Kasper

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 24 bera nafnið

Nafnið þekkist á Norðurlöndum sem „Kaspar“ og „Kasper“ frá 15. öld og tíðkast einnig á Englandi sem „Caspar“ og í Þýskalandi sem „Kaspar“. Samkvæmt miðaldaheimildum hét einn vitringanna frá Austurlöndum, sem færðu Jesúbarninu gjafir, „Kasper“. Nafnið er talið af persneskum uppruna og merkja upphaflega „féhirðir“. Nafnið „Jesper“ er norræn mynd af þýska nafninu „Jaspar“ sem aftur er hliðarmynd af „Kasper“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

18

Fyrsta nafn

6

Annað nafn

24

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042025

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

KasparNafnið þekkist á Norðurlöndum sem „Kaspar“ og „Kasper“ frá 15. öld og tíðkast einnig á Englandi sem „Caspar“ og í Þýskalandi sem „Kaspar“. Samkvæmt miðaldaheimildum hét einn vitringanna frá Austurlöndum, sem færðu Jesúbarninu gjafir, „Kasper“. Nafnið er talið af persneskum uppruna og merkja upphaflega „féhirðir“. Nafnið „Jesper“ er norræn mynd af þýska nafninu „Jaspar“ sem aftur er hliðarmynd af „Kasper“.KaspíanKaspían er karlmannsnafn tengt Kaspíahafi og sögupersónunni Kaspían í Narníu-bókunum; borgar- og hafsheiti að uppruna.KalmarÍ Noregi, þar sem nafnið hefur verið notað frá 19. öld, er það talið myndað af nöfnum sem hefjast á „Kal-“ og viðliðnum „-mar“, sem er skyldur viðliðnum „-mar“ í nöfnum sem hefjast á „Mar-“.KarkurNafnið þekkist til forna sem viðurnefni þræls Hákonar jarls samkvæmt Heimskringlu, en „Þormóður karkur“ er einnig nefndur þar. Uppruni er ekki ljós en orðið gæti verið skylt nýnorska orðinu „kark“ sem merkir þykkur og hnúðóttur trjábörkur, og vísar þá til húðar þeirra sem báru nafnið til forna.KristerSænsk/dönsk útgáfa af Christer, sem er sama og Christian, sem á latínu þýðir kristinn maður. Sjá Kristján.JesperNafnið er trúlega tökunafn hérlendis úr dönsku, hliðarmynd af „Kasper“. Svo hét einn af vitringunum þremur frá Austurlöndum sem færðu Jesúbarninu gjafir samkvæmt miðaldaheimildum. Nafnið hefur tíðkast í Danmörku frá 13. öld, í Svíþjóð frá 15. öld og í Noregi frá 17. öld. Samsvarandi nafn á Englandi er „Jasper“ og „Jesper“ er tökunafn í Þýskalandi úr dönsku.KastíelKastíel er nútíma englanafn, líklega afbrigði af Cassiel úr fornum galdrabókum. Merking þess er óviss og það varð þekkt úr sjónvarpsþáttum á 21. öld.KarvelUppruni nafnsins er óviss en það er hugsanlega hið sama og írska nafnið „Cerbhall“. Það bar meðal annars Írakonungur sem nefndur var „Kjarvalur“ í Laxdælu og víðar. „Karvel“ kemur einnig fyrir sem nafn á konungi í Karlamagnúss sögu.
Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.