Amalía

Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 89 bera nafnið

Nafnið er talið eiga rætur að rekja til gotneska nafnsins „Amali“, heitis austgotnesku konungsættarinnar, og er skylt forníslenska karlmannsnafninu „Ömlungur“ og sögninni að „amla“ sem merkir „brauka, basla við“. Forliðurinn „Amal-“ var algengur í þýskum nöfnum og af honum er „Amalía“ myndað með viðskeytinu „-ia“. Nafnið var vinsælt í Þýskalandi á 18. öld, barst þaðan í dönsku og síðan til Íslands.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.

Auglýsing

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

63

Fyrsta nafn

30

Annað nafn

93

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042026

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

AmelíaAnnar ritháttur nafnsins AmalíaAmilíaNafnið er afbrigði af „Amalía“ sem er talið eiga rætur að rekja til gotneska nafnsins „Amali“, en það var heiti austgotnesku konungsættarinnar. Það er skylt forníslenska karlmannsnafninu „Ömlungur“, í fornháþýsku „Amalung“, fornensku „Amuling“, og sögninni að „amla“ „brauka, basla við“. Forliðurinn „Amal-“ var algengur í þýskum nöfnum og „Amalia“ er myndað af honum með viðskeytinu „-ia“. Það var vinsælt í Þýskalandi á 18. öld og barst til Íslands úr dönsku, sem hafði það úr þýsku.AmadeaNafnið er líklega dregið af ítalska nafninu „Amadeo“, sbr. latneska nafnið „Amadeus“. Það er sett saman af „Ama-“, af latnesku sögninni „amāre“ sem merkir „elska“, og „Deus“ sem merkir „Guð“.AmandaÚr latínu: elskuverð.AmalAmal er upprunalega arabískt nafn og merkir „von“.AmeliaAmelia er upprunnið af germanska nafnliðnum „amal“ sem merkir „ötull, hraustur“, og er skylt nafninu Amalía. Því er stundum ruglað saman við Emilíu, sem er af öðrum rótum.AnalíaNafnið er talið spænskt, sett saman af „Ana“ (sbr. „Anna“) og „Lía“, sem er sama nafn og hebreska nafnið „Leah“ (sbr. „Lea“), en það kemur fyrir í Fyrstu Mósebók sem kona Jakobs.AtalíaAtalía var móðir Ahasía Júdakonungs samkvæmt Annarri konungabók Gamla testamentisins. Nafnið mun merkja „Drottinn hefur kunngert tign sína“.

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.