Randíður

Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 2 bera nafnið

Talið er að nafnið sé yngri mynd af „Ragnfríður“ en myndin „Randíður“ hefur sennilega verið tengd nafnorðinu „rönd“ sem merkir skjöldur. Síðari liðurinn er upprunalega „-ríður“. Randíður Bjarnadóttir frá Hvassafelli í Eyjafirði er nefnd í Annálum 1400–1800 og skáldsagan „Randíður á Hvassafelli“ eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili hefur ef til vill haft áhrif á nafngiftir í Eyjafjarðarsýslu.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.