Elisabeth
Elizabeth er ensk mynd nafnsins Elísabet, sem varð víða mjög vinsælt á miðöldum og jókst notkun þess verulega á 14. öld vegna dýrkunar á heilagri Elísabetu af Thüringen. Uppruni nafnsins er umdeildur en merking hebreska orðsins „elisheba“ hefur verið talin „Guð er fullkominn“, „Guð er eiður minn“ eða „Guð hefur svarið“. Nafnið Elísabet kemur fyrir í Nýja testamentinu sem nafn móður Jóhannesar skírara og einnig hefur verið talið að Elíseba, kona Arons í Annarri Mósebók, beri sama nafn, en þá er giskað á að síðari liðurinn hafi verið lagaður að hebreska orðinu „shabbath“ „sabbatsdagur“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
26
Fyrsta nafn
53
Annað nafn
79
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →