og nokkrar konur með nafninu koma fyrir í Sturlungu.MaritMarit er norsk og sænsk stytting á nafninu „Margareta“ og þekkist í Noregi frá 15. öld. Sjá einnig Margrét.MargrjetÖnnur ritmynd nafnsins "Margrét" sem merkir perla.MargaretNafnið barst upphaflega til Evrópu frá Grikklandi. Gríska myndin er „Margarītēs“, mynduð af nafnorðinu „margaron“ sem merkir „perla“, en það orð er aftur tökuorð í grísku úr persnesku. Úr grísku er nafnið tekið upp í latínu, „Margarīta“, og þaðan í fornfrönsku, „Marguerite“, og barst svo þaðan til enskumælandi landa. Það var einnig mjög vel þekkt í Þýskalandi á miðöldum og var meðal algengustu kvenmannsnafna á miðöldum, algengt í evrópsku konungaættunum. Þekktasti dýrlingur með þessu nafni var heilög Margrét frá Antíokkíu sem dó píslarvættisdauða snemma á 4. öld. Margrét Sæmundardóttir, kona Kolbeins kaldaljóss, er nefnd í Flóamanna sögu og nokkrar konur með nafninu koma fyrir í Sturlungu.MarítMarit er norsk og sænsk stytting á nafninu „Margareta“ og þekkist í Noregi frá 15. öld. Sjá einnig Margrét.MartaNafn þetta er komið úr biblíunni, fengið af arameíska nafninu "Martá" sem merkir frú, - húsfrú.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →