Raða eftir
Amaníta er kvenmannsnafn dregið af Amanita, ættkvísl sveppa; heitið er af grískum toga (amanitai).
Amara á sér fleiri en einn uppruna. Í ígbó-máli (Nígeríu) merkir það „náð“, en það er einnig portúgölsk og spænsk kvenkynsmynd af Amaro; uppruninn ræðst af samhengi.
Ai er japanskt kvenmannsnafn sem merkir „ást“ eða „kærleikur“; eitt algengasta stutta kvenmannsnafn í Japan.
Anya er rússneskt gælunafn af nafninu Anna, sem er af hebreskum rótum og merkir „náð“ eða „hylli“.
Alexia er kvenkynsmynd skyld nöfnunum Alexis og Alexander, dregin af gríska orðinu „alexo“ („að verja, hjálpa“), og merkir „verjandi“ eða „hjálpari“.
Nafnið er af arabískum uppruna og merkir „tryggur, sá sem treysta má“.
Að baki nafninu liggur ef til vill franska nafnið „Aveline“ sem merkir „fallegur fugl“.
Nafnið er arabískt að uppruna og merkir „prinsessa“, „litla prinsessan“ en einnig „auðugur; fágaður“.
Nafn þetta virðist eiga sér tvo uppruna, annarsvegar er talið að það sé spænska útgáfan af nafninu Anna sem merkir "náð". Hinsvegar er það talið koma frá Rússlandi en sé þangað komið frá Grikklandi upprunalega og sé þá merking nafnsins "sú sem rís á ný" eða "sú sem stendur aftur upp"
Nafnið er listamannsnafn söngkonunnar Eddu Erlingsdóttur, sem sjálf segir það vera stafarugl úr eigin nafni. „Ahelia“ er einnig hebreskt orð og merkir „andardráttur, uppspretta lífsins“.
Nafnið er erlent að uppruna, „Arianne“, ítölsk mynd nafnsins „Ariadne“. Það virðist ekki notað á Norðurlöndum en eitthvað í Þýskalandi og Hollandi.
Nafnið er grískt að uppruna og merkir „votlendisblóm, mýrarblóm“.
Alífa er íslenskt kvenmannsnafn sem samþykkt var á mannanafnaskrá árið 2024; uppruni þess er óviss samkvæmt Nöfnum Íslendinga.
Nafnið er leitt af „Adrían“ með viðskeytinu „-a“.
Annamaría er samsett úr nöfnunum Anna og María. Anna er af hebreskum rótum og merkir „náð“; María er komið af hebreska nafninu Mirjam.
Nafnið er myndað af forliðnum „Aðal-“ og viðliðnum „-ey“.
Alísa er íslenskun á nafninu „Alice“ sem notað er í ensku og frönsku sem hliðarmynd af „Adelaide“. Það nafn á aftur á móti rætur að rekja til þýska nafnsins „Adelheid“, sbr. „Aðalheiður“ og „Alís“.
Arora er hliðarmynd af nafninu Aurora sem merkir „dögun, morgunroði“ á latínu; Aurora var rómversk morgungyðja.
Nafnið er arabískt og merkir „happasæll, fengsæll“.
Uppruni er óviss en ef til vill liggur erlenda kvenmannsnafnið „Aska Lin“ að baki.
Nafnið er af þýskum uppruna, stytting á ýmsum nöfnum sem hefjast á „Adel-“ sem merkir „aðall“. Úr þýsku barst nafnið til Englands sem „Adele“, til Frakklands sem „Adèle“ og til Norðurlanda sem „Adele“.
Nafnið er leitt af „Adrían“ með viðskeytinu „-a“.
Uppruni óviss. Ef til vill sama orð og „alpa“ í sanskrít sem merkir „lítill, smár“.
Nafnið er talið komið úr arabísku og merkir „undur, kraftaverk; tákn“.
Alexsandra er stafsetningarafbrigði af nafninu Alexandra. Það er af grísku orðunum „alexo“ („að verja“) og „aner, andros“ („maður“) og merkir „verjandi manna“.
Nafnið er rakið til hebresku og er helst notað í Ameríku. Það er kynhlutlaust en merking þess er óviss.
Nafnið er upprunalega arabískt og merkir „göfugur, háleitur“. Þekkt bandarísk leik- og söngkona bar þetta nafn og var fjölda ungra stúlkna gefið það í Bandaríkjunum en einnig í Evrópu.
Nafnið er sett saman úr nöfnunum „Anna“ og „Rósa“.
„Arkítar“ eru nefndir í niðjatali Adams, meðal annars í Fyrstu Mósebók og Fyrri Kroníkubók. Uppruni kvenmannsnafnsins er þó óviss.
Nafnið mun vera amerískt að uppruna, „Amiah“, myndað af nöfnunum „Amy“ og „Mariah“.
Alaía er baskneskt kvenmannsnafn sem merkir „glaður, gleði“, af baskneska lýsingarorðinu alai „glaður“.
Nafnið „Alia“, sem nafnmyndin „Alía“ er dregin af, getur verið arabískt að uppruna eða hliðarmynd af slavneska nafninu „Alja“, sem er stuttmynd af „Natalja“, er svarar til „Natalía“.
Ailsa er skoskt kvenmannsnafn, dregið af eyjunni Ailsa Craig undan strönd Skotlands. Uppruni örnefnisins — og því nafnsins — er óviss.
Alaia er baskneskt kvenmannsnafn, dregið af orðinu „alai“ sem merkir „glaður“ eða „kátur“.
Alia er arabískt kvenmannsnafn, kvenmynd Aali, af rótinni ʿalā „hár“; merkir „háleit, upphafin“.
Aleksandra er slavnesk og austur-evrópsk mynd af nafninu Alexandra, kvenkynsmynd á móti Aleksander. Nafnið á rætur í grísku orðunum „alexo“ (að verja) og „aner, andros“ (maður) og merkir „verjandi manna“.
Nafnið er hugsanlega leitt af karlmannsnafninu „Agnar“ eða af nafnorðinu „ögn“ sem merkir eitthvað smátt. Viðliðurinn „-ey“ er algengur endir kvenmannsnafna.
Artemis var forngrísk gyðja, veiðigyðja og gyðja meydóms.
Nafnið er erlent að uppruna og talið hollensk mynd af þýska nafninu „Adelheid“, sem svarar til íslenska nafnsins „Aðalheiður“. Það þekkist í Svíþjóð frá því rétt fyrir miðja 17. öld, í Danmörku frá því um 1900 og var vel þekkt í Noregi á 18. og 19. öld.
Athína er af Aþenu, grísku gyðju viskunnar og verndargyðju borgarinnar Aþenu; uppruni nafnsins er forgrískur og óviss.
Ariel er hebreskt nafn, myndað af „ari“ („ljón“) og „el“ („Guð“), og merkir „ljón Guðs“. Það er notað bæði sem karl- og kvenmannsnafn.
Nafnið er sett saman af forliðnum „Al-“ og nafninu „Björt“.
Nafn þetta er komið af hebreska nafninu "Hevel" sem merkir andardráttur. Skv. biblíunni var Abel annar sonur Adams og Evu.
Að baki nafninu liggur ef til vill franska nafnið „Aveline“ sem merkir „fallegur fugl“.
Að baki nafninu liggur ef til vill franska nafnið „Aveline“ sem merkir „fallegur fugl“.
Nafnið er hebreskt að uppruna og mun merkja „Guð er faðir minn“. Það er þekkt sem nafn sögupersónu í bókinni Avia's Secret eftir Shady Grace.
Talið er að nafnið sé breskt að uppruna, sett saman úr nöfnunum „Aminta“ og „Arabella“. Það þekkist á Bretlandseyjum frá 17. öld en hefur verið sjaldgæft.
Nafnið er sett saman af forliðnum „Arn-“ og nafnorðinu „tinna“.
Nafnið er samsett af forliðnum „Alpa-“, sem sótt er til Alpafjalla, og síðari liðnum „-rós“, sbr. nafnið „Rós“.
Nafn þetta er komið úr hebresku þar sem það merkir "ljón guðs". Einnig er það annað nafn yfir borgina Jerúsalem, sem og að eitt tungla Úranusar ber þetta nafn.
Nafnið virðist einkum notað á Englandi og Írlandi. Það er talið af latneskri rót og merkja „tigin og tignarleg“.
Alísa er íslenskun á nafninu „Alice“ sem notað er í ensku og frönsku sem hliðarmynd af „Adelaide“. Það nafn á aftur á móti rætur að rekja til þýska nafnsins „Adelheid“, sbr. „Aðalheiður“ og „Alís“.
Nafnið er talsvert notað í enskumælandi löndum og er talið af óvissum uppruna en þó germanskt. Heilög Ava eða Avia var abbadís á 9. öld í Dinart, Heinault, dóttir Pepin konungs. Hún læknaðist af blindu og gerðist nunna og síðar abbadís. Vinsældir sínar sótti nafnið þó til leikkonunnar Övu Gardner.
Nafnið er líklega komið úr ensku eða þýsku. Uppruni er óviss en sú tilgáta hefur komið fram að um sé að ræða hliðarmynd við „Annabella“.
Nafnið er að uppruna ítölsk gælumynd af nafninu „Angela“.
Uppruni nafnsins er óviss en það er hugsanlega skylt nafninu „Alda“ með viðliðnum „-ey“, sbr. nafnið „Ey“.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →