Ilse
Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði· 7 bera nafnið
Nafnið er erlent og er vel þekkt í Þýskalandi og á Norðurlöndum sem stuttmynd af „Elisabeth“, sbr. „Elísabet“ og „Elsa“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
5
Fyrsta nafn
2
Annað nafn
7
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
IlmurMismunandi kenningar eru um uppruna og merkingu. Sumir telja að nafn þetta sé komið úr goðafræðinni en Ilmur var nafn á ásynju eða valkyrju. Aðrir telja að nafnið sé komið af nafnorðinu "ilmur" og merki þá ilmandi. Enn aðrir telja að nafnið sé komið af trjáheitinu "Álmur".IngaNafnið er talið fengið að láni úr austurnorrænum málum og barst þaðan til Noregs um 1200 og síðar til ensku- og þýskumælandi landa. Uppruni þess er óviss en „Inga“ er einnig gælumynd nafna sem hefjast á „Ing-“ eða „Ingi-“.RoseErlend mynd nafnsins „Rósa“, sem er komið úr latínu „rosa“ og er nafn á blómi. Á miðöldum voru liljan og rósin meðal tákna Maríu meyjar og var rósin ímynd píslarvottanna sem létu líf sitt fyrir trúna. Talið er að Maríudýrkun miðalda hafi stuðlað að vinsældum nafnsins og útbreiðslu þess. Eysteinn Ásgrímsson orti helgikvæðið „Lilju“ en Sigurður blindur (eða Sigurður Narfason í Fagradal) orti „Rósu“ og nutu bæði kvæðin vinsælda á miðöldum og síðar.IðunnNafn þetta er komið úr norrænni goðafræði en Iðunn var gyðja sem gaf ásunum epli sem viðhéldu æsku þeirra. Nafnið er samsett af forliðnum "Ið" sem merkir endurtekning, -aftur á ný og viðliðnum "unn" sem merkir unnir, - elskar, - ástIrmaNafn þetta er komið úr þýsku og er stytting nafna sem byrja á "Irm-".InnaNafnið er ungt hérlendis og hugsanlega erlent að uppruna. Það þekkist í þýskumælandi löndum sem tökunafn úr frísnesku en einnig sem rússnesk stytting á ýmsum nöfnum. Í einhverjum tilvikum getur nafnið líka verið íslenskt gælunafn.IrmýUppruni nafnsins er óviss. Það er einnig notað í þýskumælandi löndum sem gælumynd nafna sem hefjast á „Irm-“.IndaNafn þetta er gælumynd nafnsins Indíana.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →