Skaði

Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði· 3 bera nafnið

Nafnið er sótt í norræna goðafræði. Skaði var dóttir Þjasa jötuns og kona Njarðar í Nóatúnum, og móðir Freys og Freyju. Uppruni nafnsins er umdeildur. Sumir telja það skylt gotneska orðinu „skadus“ „skuggi“ og Skaði þá gyðja undirheima. Aðrir tengja það latnesku sögninni „scatēre“ „vella fram“ og að Skaði hafi verið einhvers konar gróðrardís.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.