Stúlkunafn

Mábil

Nafnið kemur fyrir í Landnámu þar sem nefnd er Mábil Hallgeirsdóttir, og einnig voru ortar rímur af Mábil sterku um 1600. Nafnið er líklegast tökunafn úr fornensku „Mabilia“, „Amabilia“. Upprunalega mun það hafa verið viðurnefni komið úr fornfrönsku „amabel“, „amable“ „elskulegur“, úr latínu „amabilis“ í sömu merkingu. Sérhljóðið í framstöðu féll brott þegar á 12. öld. „Mabel“ er vel þekkt nafn á Englandi og „Amàbile“, „Amabìlia“ á Ítalíu.

Ábending eða leiðrétting?

Fjöldi sem ber nafnið, á ári

3
sem 1. nafn
4
sem 2. nafn
–
ekki raðað

Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þú þarft ekki að setja hjarta fyrst.

Með föður- eða móðurnafni

Mábil Gunnarsdóttir

Samþykkt

·

Á mannanafnaskrá.

Svipuð nöfn

Sjá öll nöfn sem byrja á M →

Heimildir

  1. 1 Merking: Nafnaskýringar að hluta byggðar á Nöfnum Íslendinga, Behind the Name og Nordic Names
  2. 2 Fjöldi og sæti: Þjóðskrá Íslands
  3. 3 Sæti meðal nýfæddra: Þjóðskrá hefur ekki birt kyn barnanna síðan 2023. Kynið kemur því úr listum áranna 2021 og 2022 og annars úr mannanafnaskrá.
  4. 4 Staða: Mannanafnaskrá Þjóðskrár