Sessilía

Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 1 ber nafnið

Nafnið er upphaflega latneskt, „Caecilia“, myndað af rómverska ættarnafninu „Caecilius“. Að baki þess liggur latneska lýsingarorðið „caecus“ sem merkir „blindur“. Heilög Cecilia dó píslarvættisdauða í Róm á 3. öld og er talin verndari tónlistar, einkum kirkjutónlistar, og er meðal vinsælustu dýrlinga kaþólskra. Elsta íslenska mynd nafnsins var „Cecilía“ og Sesselja Guðmundsdóttir er nefnd í Sturlungu, kona Bárðar Þorkelssonar á Söndum.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn