Vincent
Vincent Eyjólfsson er nefndur í Sturlungu. Vincentius kemur fyrir í dönskum heimildum frá 12. öld og þekkist einnig í fornsænsku ásamt styttri myndinni Vinze. Yngri er myndin Vincentz en frá 15. öld hefur Vincent verið notað bæði í Danmörku og Svíþjóð. Vincent er einnig gamalt á Englandi og talið fornfrönsk mynd af latneska nafninu Vincēns, í eignarfalli Vincēntis, skylt sögninni „vincēre“ sem merkir „sigra“. Vinsældir sínar sótti nafnið snemma á miðöldum til dýrlingsins Vincens frá Saragossa sem dó píslarvættisdauða, en síðar höfðu átrúnaður á franska dýrlinginn Vincens frá Lérin og heilagan Vincent frá Paul talsverð áhrif á útbreiðslu nafnsins.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
35
Fyrsta nafn
26
Annað nafn
61
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir: