Skuld
Stúlkunafn Samþykkt· 1 atkvæði· 2 bera nafnið
Skuld var ein af örlaganornunum þremur samkvæmt Völuspá og var hún fulltrúi framtíðarinnar. Hinar voru Urður og Verðandi.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
2
Annað nafn
2
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
SkuggaNafnið er dregið af nafnorðinu „skuggi“.HuldNafn þetta merkir leynd, - dula.SjöfnNafn þetta er komið úr goðafræðinni en Sjöfn var ástargyðjan.SkaðiNafnið er sótt í norræna goðafræði. Skaði var dóttir Þjasa jötuns og kona Njarðar í Nóatúnum, og móðir Freys og Freyju. Uppruni nafnsins er umdeildur. Sumir telja það skylt gotneska orðinu „skadus“ „skuggi“ og Skaði þá gyðja undirheima. Aðrir tengja það latnesku sögninni „scatēre“ „vella fram“ og að Skaði hafi verið einhvers konar gróðrardís.SkúlaNafn þetta er kvenmynd karlmannsnafnsins Skúli.ÍsoldNafnið er erlent að uppruna og sótt í söguna um Tristan og Ísold, sem þekkt er af frönsku kvæði Tómasar frá Bretagne frá 12. öld. Tristan var einn af riddurum Arthúrs konungs og felldu þau Ísold hugi saman. Í íslenskri þýðingu frá 1226 var stúlkan nefnd „Ísönd“. Nafnið hefur lítið verið notað á Norðurlöndum en dálítið á Englandi, og í Þýskalandi jukust vinsældir þess eftir að Richard Wagner samdi óperuna „Tristan og Isolde“ árið 1865. Sigurður Breiðfjörð orti rímu um Tristan og Ísold, og tvær endurminningabækur Kristmanns Guðmundssonar nefndust „Ísold hin svarta“ og „Ísold hin gullna“.HrundHrund er fornt valkyrjuheiti, líklega skylt sögninni „að hrinda“.SifNafn þetta er komið úr goðafræðinni og var ekki farið að nota það sem eiginnafn fyrr en á síðustu öld. Nafnið merkir frændkona.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →