Flórent
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði
Nafnið er upphaflega franskt, hliðarmynd af „florentius“, sbr. „Flórentínus“. Úr frönsku hefur það borist inn í þýsku.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
0
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
FlóventFlóvent er íslensk mynd af franska nafninu Flouvat og barst hingað með miðaldariddarasögunni Flóvents sögu. Uppruni er óviss, hugsanlega tengdur latneska nafninu Flavius.FlókiFlækja, - benda, - allt í hnút.VincentVincent Eyjólfsson er nefndur í Sturlungu. Vincentius kemur fyrir í dönskum heimildum frá 12. öld og þekkist einnig í fornsænsku ásamt styttri myndinni Vinze. Yngri er myndin Vincentz en frá 15. öld hefur Vincent verið notað bæði í Danmörku og Svíþjóð. Vincent er einnig gamalt á Englandi og talið fornfrönsk mynd af latneska nafninu Vincēns, í eignarfalli Vincēntis, skylt sögninni „vincēre“ sem merkir „sigra“. Vinsældir sínar sótti nafnið snemma á miðöldum til dýrlingsins Vincens frá Saragossa sem dó píslarvættisdauða, en síðar höfðu átrúnaður á franska dýrlinginn Vincens frá Lérin og heilagan Vincent frá Paul talsverð áhrif á útbreiðslu nafnsins.FlóresNafnið kemur víða fyrir í riddarasögum, meðal annars sem nafn sonar Sigurðar þögla, og „Flóres saga og sona hans“ varð vinsælt rímnaefni sem ýtt hefur á nafngiftina. Til Íslands er nafnið trúlega komið frá Danmörku, þar sem það þekkist frá 15. öld. Það er leitt af latneska nafninu „Flora“, en svo hét gyðja vors og blóma í rómverskri goðafræði, og er myndað af „flōs“ sem merkir „blóm“, í eignarfalli „flōres“.FlemmingUngt tökunafn hérlendis sem líklega hefur borist frá Danmörku, en til Norðurlanda barst það upphaflega frá Hollandi eða Belgíu. „Flemming“ þekktist sem viðurnefni í Noregi á síðmiðöldum en hefur verið notað sem eiginnafn frá 19. öld, og í Danmörku þekkist það frá 13. öld, upphaflega sem viðurnefni. Orðin „Vlaminc“ og „Vleminc“ merkja „maður frá Flandern, Flandrari, Flæmingi“.FlosiNafn þetta er líklega tekið af nafnorðinu "flosi" sem merkir galgopi, - kvennabósi.BerentStytting á nafninu Bernharður.FriðbertNafn þetta er myndað af forliðnum "Frið" sem merkir friður, - ró, - næði og viðliðnum "bert" sem merkir bjartur, - skínandi.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →